Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
9
Útlönd Útlönd Útlönd
Sakharov-hjónin
sögð á spftala ss.
Stjúpsonur andófsmannsins Andrei
Sakharov, hefur skorað á
Kremlstjórnina að sanna, að Sakharov
njóti í raun læknisaðstoðar — en hann
hefur verið iagður inn á sjúkrahús eftir
2 vikna langt hungurverkfall.
Andrei Semyonov, sonur Yelenu
Bonner, eiginkonu Sakharovs, skoraði
á Kreml að rjúfa þögnina, sem ríkt
hefur um hungurverkfall Sakharövs og
áfram eftir að þau voru sótt á
föstudaginn í útlegðaríbúð þeirra í
Gorky.
Sakharovhjónin hafa bæði verið í
hungurverkfalli til þess að styðja
tengdadóttur sína, Lízu Alexeyevu, í
tiiraunum hennar til þess að fá leyfi til
að flytja úr landi og heimsækja
Semynov til Bandaríkjanna.
Semyonov sagði fréttamönnum, að
hann hefði án árangurs reynt að ná
sambandi við Lízu í gær eftir að KGB-
menn hefðu stöðvað hana, þegar hún
ætlaði að taka lest frá Moskvu til
Gorky að heimsækja tengdaforeldra
sína.
Semyonov sagði, að KGB-leynilög-
reglumennirnir hefðu sagt við Lizu:
,,Ef þú reynir (að heimsækja
Sakharov), munu þeir hrinda þér undir
lestina.” — Hann lét ekki uppi,
hvernig hann vissi, hvað sagt hafði
verið við Lízu.
Semyonov (26 ára) er stúdent við
nám í Brandeisháskóla í Newton,
Massachusetts. Hann segist aðeins ná
sambandi við konu sína með því að þau
séu áður búin að mæla sig saman um á-
kveðnastund.
Hann segir, að enginn viti til hvaða
spítala Sakharov-hjónin hafi verið
flutt, eða hvort þau hafi verið aðskilin.
Skoraði hann á sové/t y firvöld að sýna
með einhverjum hætti þau tvö
hlytu umönnun.
LANDIÐ ÞITT - ÍSLAND
Annaö bindi þessa einstaklega glæsilega ritverks eftir Steindór Steindórsson frá
Hlöðum og Þorstein Jósefsson. Bók sem hefur aö geyma sögu og sérkenni
þúsunda staða, bæja, kauptúna, héraöa og landshluta. I bókinni er mikill fjöldi
litmynda, sem opna lesendum nýja og víðari sýn til landsins síns, íslands. Andrés
Kristjánsson bókmenntagagnrýnandi komst m.a. svo aö oröi um þennan bóka-
flokk þegar fyrsta bindi hans kom út, aö hér væri um aö ræöa „öndvegisverk og
einskonar sáttmálsörk lands og þjóöar." LANDIÐ ÞITT — ÍSLAND er kjörbók alls
heimilisfólksins, bókin sem er lykillinn aö vitneskju og fróöleik um landið og sögu
þess og mun halda gildi sínu í framtíðinni. Hér er því ekki aöeins um einstaklega
glæsilega bók aö ræöa, heldur hefur hún að geyma hafsjó af fróöleik.
HVAÐ GERÐIST Á ÍSLAND11980
HVAÐ GERÐIST Á ÍSLANDI — ÁRBÓK ÍSLANDS eftir Steinar J. Lúðvíksson er
annað bindiö í bókaflokki sem hefur aö geyma ítarlega samtímasögu íslenskra
atburöa. í bókinni er fjallað um alla helstu viðburðina í íslensku þjóölífi áriö 1980, á
samfelldan hátt, þannig aö hvert mál er rekið frá upphafi tll enda. Bókin er því
aögengilegt heimildarit og mun veröa ómetanleg þegar fram líða stundir og þeim
skemmtileg lesning sem vilja rifja upp heimildir um samtíma atburði, sem þeir tóku
þátt í eða voru áhorfendur aö. Bókinni er skipt niður í fjölda efnisflokka sem gera
hana mjög aðgengilega, auk þess er í henni ítarleg atburöaskrá. Hér finna menn
því á auöveldan hátt svör viö flestu því sem spurt verður um, þegar atburöi ársins
1980 ber á góma.
