Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Blaðsíða 13
JDagur-'ðKttrám
Laugardagur 2. nóvember 1996 - 25
jDagur-^tmtrat
Vænt og
grænt
með
Steinunni
Fyrir örfáum árum litu íslendingar á
grœnmetisœtur sem hálfgerða furðu-
fugla. Nú er öldin önnur. Veitingastaðir,
sem leggja áherslu á grœnmetisrétti,
hafa sprottið upp og það þykir fremur
bera vott um skynsemi en sérvisku að
kjósa grœnmetisfœði.
Matargatið hefur fengið
Steinunni Bergsteins-
dóttur, textílhönnuð og
eiganda grænmetisstaðarins
Vœnt og grœnt í Reykjavík, í lið
með sér og er ætlunin að hún
verði reglulega með uppskriftir
af grænmetisréttum í blaðinu.
Steinunn segir nokkuð mörg
ár síðan hún fór að taka eftir
því að hún þoldi kjöt illa. „Ég
gerði tilraun á sjálfri mér í einn
mánuð og fann strax að mér
leið betur. Ég hætti því að borða
kjöt í nokkur ár og í dag borða
ég h'tið sem ekkert kjöt þó fyrir
komi að ég bragði á því,“ segir
hún. En hvers vegna eru græn-
metisréttir hollir?
„Þetta er mun léttara fæði,
trefjaríkara og betra fyrir melt-
inguna.“
Margra ára reynsla
Steinunn er engin nýgræðingur
þegar kemur að matargerð.
Hún rak t.d. Tíu dropa í rúm
fimm ár, var með Búrnanns-
klukkuna á meðan hún var og
hét og fyrsta veturinn sem
Kaffileikhúsið var starfandi rak
hún veitingahornið þar. „Þá
ákvað ég að vera eingöngu með
grænmetisrétti," segir Stein-
unn. Viðbrögðin voru betri en
.hiip jhnrfii .að .vnna „díitmy .krue
ekki fólk gagngert til að fá sér
grænmetisrétti heldur var
þarna allskonar fólk sem vildi
horfa á leiksýningar en fá sér
að borða í leiðinni. En yfirleitt
var fólk mjög hrifið af græn-
metisréttunum. Margir komu til
baka og spurðu hvernig þetta
og hitt væri búið til, hvaða
krydd væri notað o.s.frv."
í framhaldi af þessum áhuga
sem Steinunn fann fór hún að
bjóða upp á lítil heimanámskeið
þar sem hún kennir átta manna
hópum að elda grænmetisrétti.
Fyrr á þessu ári bauðst henni
síðan húsnæði í Veltusundi eitt
á 2. hæð við Ingólfstorg og setti
á fót veitingastaðinn Vœnt og
grœnt.
Hér kemur fyrsta uppskriftin
frá Steinunni
Gulrótarbrauð með
fennel
1 kg hveiti (óbleikjað)
1 bolli hveitiklíð
'/2 bolli hörfrœ
1 msk. fennelfrœ
2 tsk. salt
1 bréf þurrger
2 stórar gulrœtur (gróft rifnar)
1 dl sojaolía
5-6 dl vatn (vel volgt)
Öllum þurrefnum blandað
vel saman í stóru fati. Bleytt í
með sojaolíu og 5-6 dl af vel
volgu vatni. Hnoðað saman
(ath! á að vera frekar blautt
deig). Gott er að klappa deigið
að utan með olíu fyrir hefingu.
læAið .hftfeíh S J ,khikkus,Uind.
Hnoðið upp og mótið í 3 brauð.
Brauðin síðan látin hefast í
hálftíma á plötu eða í formum.
Bökuð í 25-30 mínútur við 180
°C.
Best að láta þau beint inn 1'
kaldan ofninn (ekki vera búin
að hita hann áður). AI
Mynd: Pjetur
Ari Trausti segir:
„Ég notaði einungis Vanna útivistarsokkafrá
Glója Akureyri í háfjallaleiðangri lil Nepals og
Tíbets. Sokkamir reyndust mjög vel, á við það besta
aj erlendri og viðurkenndriframleiðslu.
Pað er luegt að mœla með þessum plöggum við all-
ar aðstœður þegar útivistaifólk þaif á hlfjum og
slitsterkum sokkum að halda".
Nú á 10% afshrtti við
kassa í KEA-búðunum.
Frostagötu la • Sími 462 6569 • Akureyri
Vönduð kanna með
leka loka.
Slekkur á sér sjálfkrafa.
Þægileg, einföld og ódýr.
Falleg kaffivél sem sýður
vatniö áður en hún hellir upp á.
Auðvelt er að færa hana til og
hitahellan heldur kaffinu
heitu. wfwi—
Hellir upp á ilmandi kaffi
öeihti'riitáörúsann.
3.390 kr.
11.560 kr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboösmenn um land allt.
©