Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 30
30 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981. ' L< N <=>e' TÖSKUHUSIÐ Laugavegi 73 Sími 15755 Rókókóstólar, renessancestólar, hornskápar, símaborð, speglar. Sófasett í úrvali. 'Bélstipwinn Hverfisgötu 76 — Sími 15102 Píslarvottakirkjugarðurínn í Teheran —Þar er ekki sama hvort maðurinn er séra Jón eða bara Jón í píslarvottakirkjugarðinum Be- hest Zahra, nokkrum mílum sunnan við Teheran liggja bæði hetjur bylt- ingarinnar og fórnardýr hennar graf- in. Grafirnar eru íburðarlausar en vel við haldið. Á mörgum þeirra eru litlir legsteinar með myndum af þeim látnu, á sumum jafnvel mynd af aya- tollah Khomeini. Þarna hvíla líka jarðneskar leifar þeirra Rajai forseta og Bahonar for- sætisráðherra, sem voru myrtir 30. ágúst sl., ásamt ayatollah Behesthi sem var myrtur i júni. Þessar grafir laða að sér ótal pilagríma, þar má sjá bæði unga og aldna sitja á hækjum sínum og strjúka steinana. Nokkur hundruðum metra frá hvíldarstað píslarvottanna er opið svæði. Þar er fjöldi umhirðulausra grafa, legsteinarnir brotnir og eyði- lagðir. Þar hvíla þeir áhangendur Mujahedin skæruliðasveitanna, sem drepnir voru í sumar. Nú er hætt að grafa skæruliða þarna og reyna yfirvöld að leyna því hvar þeir sem nú eru líflátnir í hinu illræmda Evin-fangelsi eru grafnir. Komist upp um grafstæðin eru öryggisverðir strax sendir af stað til að gæta þeirra. En allir vita um Behest Zahra og þangað koma ættingjar skæruliða til að leita grafa ástvina sinna. Slær oft f brýnu á milli stjórnaráhangenda og stjórnarandstæðinga. Það er afar erfitt að henda reiður á því hve marg- ir skæruliðar hafa verið drepnir í her- ferð stjórnarinnar á hendur þeim. í opinberum skýrslum eru þeir taldir um 1400 en það passar ekki við lista þá er birtast í írönskum fjölmiðlum. lægt 3000. Aftur á móti er ljóst að skæruliðum hefur tekizt að myrða um 200 stjórnarfulltrúa og rúmlega 1000 öryggisverðir hafa fallið í átökum við skæruliða. Logstoinomir á loiðum andstæðinga Khomoinis oru brotnir og ayðHagðir og afnr erfítt fyrir nattíngfa að finna þar hinzta hvílustaO ásatvina sinne. 'fty > tl» VISA ferðatékkar öryggi erlendis Landsbankinn býður VISA ferSatékka ásamt öðrum ferðatékkum. VISA er samstarfsvettvangur rúmlega 12 þúsund banka í 140 londum. Það auðveldar eigendum VISA ferðatékk- anna skipti áþeim, nærhvarsemer. Íþvífelst öryggi. í afgreiðslum Landsbankans um land allt fást ferðatékkamir afgreiddir samdægurs gegn framvísun farseðla. Landsbankinn afgreiðir nú einnig VISA greiðslukort til þeirra sem uppfylla settar reglur. Onnur nýjung í gjaldeyrisþjónustu Landsbandans er Alþjóðaávísanir (Intemational Money Orders). AÍSfD&BANKI ÍBI.ANDB Kynnið ykkur þjónustu Landsbankans. LANDSBANKINN Banki allra landsmanna argus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.