TOGARAÓLDIN
Eftir Gils Guömundsson. Fyrsta bindi ritverks er fjallar um mesta byltingarskeið
íslenskrar atvinnusögu, og var grunnur þess aö íslendingar hófust úr örbirgö til
allsnægta. Þessi bók ber undirtitilinn „Stórveldismenn og kotkarlar" og fjallar um
upphaf togveiða viö ísland, hatrammar deilur sem uröu um togaraútgerð á ís-
landsmiðum, viöskipti íslendinga viö erlenda togaramenn sem einnig voru mjög
umdeild, fyrstu tilraunir íslendinga til sjálfstæðrar togaraútgeröar er fór út um
þúfur. Þá er sagt frá landhelgisgæslumálum á öndveröri togaraöld, en hún var í
höndurn Dana og þótti heldur óburðug. Komust erlendir togaramenn jafnvel upp
meö ofbeldisverk viö íslendinga, svo sem rakið er í bókinni. TOGARAÖLDIN er
litprentuö bók, mjög mikið myndskreytt og hafa sumar myndanna aldrei birst áöur,
eins og t.d. einstæö myndasyrpa af töku breskra veiðiþjófa urh aldamót.
220 GÓMSÆTIR SJÁVARRÉTTIR
Eftir Kristínu Gestsdóttur, myndskreytt af Sigurði Þorkelssyni. Þessi bók býöur
meira en 220 uppskriftir af réttum úr fáanlegu íslensku hráefni. Sá, sem notar og
fer eftir tillögum höfundarins, mun kynnast því aö þaö er hægt aö „gjöra góöa
veislu“ ekki síöur úr fiski en kjöti. Raunar er kominn tími til aö íslendingar læri að
matreiöa fisk- og sjávarréiti meö öörum hugsunarhætti en þeim aö á boröum sé
„bara fiskur". Þaö þarf ekki endilega aö kosta svo miklu meira, þótt fiskurinn sé
gerður aö lostæti, þaö krefst fyrst og fremst hugmyndaflugs og framtaks og meö
aöstoö þessarar bókar verður máliö auöleyst. Auk uppskrifta af fisk- og sjávarrétt-
um, eru í bókinni fjölmargar uppskriftir af auðveldum sósum, brauöum og ööru
meölæti sem nýnæmi er aö. Þetta er bók sem mun gera „fiskdagana" á heimilinu
aö hátíöisdögum.
ORN&ORiyCUR Síöumúlan, sími 84866
GRETTISGÖTU 12-18
SÍIVII25252
Ford Fiesla L 1979, hvitur, ekinn
16 þús. km. Verð kr. 75 þúsund.
AMC Eagle (fjórhjóladrif) 1981,
grásanseraðpur, 6 cyl., sjálfsk.
m/öllu, ekinn 12 þ.km. Sem nýr
bíll. Verð kr. 235 þús.
Toyota Crown 1981 dísil stalion,
litur blásanseraöur, ekinn 68
þúsund km, sjálfskiptur, aflstýri,
útvarp or segulhand. Ath. 7
manna. Verð 180 þúsund kr.
Subaru 1600 4 x 4 1980, rauður,
ekinn 30 þúsund km. Verð 115
þúsund kr. (Greiðslukjör).
Toyota Corolla DX 1980, rauður,
ekinn 19 þúsund km. Verð 85
þúsund kr.
Galanl 1600 station 1980, rauður,
ekinn 24 þúsund km. Verð 97
þúsund. Skipti á ódýrari.
Mazda 323 (1400) 1980, rauður, 5
dyra, sjálfskiptur, útvarp, segul-
band, snjódekk og sumardekk.
Verð kr. 85 þúsund.
1 Sapparo GL Coupé 1981, silfur-
I grár, ekinn 15 þ.km, snjód. +
' sumardekk á sporlfelgum. Verð
kr. 135 þús.
AMC Hornel 1977, silfurgrár, 6
eyl., sjálfsk. m/öllu, áklæði á
sælum, ný nagladekk, ný sumar-
dekk, úrvalsbíll. Verð kr. 78 þús.
(Má greiöast með fasteignalr.
víxlum).
Mazda 626 1980, brúnsanseraður,
2ja dyra, ekinn 15 þúsund km.
Útvarp og segulband. Verð 98
þúsund kr.
Ford Bronco 1974, ekinn 110
þúsund, litur gulur, 8 cyl., sjálf-
sk. Verð 180 þúsund kr. Skipti.
Fjöldi annarra jeppa á söluskrá.