Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981.
7
Herbert Ólason, bóndi á Króksstöðum
í Öngulstaðahreppi, var einn af þeim.
sem missti stóran hluta af uppskerunni
undir snjó.
DB&V-mynd: GS/Akureyri.
Tjón
kartöflu-
bænda
nyrðra 9-10
m. kr.
— Bændurtelja sig
eiga siðferðilegan
réttábótum
,,Tjón kartöflubænda við Eyjafjörð
nam um 10' millj. kr. í sumar vegna
uppskerubrests og vegna þess að ekki
tókst að Ijúka upptöku þeirrar litlu
uppskeru sem var áður en vetur settist
að.
Samkvæmt upplýsingum Sveinbergs
Laxdals, formanns Félags
kartöflubænda við Eyjafjörð, hefur
verið gerð úttekt á tjóninu á vegum
landbúnaðarráðuneytisins. Niður-
stöður könnunarinnar sýna að um 700
tonn af kartöflum eru ónýt undir
snjó. 1100 tonnum tókst að ná upp, en í
þvi er mikið smælki. Er reiknað með
að helmingur þess lendi þess vegna
neðan við sölumörk. Tekjutap
bændanna er áætlað 9—10 millj. kr.
Félag kartöflubænda við Eyjafjörð
hélt fund um málið þar sem samþykkt
var ályktun til ríkisstjórnarinnar. Þar
fara bændurnir fram á að tjónið verði
bætt með óafturkræfu framlagi.
„Við höfum ekkert heyrt frá ríkis-
stjórninni enn sem komið er,” sagði
Sveinberg. „Við teljum ekki óeðlilegt
að við fáum þetta bætt. Við urðum
fyrir tekjutapi. Það er allavega jarmað
á Alþingi þegar ákveðnar eru auka-
fjárveitingar til verðbóta á
framleiðslutoppnum á öðrum
framleiðslugreinum í landbúnaði í
formi útflutningsbóta. Þar við bætist
að við kartöflubændur höfðum lagt
verulegar fjárhæðir í „pottinn” til út-
flutningsbóta þegar vel hefur árað. Þó
að við eigum ef til vill ekki lagalegan
rétt til bóta þá tel ég að við eigum
siðferðislegan rétt á að okkur verði
rétt hjálparhönd,” sagði Sveinberg í
lok samtalsins. -GSMkureyri.
Frumkvöðull
að hagkvæmum rekstri
samfara ánægjulegum
aksturseiginleikum
OPEL
$ VÉIADEILD SAMBANDSINS
Ármúla 3Reykjavík Sími38900
Veftum
Vilhjálmi Vilhjálmssyni
FRAMKVÆMDASTJÓRA SÁÁ
fyllsta stuðning í prófkjöri Sjá/fstæðis fíokksins,
sem fram fernk. sunnudag ogmánudag
STUÐNINGSFÓLK