Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981. Jarðvinna Tilboð óskast í jarðvinnu fyrir svæðisfélag við göngugötu i Mjódd í Breiðholti. Um er að ræða ca 25000 m3 af lausum jarðvegi og ca 1000 m3 af klöpp. Verkinu skal að fullu lokið 1. apríl 1982. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 Reykjavik, e.h. mánudag 7. des. gegn 500,- kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 17. des. 1981, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Nr.2 Stærðir: 23-30 Verðkr.310,- Nýkomið Frábæru Hobby-Flex Nr. 1 Stærðir: 34—41 Verð kr. 461,- Nr.4 Stærðir: 34-41 Verð kr. 487,- Nr.8 Stærðir: 36-41 Verð kr. 592,- Nr. 3 Stærðir: 36—41 Verðkr.320,- Nr. 7 Stærðir: 39-46 Verðkr. 282,50 Opið laugardaginn 12. des. til kl. 18.00. Nr. 5 Stærðir: 23—36 Verðkr. 314,- Kristín Gunnarsdóttir fótasérfræðingur Álftamýri 1-5 - Sími 31580 PÓSTSENDUM ÍAth- ■ húsi Borgarapóteks) Útlönd Útlönd Útlönd Richard Burton rabbar við hjónin Elizabeth og Eddie Fischer við upptöku á kvikmyndinni Kleópatra (1962). FELUBYLUR06 FYRRVERANDI EIGINMENN —Nýlega komu útíBandaríkjunum þrjárævisögursem allar fjalla meira eða minna um kvikmyndastjömuna Elizabeth Taylor. Eruþaðævisagahennarsjálfrarog ævisögur tveggja fyrrverandi eiginmanna, Eddies Fischers ogRichards Burtons Fáum hefur tekizt að vekja jafn- rækilega athygli með einkalífi sínu og kvikmyndastjörnunni Elizabeth Taylor. Enda eru nú nýkomnar á markað einar þrjár ævisögur sem fjalla um stjörnuna að meira eða minna leyti. Má þar fyrst telja ævi- sögu hennar sjálfrar sem skráð er af Kitty Kelly. Hinar eru ævisögur fyrr- verandi eiginmanna, Eddys Fischers og Richards Burtons og er sú síðar- nefnda skráð af Paul Ferris. Kitty Kelly kallar bók sína Síðustu stjörnuna, enda er Elizabeth síðasta Hollywoodstjarnan sinnar tegundar: sjálfselsk, tillitslaus en svo heillandi og fögur að fólk laðaðst að henni eins og nál að segulmagni. Fischer, Taylor — eiginmaður nr. 4. orðar þetta að vísu dálítið öðruvísi í sinni sögu: — Elizabeth þykir gaman að safna herfangi, segir hann. Er þau Elizabeth gengu í hjóna- band á sjötta áratugnum var Fischer enn þekktur dægurlagasöngvari og leikari en mörgum kom á óvart að Elizabeth skyldi leggja lag sitt við hann. En það gerði hún og allur heimurinn stóð á öndinni út af ástar- ævintýri þeirra. Fischer yfirgaf eigin- konu sína, hina indælu og saklausu Debbie Reynolds, til að taka saman við ekkju bezta vinar sins, kvik- myndaframleiðandans Mike Todds, Elizabeth. Debbie segir reyndar að Fischer hafi aldrei verið hamingju- samur í hjónabandi þeirra. Burton ætiaði að notfæra sór frægð Elizabethar En hann uppgötvaði fljótt að hann hafði farið úr öskunni í eldinn þar sem Elizabeth var. Hún var eins og fellibylur. Henni tókst að gera minni- háttar vandamál að sárum harmleik en sælustundirnar á milli stríða ógleymanlegar. Samkvæmt bók Kelleys var Elizabeth ótrú Fischer allt frá upp- hafi sambands þeirra. Furðulegasta herfang hennar frá þessu tímabili er sennilega Max Lerner, prófessor i amerískri menningarsögu og höfund- ur margra bóka um efnið. — Hún sagði að ég væri hennar andlegi Mike Todd, segir Lerner stoltur í viðtali við Kelley. — Henni fanrist að aðdáun þekkts gáfumanns, eins og Lerners, sannaði að hún hefði lika heila, segir Fischer i bók sinni um samband Elizabethar og Lerners. Annars virðist Elizabeth hafa gert sitt bezta til að sanna hið gagnstæöa. Hún reyndi ákaft að losna við hlut- verk sitt í myndinni, Butterfield 8, sem færði henni óskarsverðlaunin. Bæði henni og Fischer fannst mynd- in svo vond að þau skvettu úr kokteil- glösunum sínum á tjaldið í fyrsta sinn sem þau sáu hana. Hún var ánægðari með hlutverk sitt sem Kleópatra. Richard Burton lék Anthony og Elizabeth féll strax fyrir honum. Eddie Fischer heldur því fram í bók sinni að Burton hafi í upphafi aðeins viljað nota sér skinið af frægðarsól Elizabethar. Hann segir að Burton hafi sagt við sig: — Þú þarfnast hennar ekki, þú ert þegar stjarna. Ég þarf aftur á móti á henni að halda og ég ætla mér að nota hana, þessa hæfileikalausu, einskisnýtu Hollywoodtæfu. Baráttukonan Elizabeth Elizabeth var ekkert að fara í laun- kofa með ástarævintýri sitt með Burton og allur heimurinn naut þess. Fischer segir að hún hafi komið með hann heim einn daginn og Burton hóf strax einkennilegan leik. Hann sneri sér að Elizabeth og hreytti út úr sér: — Hvornokkarelskarðu? Elizabeth horfði á okkur til skiptis skelfingu lostin, en sagði svo: — Þig. — Þetta var rétta svarið, sagði Burton. — En það kom ekki nægi- lega fljótt. Fischer segir Elizabeth þá fyrst í essinu sínu er von er á góðum bar- daga: — Því freklegar sem Burton móðg- aði hana þeim mun ákveðnari varð hún í að koma honum á kné. Og Elizabeth hætti aldrei við hálfunnið verk. Ef hún sá eitthvað sem hana langaði í hætti hún aldrei fyrr en hún fékk það. Burton fékk hún líka. Samband þeirra stóð í 10 ár. Þau skildu um tíma en gengu svo í hjónaband öðru sinni. Fischer er nú 54 ára gamall og hon- um tókst aldrei aftur að ná þeim vin- sældum er hann naut á sjötta ára- tugnum þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir. Enda lýsir saga hans vel píslar- göngunni i baráttunni fyrir frægð og frama. Burton er 56 ára, þjáist af bakveiki og hefur verið heldur hljótt um hann að undanförnu. En Eliza- beth, 49 ára, nýtur lífsins sem eigin- kona þingmannsins Johns Werners og vann nýlega mikinn leiksigur á Brodway í leikriti Lillian Helmans, Litlu refirnir. Hún virðist svo sannar- lega fær um að kynda undir því slúðri sem ævinlega hefur fylgt einka- lífi hennar í ein 30 ár í viðbót. (Time)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.