Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981. Menning Menning Menning Menning í lok 7. áratugarins kom fram í Evrópu og Bandaríkjunum nýtt tjáningarform sem nefnt hefur verið hér á landi PERFORMANCE. Orðið er að öllum líkindum enskt en kemur upphaflega úr forn-frönsku, frá sögninni PARFORMER og þýðir að framkvæma. Orðið performance var síðan notað á 19. öid í Frakklandi til að merkja kappreiðar. Banda- ríkjamenn leggja ögn nánari skilning í orðið og nefna fyrirbærið: per- formance act. Hér á landi hefur orðið verið þýtt og komið á prenti sem gerningur. Þetta orð er ekki viðeig- andi því performance er á engan hátt tengt göldrum. Líkami tjáningarmiðill Performance er venjulega ein- staklingsframkvæmd (þó svo annað þekkist) og spannar yfir margar list- greinar og ýmiss konar videotækni. Þó er aðaleinkennið að líkaminn er helsti tjáningarmiðillinn og lögð er áhersla á sem minnsta orðræðu. Per- formance er afar þægilegt listform, því athöfnin getur átt sér stað nánast hvar sem er: í sýningarsölum, söfn- um, vinnustofum eða jafnvei úti á götu. Margar listgreinar — ný list í samanburði við myndlist, leiklist eða höggmyndalist er performance- inn í eðli sínu listblendingur, og getum við sagt að hann spanni eftir- taldar listgreinar: dans; málaralist; happening (sem talið er koma fram 1952); likamslist; tónlist (notuð sér- staklega sem tími); leiklist (þó er reynt eftir megni að detta ekki í sjón- blekkingu leikritsins). Performance-leiklist Ekki er hægt að leyna því að per- formance liggur mjög nálægt leiklist. Performancar eru framkvæmdir fyrir áhorfendur sem eiga ekki að vera virkir þátttakendur. Þeir eiga aðeins að fylgjast með þöglir úr fjarlægð. Þá eru performancarnir í æ ríkara mæli að fá professional (at- vinnumennsku) viðmót. Lögð er áhersla á æfingar, endurtekningar og um leið er útrýmt allri improvisation. Performance listamönnum hefur einnig gengið illa að aðgreina sig frá einstaklingshlutverki (one mans show) leikarans. Þetta hefur verið sérlega greinilegt eftir að margir per- formance listamenn tóku upp á því að nota búninga á sýningum. Eitt er þó sem aðskilur performance frá leik- list en það er hverfandi notkun á skrifuðu eða mæltu máli. Hefur það Myndlist PERFORMANCE Torskilið inntak Inntak performance er oft á tíðum afar torskilið, ogírauner það eðli per- formancsins eða hluti af inntakinu. Á fyrri árum performancesins var líkaminn t.d. notaður sem gjarnan inntakslegur hluti athafnarinnar (méta-Langage), en ekki eingöngu sem tjáningarmiðill (sjá verk eftir t.d. Burden og Gerz). Nú er hugsunin oft tvöföld, annars vegar formræn túlkun og hins vegar oft á tíðum heimspekileg vangavelta sem þarf ekki að koma fram í sjálfri athöfninni heldur er fyrst og fremst hugsuð sem forsenda fyrir við- komandi listsköpun. Það sem skiptir þvi oft höfuðmáli er þessi heimspekilega forsenda, sem ber vott um að'viðkomandi listamenn hafa að baki umfangsmikið nám í heimspeki, listheimspeki eða trúspeki. Performance er í eðli sínu afar óskilgreind tjáning. Hið óskilgreinda er jafnvel undirstrikað með þvi að dylja inntakið og ef notuð eru orð er þeim gefin ný meining. Er þetta algerlega andstætt t.d. conceptlist sem jafnan byggist samhliða á fræðilegum (theorískum) útskýring- um og listhlutnum sjálfum. Per- formance býður því upp ,á fjölbreytilega skynjunar- og