Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
9
Blues og brotnir kjudar
öðruvísi mér áður brá. Það hefði
einhvern tíma þótt saga til næsta
bæjar að svo margt væri að gerast í
jasslifi borgarinnar að jassunnendur
yrðu að hafa sig alla við að fylgjast
með því, hvað þá heldur að njóta
þess alls.
Síðastliðið þriðjudagskvöld voru
haldnir heljarmiklir jasstónleikar i
Átthagasal Hótel Sögu þar sem fram
komu hvorki meira né minna en fjór-
ar hljómsveitir. Þar bar hæst Big-
bandið undir stjórn Björns R. Einars-
sonar.
í Djúpinu hefur undanfarin fimmtu-
dags- og laugardagskvöld leikið jass-
kvartett Kristjáns Magnússonar og
þegar undirritaður leit þar inn eitt
kvöldið var húsfyllir. Hvert sæti var
skipað og gestir stóðu einnig með
veggjum og í stigum Djúpsins. Kvart-
BJöm R. Einarsson.
ettinn hafði fengið góðan gest til liðs
við sig. Gítarleikarinn góðkunni, Jón
Páll, var kominn til landsins í jóla-
leyfi frá Svíþjóð en þar hefur hann
leikið að undanförnu. Greinilegt var
að ekki hafði verið setið langa stund
við æfingar ásamt gestinum. en smá-
mistök þau og misskilningur sem áttu
sér stað af og til gerði ekkert til þess
að skemma þá góðu stemmningu er í
Djúpinu var og sumt vakti verulega
Sverrir Gauti Diego
kátínu eins og t.d. þegar gestir áttu
allt eins von á því að Alfreð lyki
trommusóló , sem Jón Páll „stal” af
honum á höfði Jóns.
Meðal gesta voru margir af yngri
hljóðfæraleikurum landsins sem get-
ið hafa sér gott orð á undanförnum
árum og var oft gaman að fylgjast
með því hvernig álkan teygðist svo
ekki færi fram hjá þeim neitt af snilli
jassistanna.
Sama góða andrúmsloftið var í
Súlnasal Hótel Sögu þegar Jhe Missi-
sippi Delta-Blues Band kom' þar fram
á vegum Jazzvakningar. Blúsinn
svíkur aldrei og hrifningin skein úr
hverju andliti. Rafmagnaður blúsinn
náði til hvers einasta manns og lokum
var svo komið að menn héldust ekki
lengur við i sætum sínum og margir
tóku sporið.
Eins og á öðrum uppákomum
Jazzvakningar var áheyrendahópur-
inn æði mislitur og á öllum aldri. Svo
virðist sem Jazzvakningu ætli að
verða meira ágengt við að brúa kyn-
slóðabilið en öllum vandamálafræð-
ingunum.
Tónlistin sem flutt var hefði að
ósekju mátt vera ögn fjölbreyttari.en
greinilegt var að hljóðfæraleikararnir
lögðu sig að söngvara og einleikara
hljómsveitarinnar og honum tókst
með hrjúfri röddu og teygðum tónum
munnhörpunnar að snerta strengi í
hjörtum áheyrenda jafnt popp- sem
jassunnenda, ungra sem aldinna, við
taktfastan undirleik hljómsveitarinn-
ar, svo taktfastan að kjuðar trymbils-
ins hrukku í sundur. Og eitt er víst að
ungi maðurinn sem stóð með kjuða-
brotin í höndunum, eftir að trymbill-
inn hafði fært honum þau að gjöf,
gleymir aldrei The Mississippi Delta-
Blues Band.
VANITY FAIR’
Sloppur,
Utir: rautt,
ryfirautt,
dökkblðtt,
vínrautt.
Stærðir: MogL,
Kr. 512,85.
Náttkjóll
Litir: dökkblátt,
ferskjulitur.
Stærðir: S, M, L.
■VANITY FAIR
MIÐBÆJARMARKADIJRINN