Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 45
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
45
Andlát
ItLaJdZcL
Rafmagns-
handverkfæri
til jólagjafa,
ótrúlega
hagstætt verð.
Ólafía Ólafsdóttir, Baldursgötu 7, sem
lézt þann 26. nóvember sl., var fædd
15. febrúar árið 1901 á Efstasundi
undir Eyjafjöllum. Foreldrar hennar
voru Steinunn Sigurðardóttir og Ólafur
Þórðarson. Ólafía starfaði lengst af
ævi í Bókaverzlun ísafoldar og síðar í
ísafoldarprentsmiðju. Jarðarför
hennar verður gerð í dag frá Fossvogs-
kirkju, kl. 13.30.
Hjálmfríður Anna Krístófersdóttir,
sem lézt þann 26. nóvember si., var
fædd 26. júlí árið 1901 á Hjaltabakka.
Foreldrar hennar voru Sveinina Sveins-
dóttir og Kristófer Jónsson bóndi.
Hjálmfríður bjó nær aila ævi á
Blönduósi. Hún lauk þar Kvennaskóla-
prófi árið 1918. Árið 1926 giftist hún
Páli Geirmundssyni sem lézt árið 1975.
Eignuðust þau tvö börn. Síðustu ævi-
árin var Hjálmfríður á ellideild sjúkra-
hússins á Blönduósi.
Haraldur Guðmundsson, sem lézt þann
29. nóvember sl., var fæddur 30. júlí
ÞÚ Rt*
Éii BllVll bisoo-ArivuJlati
árið 1922. Hann var prentari að iðn en
lék í frístundum á mandólín og stofn-
aði Mandólínhljómsveit Reykjavíkur.
Haraldur giftist Lilju Grétu Þórarins-
dóttur. Þau bjuggu fyrsf í Reykjavik,
þá í Vestmannaeyjum og loks í Nes-
kaupstað.
Guðmundur Benediktsson, sem lézt
þann 27. nóvember sl., var fæddur 29.
janúar 1898 á Stóra-Hálsi í Grafningi.
Foreldrar hans voru hjónin Benedikt
Eyvindsson bóndi og Margrét Gott-
skálksdóttir. Guðmundur fluttist til
Hafnarfjarðar árið 1918. Hann tók
stúdentspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1922 og lagapróf frá
Háskóla íslands árið 1926.
Guðmundur gekk i Frjálslynda flokk- I
inn og síðar i Sjálfstæðisflokkinn oe I
gegndi fyrir báða ýmsum trúnaðat- i
störfum. Hann kvæntist árið 1942 Þó - I
dísi Vigfúsdóttur og.eignuðust þau þr |
börn. Guðmundur stofnaði árið lVzo
málaflutningsskrifstofu. Síðar varð
hann bæjargjaldkeri og borgargjald-
keri í Reykjavík. Guðmundur var sið-
ast til heimilis að Grenimel 39. Útför
hans verður gerð í dag kl. 13.30 frá
Dómkirkjunni.
Auöbjörg Jakobsdótlir, sem lézt þann
24. nóvember sl., var fædd 2. október
árið 1917 á Norðfirði. Foreldrar
hennar voru hjónin Jakob Jakobsson
skipstjóri og Sólveig Ásmundsdóttir.
Auðbjörg giftist Jóhanni Klausen frá
Eskifirði og reistu þau sér hús þar, að
Hólavegi 11. Jóhann varð síðar bæjar-
stjóri á Eskifirði.
Benjamín Jónsson er andaðist 30.
nóvember verður jarðsunginn í dag kl.
15 frá Fossvogskirkju.
Kristín Þorkelsdóttir, sem lézt 25.
nóvember sl., var fædd 19. júní árið
1894. Hún bjó lengst af á Kolsstöðum í
Hvítársiðu en síðari árin i Reykjavik og
vann þá á Múlalundi. Kristín var tvi-
gift. Fyrri mann sinn, Berg, missti hún
eftir stutt hjónaband. Þau áttu eina
dóttur. Seinni maður hennar var Sig-
urður Guðmundsson frá Kolsstöðum.
Þau áttu fimm börn.
Jarðarför Jóhönnu Lovísu Jónsdóttur,
Sólvallagötu 36, fer fram frá Dóm-
kivl jtu'ni á morgun kl. 15.
Útför Einars Ásmundssonar forstjóra,
Háuhlíð 20, fer fram frá Dómkirkjunni
á morgun kl. 13.30.
Útför Halldórs Sigurðssonar beykis,
Kirkjuhvoli, Fossvogi, er lézt 30.
nóvember, fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 9. desember kl. 13.30.
Útför Isleifs Vigfússonar, Grettisgötu
56b Reykjavik, fer fram i Fossvogs-
kirkju á morgun kl. 3 e.h.
Útför Þórunnar Sigurgeirsdóttur,
kaupkonu, Austurbrún 2, verður gerð
trá Fríkirkjunni á morgun kl. 13.30.
Sigríður Önundardóttir, Víðigrund 8
Sauðárkróki, andaðist í Sjúkrahúsi
Sauðárkróks 2. desember.
Elís Bergur Þorsteinsson frá Laxárdal,
Álftamýri 12, Reykjavík, andaðist í
Landakotsspítala miðvikudaginn 2.
desember.
Guðlaugur Jónsson fyrrverandi lög-
regluþjónn, Hátúni 10, andaðist í
Landspítalanum fimmtudaginn 3.
desember.
Guðmundur Jóhannsson, Kambsvegi
34, lézt í Borgarspitalanum 3.
desember.
KAUPMENN-KAUPFÉLÖG
Eigum ávallt fyrirliggjandi fjölbreytt úrval sætisáklæða
fyrir flestar gerðir bifreiða á mjög hagstæðu verði!
ÓMAsgeirsson
Heildverslun Sundaborg 37
Laugavegi 39.
PELE, líf mitt og knattspyrna
Allir sem fylgjast meö knattspyrnu í heiminum
þekkja Pele. Fátæki Brasilíumaöurinn er varö
skærasta knattspyrnustjarna veraldar.
Bókin um PELE er saga manns er ólst upp í
fátækt en varö síöan stórmenni án þess aö
gleyma sinni fortíö, né nútíö þeirra er alast upp
viö svipaöar aöstæöur og hann sjálfur geröi.
Menn eins og PELE setja svip á samtíö sína.
Islensk
knattspyrna ’81
Bók um allt þaö sem
skeöi í íslenskri
knattspyrnu 1981.
Prýdd fjölda Ijós-
mynda. Bók sem
áhugamenn um
knattspyrnu mega
ekki missa af.
BÆKUR
KNATTSPYRNU
FOLKS
Saga Manchester United
með formála eftir Bobby Charlton
Þessi bók rekur sögu þekktasta
knattspyrnuliös veraldar, fyrr og síð-
ar. Manchester United á aragrúa af
aödáendum á íslandi.
Saga þessa félags er um leiö saga
margra þekktustu snillinga bresku
knattspyrnunnar, George Best,
Nobby Stiles, Charltonbræðra, Denis
Law (kóngurinn), McDougall, Steve
Coppeil, Gordon Hill, Gordon
McQueen o.fl., o.fl.