túlkunarmöguleika. síðan aukist til muna að víkja til orðinu til að hliðra fyrir mun plastískari (mótunarlist) athöfn. Um leið minnir það okkur á að það voru myndlistarmenn sem hrundu af stað þessu fyrirbæri. Skilgreint listform Fljótt á iítið gæti maður haldið að performance væri formlaust eða óskilgreint fyrirbæri. En svo er ekki. í performance list eru þegar komnar fram ákveðnar stereotýpur, eins mikið baðað sig í öllum fötunum. Það er greinilegt að listamennirnir vilja marka sér kerfi, eins konar skilgreint munstur, sem kemur aftur og aftur i listsköpun þeirra. Þannig skapa þeir sér sérstöðu gagnvart öðrum listgreinum og öðlast per- sónulega list og umfram allt hlutdeild í hinu stóra hugtaki: Listasaga. Síðan koma fram minni spámenn (nemendur?), vinna úr framkomnum upplýsingum og fylla þannig út hið sögulega rými sem hinir stóru hafa skapað. Við erum komin með ákveðið listmunstur, takmarkað í form er alger forsenda fyrir þvi að komast inn í okkar borgaralega listkerfi. Performance + video Videoið hefur á tvennan hátt átt samleið með performance. Fyrst sem heimild eða sjónrænn vitnisburður, án þess þó að vera hluti af at- höfninni. Video-filman er t.d. ekkert unnin. í öðru lagi er videoið notað sem hluti af performance. Videoið gefur listamanninum færi á að víkka Persónuleg sköpun Þegar hafður er í huga hinn stóri heimspekilegi þáttur performance er greinilegt að hugmyndafræðileg for- senda, er mjög mikilvæg. Hér er ekki auðhlaupið að því að vinna formrænt úr hugmyndum annarra listamanna eins og við þekkjum úr málverkinu, þar sem er algengt að listamenn vinni fram persónulegan stíl þó syo upphafið hafi legið í verkum annarra listamanna. Með þetta í huga er Ijóst að auðvelt er að detta í beina eftir- öpun, innantóman formalisma eða eitthvert hughyggjurugl. Gunnar B. Kvaran. konar táknræn munstur, sem af- marka athafnir listamannsins. Þannig höfum við listamenn sem oft hafa unnið í svipuðu umhverfi og með álíka efni; Klauke, Nitsch, de Journiac nota gjarnan ámóta uppistöðu: kertaljós, hvít lök og dúka; Manzoni og Ben notuðu gubb, þvag og saur; Acconci, Pane og Schwartzogler: sár, líkamsskurði og pyntingar: Rainer hefur unnið með því að reyra i bönd hendur og andlit; Abramovic-Ulay vinna nakin; Kaprow, Kantor, Jororowski hafa tíma og rúmi, sem talið er enn ein tegund listrænnar tjáningar og ber nafnið performance. Þessi vilji til að skapa sér sögulega sérstöðu elur af sér það sem jafnan hefur verið kallað akademismi. Þetta er ekkert einsdæmi heldur ein- kennandi fyrir allar liststefnur sem komið hafa fram. Þetta kemur fram um leið og lagðar eru fram einhverjar grundvallareglur, sem síðan breytast óðfluga í skýrt afmarkaðar hreintrúarstefnur. Þá skulum við ekki gleyma að hið skilgreinda list- rýmið og spila samtímis með ólíka tíma. Listamaðurinn er þannig á þeirri stundu er hann framkvæmir performance í fjölbreytilegum tíma og rúmi. Þá gefur videoið einnig möguleika á að undirstrika visst lestrarferli, draga fram viss smærri form og vinna þannig sjónrænt úr formlegum möguleikum at- hafnarinnar. En í flestum tilfellum nær aldrei fullkominni úttekt á fyrir- bærinu og gerir inntakið oft enn óljósara. í performance er hverfandi lftil notkun á skrifuðu eða mæltu máli. Performance liggur oft mjög nálægt leiklist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.