Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981. 27 íþfóttSE' íþrótt Hörðurtekur við Völsungi! Húsvíkingar hafa ráðið Hörð Helgason, hinn kunna liðstjóra Akur- nesinga, sem þjólfara 2. deildarliðs Völsunga i knattspyrnunni i sumar. Hörður, sem áður var markmaður hjá Fram og siðan Akranesi, hefur verið liðstjóri Skagamanna undanfarin ár og einnig aðstoðað hina erlendu þjálfara sem verið hafa hjá Skaga- mönnum. Hann tekur við hjá Völsungi af Jóni Gunnlaugssyni sem er aftur fluttur á Akranes og mun trúlega leika með þeim í sumar. -klp- Grindvíkingamir f óra loks f gang - eftir fjóra fapleiki í röð og sigruðu Haukana létt Grindvikingar unnu sinn fyrsta leik i 1. deildinni í körfuknattleik i gær þegar þeir lögðu Hauka létfilega að velli i íþróttahúsinu í Njarðvík. Grindvíkingarnir komu Haukunum mjög svo á óvart strax i leiknum og áttu þeir aldrei möguleika. 1 hálfleik var staðan 45—39 Grindavík i vil en loka- tölurnar urðu 88—69. Eyjólfur Guðlaugsson átti stórkost- legan leik með Grindavíkurliðinu — þann bezta sem hann hefur nokkurn tímann átt. Skoraði hann 31 stig sem er 4 stigum meir en Bandaríkjamaðurinn í liðinu, Mark Holmes, gerði. Hjá Haukum var Dakarsta Webster beztur — skoraði 22 stig en einnig var Pálmar Sigurðsson góður þó svo að hann hefði ekki skorað mikið. Staðan í 1. deildinni í körfuknattleik eftir leikinn er þessi: Keflavík 4, 4 0 399—297 8 Haukar 4 2 2 352—383 4 Skallagrímur 5 2 3 441—503 4 Grindavík 5 1 4 412—421 2 Næsti leikur i deildinni verður á miðvikudagskvöldið i Keflavík en þá leika ÍBK og Grindavik. -G/-klp- CRUIJFF SKOR- AÐIFYRIR AJAX Johan Cruijff lék á ný i hollenzku knattspyrnunni i gær eftir átta ára fjar- veru. Skoraði fyrsta mark Ajax í 4—1 sigrinum á Haarlem og hinn 34ra ára Cruijff.sem um árabil var talinn bezti Houston vann Portland Houston Rockets sigrraði Portland Blazers meö 12 stiga mun — 110—98 — i ameríska körfuknattleiknum á iaugard. Af öðrum úrslitum má nefna Philadelphia—New Jersey 114—105, Golden State— San Diego 138—113, New York Kicks—Boston Celtic 103—83. -hsím. Betraenhjá pabba! Ung islenzk stúlka, Þórunn Guðmundsdóttir, setti i gær nýtt meyjamet i 1500 metra skriðsundi á miklu sundmóti i Danmörku. Hún synti vegalengdina á 19:23,8 mlnútum. Gamla metið átti Katrín L. Sveinsdóttir, Ægi og var það 20:43,3 min. Til gamans má geta þess að þessi timi Þórunnar, sem er aðeins 11 ára gömul, er betri en íslandsmet karla i sömu grein sem faðir hennar, Guðmundur Harðarsson sundkennari, átti hér fyrir nokkrum árum. -klp- lárus kominn til Þýzkalands Vikingurinn Lárus Guðmundsson hefur verið hjá Beveren i Belgiu i siðustu viku, en fengið litið að sýna þar. Báðum æfingaleikjunum sem hann átti að taka þátt i var frestað. Hann er nú kominn til Vestur-Þýzka- lands en þar eru nokkur félög sem hafa áhuga á að sjá þennan marksækna leik- mann frá Islandi. Þar á meðal er Hannover 96, sem þegar hefur tryggt sér einn íslenzkan leikmann, Jóhannes Eðvaldsson. -klp- knattspyrnumaður heims, sýndi oft snilldartakta. Ajax fékk hann án greíðslu frá Washington Diplomats. Var í skyrtu nr. 14 sem áður og áhorf- endafjöldinn hjá Ajax jókst um 15 þúsund. Mörgum leikjum var frestað vegna rigningar. Úrslit i þeim sem háðir voru urðu þessi: PEC Zwolle-Tilburg 1—5 Ajax-Haarlem 4—1 Den Haag-AZ ’67 Groningen-Roda PSV-Maastricht Staöa efstu liða. PSV 16 AZ ’67 16 Ajax 16 1— 4 2— 2 2—2 12 2 2 42—17 26 10 3 3 37—17 23 10 2 4 55—26 22 -hsim. Staðan í úrvalsdeild Staðan i úrvalsdeildinni i körfuknattleik eftir leikina um helgina: Njarðvík-KR 100—75 Fram-Valur 79—74 Fram 9 8 1 768—681 16 Njarðvik 9 8 1 748—669 16 Valur 8 4 4 627—613 8 KR 7 2 5 505-559 4 ÍR 8 3 6 587—645 4 ÍS 7 0 7 524—592 0 JOLAFERÐIN er 19. des. krakkarnir í jólafríi og aðeins sex vinnudagar tapast! ' Við bjóðum skioaferoir í beinu Ieiguflugi og opnum um leið nýjar dyr að skíðaparadís Austurrísku alpanna Samvinnuferöir-Landsýn flýgur nú í beinu leiguflugi (án þreytandi millilendinga) í skíðalönd Austurríkis. Pannig lækkum við verð og flýtum för, auk þess sem nýir mögu- leikar hafa opnastá hópafslætti, barna- afslætti, greiðsluskilmálum og annarri fyrirgreiðslu. Við látum yfirhlaðna ferðamannastaði með allri sinni örtröð liggja á milli hluta. „Aðeins þaðallra besta" þótti nógugottog við vonum að farþegarnir verði sammála þeim skíða- sérfræðingum okkar sem völdu Sölden, Zillertal og Niederau. Par er skíðaaðstaða í senn fjölbreytt og spennandi, skíðakennarar á hverju stráí, skiðalyftur í tugatali og síðast en ekki síst einstaklega friðsælt og notalegt. Og þegar skiðabrekkunum sleppir er tilvalið að bregða sér á gönguskíði, fara i æsispenn- andi bobsleðaferðir, leika sérá skautasvellum eða bregða sér í hestasleðaferðir um fallega dalina. Preytan líður siðan úr i sundlaugum og saunaböðum og á kvöldin biða þín fjölmargir veitinga- og skemmtistaðir með ósvikinni Tiróla-stemmningu, bjölluspili og harmonikkuleik. Nú er tilvalið að hóa saman vinum og kunningjum, næla sér í myndarlegan hóp- afslátt og láta drauminn um skíðaparadís Austurríkis rætast í góðra vina hópi. Brottfarardagar: Des. 19. (jólaferð, heimkoma 2. jan.) Jan. 16,30. Feb. 13,27. (heimkoma 13. mars) Verð frá kr. 5.880 Innifalið: Flug til og frá Múnchen, flutningur til og frá áfangastað, gisting með hálfu fæði i tvær vikur og íslensk fararstjórn. Hópafsláttur kr. 500, barnaafsláttur kr. 1.000 Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Góð tíðindi fyrir bókaunnendur ÍSTRÍWOQ FRIÐI Stofnaður hefur verið Bókaklúbbur Arnar og Örlygs hf. og er markmiðið með klúbbnum að gefa út vandaðar og góðar bækur sem seldar verða á mun hagstæðara verði en bækur á al- mennum markaði. Bókaklúbbsbækur verða eingöngu seldar klúbbfélögum. Allir sem eru orðnir lögráða geta gerzt félagar í klúbbnum, og félags- gjöld eru engin. Klúbburinn gefur út fréttablað sem einnig er ókeypis. \\ Notið þetta einstæða tækifæri til þess að auka við bókasafn heimilisins. Gerizt félagar í Bókaklúbbi Arnar og Örlygs og verið með frá byrjun. Klippið út meðfylgjandi miða og sendið til BÓKAKLÚBBS ARNAR OG ÖRLYGS, Síðumúla 11,105 Reykjavík, eða hringið i síma 84866 og látið skrá ykkur i klúbbinn Ég undirrit_ óska hér með að gerast félagi í Bókaklúbbi Arnar og Örlygs NAFN.................'............ HEIMILI .................SÍMI..... PÓSTSTÖÐ..............NAFNNÚMER.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.