Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981. Það hefur varla farið framhjá nokkrum blaðalesanda að upp hafa komið illvígar deilur um launa- greiðslur og kjör þeirra kennara sem starfa við svonefndar „öldungadeild- ir” á framhaldsskólastiginu. Með því að yfirlýsingar samninganefndar rikisins hafa verið býsna háværar og afdráttarlausar og þeir sem þar hafa átt hlut að máli tekið undir þann fá- ránlega níðsöng sem lýsir kennurum hvarvetna sem snikjudýrum og þjóð- hættulegu fólki finnst mér ekki alveg úr vegi að fara um þetta mál nokkr- um orðum eins og það lítur út frá sjónarmiði kennara og stjórnenda skólanna. Öldungadeildir eru ekki gamlar. Hin elsta tók til slarfa fyrir forgöngu Guðmundar rektors Arnlaugssonar og samstarfsmanna hans við Mennta- skólann við Hamrahlíð fyrir röskum áratug. Að sjálfsögðu var það i óþökk fjárveitingavalds sem þar var af stað farið og mikil áhersla lögð á að eiginlega mætti svona kennsla ekkert kosta. Þannig var svo dæmi sé tekið ekkert tillit tekið til deildarinn- ar í fjárhagsáætlun fyrir skólann, þeirri sem samþykkt var af yfirvöld- um fyrstu tiu árin. Það var aldrei viðurkennl í fjárveitingum til skólans að nokkur annar kostnaður gæti hlotist af deildinni en kennslulaun. Ekki mátti minnast á ræstingarkostn- að, hitunarkostnað skólahússins, raf- magnskostnað, hvað þá gert væri ráð fyrir að slit hlytist af því þótt bætt væri nokkrum hundruðum nemenda við þá tölu sem fyrir var. Forsvarsmenn fyrstu öldungadeild- arinnar höfðu sannast sagna ekki gert sér mjög raunsæjar hugmyndir um þörfina fyrir slika stofnun. í stað fárra tuga manna sem þeir áttu von á, birtust þegar á fyrstu önnum deildar- innar fleiri hundruð. Fjárveitingar til kennslunnar voru mjög skornar við nögl og þegar á fyrstu tíð mótuðust þær starfsreglur fyrir kennara að þeir fengju 50% þess tíma sem notaður var í venjulegum skóla til þess að kenna sama námsefni og þar — og þeir tóku við þeim nemendafjölda sem óskaði eftir kennslu. Nú hefði okkur, kennurunum, vitanlega verið í ÖLDUNGADEILDIR — UM HVAÐ ERDEILT? lófa lagið að segja: ,,Nei, takk. Við kennum eðlilegri hópastærð, miðum við þetta ríflega tuttugu nemendur í hverjum hópi. Hinir verða að bíða.” En menn verða að virða okkur til vorkunnar að við gerðum þetta ekki. Og þróunin varð sú að nemenda- fjöldi varð á bilinu 30—100 nem- endur í hópi. Sá sem þetta skrifar hefur t.d. reynslu af því að þylja ýmisleg fræði um Njálssögu og bók- menntafræði yfir rösklega 100 nem- endum í sal sem rúmaði að öllu eðli- legu 70 manns, enda kom fyrir að liði yfir nemendur (sakir loftleysis, ekki kynngimagnaðrar kennslu!). Það var ekki fyrr en þessi starfsemi hafði staðið fleiri annir að léð var máls á því að gera sérstaka kjara- samninga fyrir kennara öldunga- deildarinnar við MH. Illu heilli féll- ust samningamenn kennara á þau1 ein rök sem samninganefnd ríkisins virtist skilja: Þarna ætti að greiða álag vegna nemendafjölda. Og þegar upp var staðið hafði verið sæst á að greiða hverja kennslustund fastra kennara með hlutfallinu 1,6 eða með öðrum orðum með 60% álagi. Þetta þótti samninganefnd ríkisins að vísu ofrausn og tók vandlega fram að þetta miðaðist við stóra hópa nem- enda. Nú liðu ár og smátt og smátt varð mönnum Ijóst að það væri ekki í anda tímans að fullorðinsfræðsla af þessu tagi væri sérréttindi Reykvík- inga. Framhaldsskólar víða um land tóku upp öldungadeildastarfsemi. Fyrst riðu Akureyringar á vaðið svo sem von var til en síðan fleiri og fleiri. Og eðlilega gerðu kennarar þessara stofnana kröfu til sömu Heimir Pálsson: launa og greidd voru við Hamrahlíð. En þá hljóp sem hland fyrir hjartað á samningamönnum ríkisins. Nú var of langt gengið: Námshóparnir voru alls ekki stærri en í venjulegum skóla og meira að segja stundum miklu minni. Fjármálaráðuneytið sagði samningunum upp og síðan hófst það samningaþóf sem nú síðast leiddi til nauðungarsamninga sem kennarar féllust að vísu á að vinna eftir til ára- móta, en gerist ekkert fyrir upphaf næstu annar er ekki annað sýnt en allar öldungadeildir leggist niður. Það er ekki erindi þessarar greinar að ræða það ódæði sem unnið væri með því að ríkisvaldið legði öldunga- deildirnar niður. Reynsla nemend- anna sem nú fara að teljast í þúsund- um, ekki hundruðum, verður ólygn- ust. Hins vegar var ætlunin að ræða ofurlítið um sjálf k jaramálin. Ég sagði áður að illu heilli hefðu samningamenn kennara fallist á rök ráðuneytis um fjöldaálag. Sann- leikurinn er nefnilega sá að það er ekki fjöldinn sem fyrst og fremst rétt- lætir verulegt launaálag heldur vinnuaðstaða. Öll kennsla í öldungadeildum fer fram eftir venjulegan dagvinnutíma, þ.e. eftir klukkan fimm á daginn og stendur að jafnaði fram á ellefta tím- ann á kvöldin. Auk þess er sumstaðar kennt á laugardögum (undirritaður hefur kennt á sunnudagsmorgnum, ^ „Sá sem þetta skrifar hefur t.d. reynslu af því að þylja ýmisleg fræði um Njálssögu og bókmenntafræði yfir rösklega 100 nemend- um í sal sem rúmaði að öllu eðlilegu 70 manns, enda kom fyrir að liði yfir nemendur,” segir Heimir Pálsson í grein sinni, þar sem hann fjallar um kennslumál í öldungadeildum. en það mun heyra til undantekninga). Þótt ég hafi ekki reynslu af mörgum störfum á ísl. vinnumarkaði leyfi ég mér að fullyrða að fá störf séu' jafn krefjandi og andlega lýjandi og kennsla. Ég veit að visu að þar er all- mikill munur á skólastigum, grunn- skólakennarar eiga erfiðasta ævi, en enginn nema sá sem reynt hefur veit hvað það er að koma heim þreyttur eftir kennsludag. Þegar svo er ætlast til að menn rífi af sér þreytuna á kvöldin til að vinna í akkorði og skila á hálfum þeim tíma sem eðlilegur þykir á daginn starfi eins og kennslu, þá leyfi ég mér að spyrja: Eru undur þótt mönnum þyki 60% álag í kaupi vera lágmark? Hvernig skyldi litið á það í öðrum verkalýðsfélögum? Er óeðlilegt að 100% afkastaaukning í eftirvinnu leiði til 60% launahækk- unar? — Svari hver fyrir sig. Samninganefnd ríkisins neyddi „kvótakerfi” upp á öldungadeilda- kennara og þvingaði fram mismun- andi laun eftir nemendafjölda i hópum. Þetta hefur það í för með sér að kennarar utan Reykjavíkur munu fá lægri laun en Reykjavíkurkennar- ar (og Akureyrarkennarar) — en nemendur greiða þó sömu námsgjöld allstaðar á landinu, hvernig sem það getur nú hangið saman. Auk þess hefur kvótakerfið það í för með sér að kennari í lokaáfanga í námsgrein (t.d. stærðfræði) fær lægra kaup en sá sem kennir fyrsta áfangann, ein- faldlega vegna þess að