Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981.
5
Útlönd
Útlönd
GÓÐIR BORGARAR
O o K. Smakkið okkar frábæru BINGÓ BORGARA
tr i 1 / \ \ með frönskum og öllu tilheyrandi.
Ljúffengir og ódýrir.
Bjóðum einnig upp á is, shake o.fl.
Dinuu Opið alla virka daga frá kl. 9—7. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 12—7.
B0RGARAR BINGÓ-BORGARAR
á horni Vitastígs og Berþórugötu, sími 13730.
Rokknornin bruggarseið.
Rokknornin
Debbie
Harry
Debbie Harry hefur nú yfirgefið
hljómsveitina Blondie og hafið söng-
feril á eigin spýtur.
— Ég er orðin 37 ára gömul og hef
verið á sífelldu flakki í mörg ár, segir
Debbie. — Nú nenni ég þvi ékki
lengur og álit að ég eigi mér framtíð
sem sólósöngkona.
Debbie virðist hafa rétt fyrir sér því
fyrsta sólóplatan hennar, Koo Koo,
hefur selzt eins og heitar lummur.
Söngkonan lét gera auglýsingamynd í
sambandi við plötuna og þar sýnir
hún svo sannarlega á sér nýja hlið.
Þar getur að líta svarthærða og svart-
klædda Debbie í alls kyns hryllings-
senum.
— Ég kem þarna fram sem rokk-
norn, segir hin fyrrum gulllokkaða
Debbie.
Við gerð myndarinnar naut hún
dyggilega aðstoðar svissneska hroll-
vekjumeistarans Hans Ruedi Giger
og fylgir sögunni að myndin hafi
hneykslað vini jafnt sem fjandmenn
söngkonunnar.
V-Þýskaland:
Kóraninn
eittbest
selda
trúarritid
Það kemur eflaust mörgum spánskt
fyrir sjónir að til standi að reisa mynd-
arlega mosku fyrir múhameðstrúar-
menn i borginni Bonn í Vestur-
Þýzkalandi.
Þó er enn athyglisverðara að i land-
inu er múhameðstrú fjölmennasta trú-
arhreyfingin á eftir kristinni trú. Til
hreyfingarinnar heyra 1400 þúsund
Tyrkir, 120 þúsund Júgóslavar, 80
þúsund Arabar og 20 þúsund íranir,
auk 1500 Þjóðverja sem snúist hafa til
íslamskrar trúar. Aðeins Frakkland
hefur fleiri íslamska íbúa af löndum
Vestur-Evrópu.
í V-Þýskalandi er trúfrelsi tryggt
samkvæmt stjórnarskránni og því
gætir áhrifa íslams víða í þjóðlifinu.
Jafnvel í smæstu bæjum kippir sér
enginn upp við það þó múhameðstrúar-
menn ástundi trúarbrögð sín á al-
mannafæri og í stærri borgum eru sam-
komur þeirra víða fjölmennar.
Fullt tillit er tekið til þessa hóps af
stjórninni og reynt að sinna þörfum
þeirra á öllum sviðum, ekki sist i
fræðslu- og menningarmálum. Og sem
dæmi um sívaxandi áhrif þessara trúar-
bragða í landinu má nefna að Kóraninn
er með best seldu trúarritum í þýskum
bókaverslunum.
-(Þýtt og endursagt JB).
X-D ' 'ÍE
Sjálfstæðismenn hafa haít
framsýni til að fylkja sér
einhuga um unga forystu-
menn í borgarstjórn
Reykjavíkur. Bjarni
Benediktsson, Gunnar
Thoroddsen, Geir Hall-
/
grímsson og Birgir Isleifur
urðu allir borgarstjórar á
aldrinum þrjátíu og tveggja
til þrjátíu og sex ára.
Enn á ný hafa allir borgarfulltrdar
Sjálfstæðisflokksins kallað til forystu
ungan stjórnmálamann. Davíð Oddsson
er ekki flæktur í þau átök sem
sundrað hafa flokknum
í landsmálum.
Fylgjum þessari
einhuga ákvörðun
eftir, sameinum
flokkinn og vinnum
Reykjavík aftur: