Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. 5 DV -mynd. Eyjólfur Jónsson aö afloknu sundi 4riö 1959. Eyjótfur Jónsson lögregluþjónn. Enn aöstoðar hann unga menn sem áhuga hafa á sjósundL „ÞAÐ ER EKKERT AFREK AD SYNDA ÚT í DRANGEY” —segir Eyjólfur Jónsson, eini maðurinn sem þreytt hefur tvö Drangeyjarsund „Það var eiginlega fyrir algera tilviljun að ég hóf að synda í sjónum,” sagði Eyjólfur Jónsson. „Ég stofnaði Þrótt árið 1949 ásamt Halldóri Jónssyni. Ég reyndi að fá bróðurson minn og uppeldisbróður, Svavar Magnússon, til að taka þátt í í- þróttum, þvi hann var mjög efnilegur. Ég hafði áhuga á því að Þróttur tæki að sér fleiri iþróttagreinar en þessar hefðbundnu og stakk þvi upp á sjósundi við Svavar. „Vildi iosna viö nuddið í mórl" Svavar hafði ekki snefil af áhuga fyrir iþróttum og var orðinn hálf- þreyttur' á þessu nuddi í mér, svo hann sá sér leik á borði að losna við mig og sagðist mundu fara i sjóinn, ef ég gerði þaðlfka. Ég gerði það og synti því í Skerja- • fírðinum í fyrsta skipti árið 1950. Ég hafði gaman af þessu og hélt áfram og reyndi við Viðeyjarsund í fyrsta skipti 15. desember 1950. Það sund var algert brjálæði og ég var heppinn að drepa mig ekki, því kuldinn var svo mikill. Ég fékk krampa, þegar ég átti stútt eftir til Iands.” Fáir vissu af þessari fyrstu tilraun Eyjólfs sem þá var 26 ára gamall. Hins vegar var fyrsta Viðeyjarsundið hans 8. júni 1951, og alls synti Eyjólfur tfu Viðeyjarsund á fimmtán árum. Þá synti Éyjólfur ótal sinnum yfir Skerja- fjörðinn, einu sinni úr Engey til lands, einu sinni frá Svalbarðseyri til Akureyrar, svo eitthvað sé nefnt. Grettir og óg 32 óra þegar við þreyttum Drangeyjarsundið „Ég þreytti tvö Drangeyjarsund, það fyrra 13. júlf 1957, en þá var ég 32 ára gamall, rétt eins og Grettir er hann fór sitt Drangeyjarsund. Síðara sundið var svo 30.- mai 1959.” — Varstu ekkert hræddur við að leggja í Norður-Ishafið þegar þú fórst fyrra Drangeyjarsundið? ' „Nei. Ég hafði þá trú á sjálfum mér, að ég myndi aldrei drukkna, ef ég færi sjálfviljugur út í.” Aðeins er vitað um sex menn, sem þreytt hafa Drangeyjarsund frá upphafi. Það eru Axel Kvaran, sem þreytti það árið 1961, Eyjólfur Jóns- son, sem synti frá Drangey árin 1957 og ’59, Haukur Einarsson frá Miðdal fór það árið 1939, Pétur Eiríksson árið 1936, Erlingur Pálsson árið 1927 og Grettir Ásmundarson árið 1030. Pétur Eiriksson synti frá Drangey til lands aðeins 17 ára gamall og er sá yngsti, sem það hefur gert. „Sama sumar og ég fór seinna Drangeyjaisundið, þá synti ég frá Vest- mannaeyjum til lands. Það var 13. júlí 1959. Þá var verra veður en þegar ég synti úr Drangey. Það var mikið hafrót og mig bar nokkuð af leið. En þetta var ekkert erfitt, þetta var ekkert afrek. Það hefur mér aldrei fundist. Þetta er hins vegar spurning um þjálfun.” „Þetta er ekkert ofurmannlegt" — Almenningi finnst þetta þó nokkuð hraustlega gert? ,, Já, ég var líka á þeirri skoðun áður en ég synti þetta sjálfur. En þegar menn eru búnir að þjálfa sig og prófa sig áfram, þá er þetta ekkert ofurmann- Iegt. Hins vegar hefur likamsbygging nokkuð mikið að segja. Holdmiklir menn eiga auðveldara með að vera lengi í sjónum en horaðir menn. Hold- grannir menn verða fyrr kuldanum að bráð. Svo er misjafnt hvað menn eru harðir af sér.’” Hafði ekki Ermarsundið — Þú reyndir við Ermarsundið? „Jú, ég reyndi við Ermarsundið, en éghafðiþaðekki.” Þegar Eyjólfur var spurður, hvort hann hefði verið óheppinn I þessum sundum, þá sagðist hann ekki vilja af- saka sig, hann hefði einfaldlega ekki haftsundið. „En þetta var dásamlegur timi þarna við Ermarsundið og ég hafði gaman af að vera innan um þessa sundkappa. Ég leit nefnilega aldrei á mig sem íþróttamann, heldur sem íþróttaunnanda.” — Heldurðu að íslendingur eigi eftir að synda Ermarsundið í náinni framtíð? „Það er aldrei að vita. Það er bráðefnilegur strákur á Akranesi, Kristinn Einarsson, sem þreytti Viðeyjarsund I sumar. Hann er ekki nema 22 ára og filhraustur.Kristinnhef- ur áhuga á lengri og erflðari sundum og svo framarlega sem hann heldur áhugJ anum, þá ætti hann innan skamms að geta reynt við Ermarsundið. Svo er ég líka að vona að þessi ungi maður verði til þess að auka áhuga manna á sundi í sjó, því sjórinn er heilsubrunnur, íþróttin einstaklega holl og skemmtileg og byggir menn upp, bæði andlega og líkamlega.” -ATA. Fríða Á. Sigurðardóttir: SÓLIN OG SKUGGINN JökullJakobsson: SKILABOÐ TIL SÖNDRU Fyrsta bók Friöu, smásagnasafniö „Þetta er ekkert alvarlegt", sem út kom í fyrra, vakti almenna athygli og umtal bókamanna. Sólin og skugginn er fyrsta skáldsaga hennar og munu bókamenn ekki síöur fagna útgáfu hennar. Sagan er þrungin áhrifamagni, snertir og eggj- ar og er rituð á óvenju fögru og auðugu máli. Þetta er saga um frelsi og helsi mannsins, lífsástina og dauöann, saga af fólki, grímum þess, brynjum og vopn- um, — hún er saga mín og þín. Sólin og skugginn er bókmenntaviðburóur. SklLABOt) TIL SÖNDRU Jökull Jakobsson haföi gengið frá hand- riti þessarar bókar aöeins fáum mánuö- um fyrir lát sitt. Sagan speglar alla beztu eiginleika hans sem rithöfundar, frásögnin er lipur og lifandi, stór- skemmtileg og bráðfyndin, en undir niöri skynjar lesandinn alvöru lífsins, vandamál samtímans. Meinfyndnari og háöskari bók er ekki á bókamarkaöi í ár. Aðdáendur Jökuls Jakobssonar eru svo sannarlega ekki sviknir af þessari síöustu bók hans. Hún leiftrar af frásagnargleði og fjöri. SKUGGSJA BÓKABÚD OUVERS SJEINS SF SKUGGSJÁ BÓKABÚO OUVERS STEINS SE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.