nemendur í lokaáföngum eru ávallt færri en í upphafsáföngum. Önnur ákvæði þessa makalausa samnings lýsa flest hver svipuðu vitsmunalífi og þessi sem nú voru nefnd. Það hlýtur að vera krafa allra hugsandi manna að ráðherrar mennta- og fjármála láti þetta til sín taka. Þeir hafa vald til að leysa vand- ann, koma í veg fyrir þau ógæfuspor sem embættismenn þeirra eru að stíga: að leggja öldungadeildir niður. Nú er að sýna manndóm og beita þessu valdi. Heimir Pálsson, skólameistari. Húsgagnasýning á morgun, sunnudag frá kl. 14.00 til 17.00 Rondo sófasett Verð kr. 16.275.00.- Útborgun 20% eftirstöðvar á 9-10 mánuðum Húsgagnaverslun Guðmundar Smiðjuvegi 2, Kóp. Sími 45100 Nýjar bækur Sumarblóm í Paradís •ftir Snjólaugu Bragadóttur Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. hef- ur sent frá sér bókina Sumarblóm í Paradís, nýja skáldsögu eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk. Er þetta áttunda skáldsaga Snjólaugar, en fyrsta bók hennar: Næturstaður kom út árið 1972. Sumarblóm í Paradís er saga úr nú- tímanum. Fjallar um unga stúlku sem beðið hefur hálfgert skipbrot og stend- ur á krossgötum í lífi sinu, er vinkona hennar býður henni að koma með sér út i eyðieyju á Breiðafirði, þar sem komið hefur verið upp sumarparadis fyrir ferðamenn. Margt óvænt hendir hina ungu stúlku meðan á eyjardvölinni stendur, ástir lifna og deyja og fyrr en varir er aftur komin haust. Aðalsögu- hetja bókarinnar, Lena, sér þá fram á að þurfa að fara aftur til borgarinnar og standa í nákvæmlega sömu sporum og um vorið. Sumarblóm í Paradís er sett, um- brotin, filmuunnin og prentuð í Prent- stofu G. Benediktssonar, en bundin hjá Arnarfelli hf. Káputeikning er eftir Sig- urþór Jakbosson. Nýjar bækur . NÚÁDÖGUM UFAMENN Al.LT AF MEMA DAUÐANN. ., SÉRHVER ÞJÓÐ HEFUR ÞÁ STJÓRN SEM HÚN VERÐSKULDAR .jtÆMAKTRE LVGARÍNN VER0UR AÐ HAFAÓOTT MiNNl.. „ • . SÁSEMGETUR FRAMKVÆMIR SÁ SEM EKKERT GETUR, KENNIR.. ■ ÞRÍR GETA ÞAGAB YFIR Kristailar sóra Gunnars Árnasonar Almenna bókafélagið hefur sent frá sér bókina Kristalla tilvitnanir og fleyg orfl í samantekt séra Gunnars Árna- sonar frá Skútustöðum. Er hér um að ræða aðra útgáfu þessa verks aukna um rúman þriðjung, en fyrri útgáfan kom út 1956. j kynningu forlagsins á bókarkápu segir m.a.: „Kristallar — tilvitnanir og fleyg orð er safn snjallyrða og frægra ummæla frá ýmsum tímum og víðsvegar að úr heiminum. Bókina munu sumir vilja lesa í einni lotu og mun skemmtilegur lestur. Aðrir munu vilja nota hana sem uppflettirit og er efninu þannig skipað að hún er hentug til þeirra nota... ” Dæmi úr bókinni: Ef við flettum t.d. upp á orðinu skoflun sjáum við þetta m.a.: Þá eina teljum við vitra sem játa vor- ar eigin skoðanir — Rochefoucauld. — Skynsamir menn skipta um skoðun, fíflin aldrei — T. de-Reiss. — Ég get ekki fallist á skoðanir yðar, en ég skal leggja líf mitt að veði til þess að verja rétt yðar til að halda þeim fram — S.C. Tallentyre. Fyrri tíðar menn áttu sann- færingu, vér nútímamenn höfum að- eins skoðanir — Heine. Kristöllum fylgir rækileg skrá yfir höfunda hinna fleygu orða bókarinnar ásamt upplýsingum um þá. Bókin er 272 bls. að stærð og unnin i Prentverki Akraness.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.