Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981. 5 ANNA OG KRISTJÁN eftir Áke Leijonhufvud, Jrýdd af Jóhönnu Kristjónsdóttur... „magnaö- asta hjúskaparlýsing síðan á dögum Strind- bergs. “ „Bók sem allir þeir ættu að lesa sem eru í sambúð með annarri manneskju, “ sögðu sænsk- ir gagnrýnendur um Önnu og Kristján. ANNA OG KRISTJÁN er saga samin af óvenjulegum skaphita, innsæi og vægðarleysi. Áke Leijonhufvud tekst vissulega að ýta við lesendum svo að um munar — hann gengur nærri sögupersónum sínum, — og okkur. Saga sögð frá báðum hliðum ANNA OG KRISTJÁN er svo samin að hjón segja frá til skiptis. Þannig setur lesand- inn sig i spor þeirra beggja, lifir sig inn i reynslu þeirra, þá tilfinningaspennu og sál- arkreppu hjúskaparlífs sem sagan lýsir af svo fágætum þrótti, hörku og viðkvæmni i senn. ANNA OG KRISTJÁN, áhrifamesta, nærgöng- ulasta skáldsaga ársins. c\j s ÞÓ BLÆÐI HJARTASÁR eftir höfund Kvennaklósettsins, Marilyn French, i Jyýðingu Álfheiðar Kjartansdóttur líkist ekki neinni annarri ástarsögu sem þú hefur lesið. „Hér leiðir Marilyn French til lykta það viðfangsefni sem hún setti okkur fyrir sjónir i Kvennaklósettinu og hún gerir það af slikum myndugleik og rökfimi að ekki verður vísað á bug.“ Þannig voru viðbrögð gagnrýnenda við þessari nýju, stórbrotnu sögu eftir Marilyn French. Hér segir frá karli og konu á miðjum aldri og ástum þeirra. Dolores og Victor eru bandarísk og eiga bœði fjölskyldur heima, en dveljast ein í Bretlandi árlangt. Fundum þeirra ber saman í járnbrautarlest, á samri stundu verða þau ástfangin og varpa sér umsvifalaust út í samlíf sem þau vita að ekki getur staðið nema árið. Hún gáfuð og sjálfstæð — hann sjálfsöruggur og snjall Bœði eiga mikla og sáfa reynslu að baki og komast fjótt að því að þau lita margt ólikum augum. Hún er gáfuð og sjálfstæð kona sem hefur með sársauka gert upp við kvenhlutverk sitt, — hann sjálfsöruggur, snjall og hefur lán- ast flest, i starfi sínu. Um samspil þessa fólks fjallar sagan, þá ástríðu sem þau leysa úr læðingi hvort hjá öðru, lífsnautn, þjáningu og lifsfyllingu, sem ástin vekur þeim. Báðum er Ijóst að þetta ár er einstæður timi i lífi þeirra og mun setja mark sitt á þau þaðan ífrá. í Kvennaklósettinu brá Marilyn French upp víðtækri mynd úr lifi kvenna og heillaði lesendur, karla og konur, um allar jarðir. ÞÓ BLÆÐI HJARTASÁR er nokkuð ólikt verk, en engu síður hrífandi saga, næmleg og máttug, auðgar og dýpkar mannskilning lesandans. Þetta er saga fyrir hugsandi fólk, konur og karla, — ógleymanleg saga. Um ástir, í hjónabandi og utan þess MIÐBÆRINN, ný saga eftir Deu Trier Mörch, höfund Vetrarbarna og Kastaníuganganna, í þýðingu Ólafar Eldjám. Enn á ný tekst Deu að vinna hugi lesenda sinna, nú með samtímasögu frá Kaupmanna- höfn. Umsagnir danskra gagnrýnenda færa okkur heim sanninn um það: „Það er sjaldgæf reynsla að lesa þessa bók,“ sagði einn. „Þetta er bók sem maður leitar til áný og sœkir styrk í.“ „Hér lýsir Dea börnum i samvistum við for- eldra sína og lífið sjálftf sagði annar. „Þegar Deu Trier Mörch tekst best upp,“ sagði sá Jrriðji, „blandar hún saman á fátíðan og áhrifaríkan hátt Ijóðrænu og raunsæi, einlægni og húmor.“ PRAXIS. Hrífandi skemmtileg, fyndin, átak- anleg og ögrandi saga eftir Fay Weldon i þýð- ingu Dagnýjar Kristjánsdóttur. Saga sem ýtir við lesandanum, — til hrifn- ingar og hneykslunar. Bók sem hefur farið um allar jarðir og hlotið mikið lof. Sagan var lesin í íslenska útvarpinu i sumar og stóð ekki á viðbrögðum: fólk var ýmist bergnumið eðá stórhneykslað. PRAXIS er bók sem skiptir máli, bók sem þú verður að lesa. „Þetta er saga kvenkynsins, samþjöppuð í kjarnaatriðum. I frásögn sinni af lifi einnar konu hefur Fay Weldon veitt okkur heildarsýn yfir lifkvenna yfirleitt.“ (Marilyn French, höf- undur Kvenn. .klósettsins). „Milljónir kvenna um allan heimfinna ... að þannig er það!“ (New York Times) Úthrópuð og dáð PRAXIS er saga konufrá barnæsku tilferiugs. Hún missir foreldra sína, hvori með sinum hætti en hvorugt i gröfina, fer í skóla, giftir sig, selur sig, giftir sig á ný, eignast böm, stendur loks ein uppi. Þá verður hún fræg, sett i fang- elsi vegna verknaðar sem samfélagið fordæmir. Hún er orðin kvenfrélsisleiðtogi, úthrópuð og dáð. PRAXIS er engin venjuleg kvennabók. Þetta er bók sem snertir alla, bók sem kemur við grundvallarviðhorf fólks, lifsskoðanir okkar. Hveri er frelsi manneskjunnar, hvaða rétt hefur manneskjan yfir lífi sínu, hver er vegur hennar tilfrelsis? Á þetta bregður Praxis Ijósi í frásögn sem er svo lifandi og máttug að athygli lesandans dofnar aldrei. — PRAXIS er sagan — fyrir alla. Aðalpersónan, Lúlú, býr ásamt manni og tveimur börnum í miðbæ Kaupmannahafnar. Vinkona hennar er Maria sem kom við sögu í Vetrarbörnum, — saga hennar er í senn and- stæða og hliðstæða við sögu Lúlú. Sagan er sögð af lifandi raunsæi og tilfinningu, heimur hversdagsins, fjölskyldulífsins, er dreginn upp af þeim næmleika sem lesendur fyrri sagna höfundarins þekkja. í frásögninni fléttast sam- an með eðlilegum hætti hið smáa og hið stóra, J)að timanlega og sístæða í lífi manneskjunnar. Fyrr en varir er lesandinn hrifinn inn i sögu- heim Deu Trier Mörch — enn á ný. MIÐBÆR- INN er skáldsaga ársins, bók sem líður ekki úr minni. IÐUNN Bræðraborgarstíg16 Pósthólf 294 121 Reykjavík Sími 12923-19156

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.