Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 26
26 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur veriö í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Tjarnargata 4, neðri hæð, í Njarðvik, þinglýst eign Vals Þorgeirssonar, fer firam á eign- inni sjálfri að kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands Bmmtudaginn 10. desember 1981 kl. 10.00. Bæjarfógetinn i Njarðvík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Heiðarhraun 30 b, 2. hæð til vinstri í Grindavfk, þinglýst eign Sigurðar R. Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Jóns G. Briem hdl. miðvikudaginn 9. desember 1981 kl. 16.00. Bæjarfógetinn i Grindavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið I Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Brekkustigur 37 í Njarðvík, þinglýst eign ísleifs Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. miðvikudaginn 9. desember 1981 kl. 11.00. Bæjarfóggtinn i Njarðvik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið f Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Selsvellir 22 f Grindavík, þinglýst eign Snorra Gestssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., Hafsteins Sigurðssonar hrl. og Tryggingastofn- unar rfkisins fimmtudaginn 10. desember kl. 17.00. Bæiarfóeetinn f Grindavfk. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Miðgarður 2 i Grindavik, þinglýst eign Möskva sf., fer fram á eigninni sjálfri að kröfu , Hafsteins Sigurðssonar hrl. miðvikudaginn 9. desember 1981 kl. 16.30. Bæjarfógetinn f Grindavfk. Nauðungaruppboð annað og sfðasta á fasteigninni Melteigur 20 í Keflavik, þinglýst eign Guð- mundar Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. fimmtudaginn 10. desember 1981 kl. 11.30. Bæjarfógetinn í Keflavfk. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lögbirtingablaöinu á fasteigninni Melabraut 13 i Garði, þinglýst eign Walters Borgars, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl. og fleiri föstudaginn 11. desember 1981 kl. 15.00. Sýslumaðurinn f Gullbringusýslu. Hef opnað lœkningastofu að Háteigsvegi 1 Reykjavík (Austur- bæjarapótek). Sérgrein: hormóna- og efnaskiptasjúkdómar. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 10380 daglega kl. 13-18. Ástráður B. Hreiðarsson iaaknlr Erlendar bækur tíl gjafa - hagstætt verð! Bókabúð Steinars Bergstaðastræti 7 sími 16070 Fimleikahátfð FSÍ var i Laugardalshöllinni i gær og tókst að vanda vel. Þar sýndu yfir 300 manns við mikinn fögnuð áhorf- enda sem voru margir. Þessi mynd er af stúlkum úr Fylki sem sýndu jassleikfimi. Ljósmynd GVA. íþróttir íþróttir Telex-keppnin Ísland-England: ENGLENDINGAR EIGA SIGURINN VÍSAN — Ingi R. hélt upp á af mælisdaginn með sigri gegn Mestel Harðsnúið lið Englendinga virðist ætla að merja sigur gegn íslendingum í 2. umferð Telex-ólympíumótsins, sem fram fór á iaugardag. Eftir 9 klst. tafl- mennsku var 6 skákum lokið af 8 og staðan 3 1/2—2 1/2 Englendingum i vil. Skákir Helga Óiafssonar við stór- meistarann Stean og Magnúsar Sólmundarsonar við James Plaskett fóru I dóm, en útilokað er að íslending- ar nái að jafna metin. Magnús hefur reyndar vinningsmöguleika i sinni skák, en mannlegur máttur fær ekki bjargað stöðu Heiga. Á öllum borðum áttu Islendingai undir högg að sækja, ef miðað er við Eló-stigatölu. Meðaltal skákstiga Englendinga var 2470, á móti 2413 stigum íslendinga. Munaði þar mestu að í íslenzka liðið vantaði margar styrkar stoðir: Guðmund Sigurjónsson, Hauk Angantýsson, Margeir Pétursson og Ingvar Ásmundsson, sem allir voru fjarverandi. 1 liði Englendinga tefldu 4 af 5 stór- meisturum þeirra, einungis Toni Miles var ekki með. Úrslit á einstökum borðum urðu þessi: 1. borð: Friðrik Ólafsson-Nunn 1/2 2. borð: Helgi Ólafsson- Stean biðskák 3. borð: Jón L. Árnason— Speelman 1/2 4. borð: Jóhann Hjartarson- KeeneO—1 5. borð: Ingi R. Jóhannssom Mestell—0 6. borð: Elvar Guðmundsson- Taulbut 1/2 7. borð: Magnús Sólmundarson- Plaskett biðskák 8. borð: Björn Þorsteinsson- DaviesO—1 Ingi R. var liðsstjóri islensku sveitar- innar og svo skemmtilega vildi til að hann hélt einmitt upp á 45 ára afmælið daginn sem keppnin fór fram. í tilefni dagsins færði Dr. Ingimar Jónsson Inga gjöf frá Skáksambandinu og aðra sendingu fékk Ingi skömmu síðar. Það var leikurinn 35. •— Ke6 frá Mestel sem tapaði skiptamun á ákaflega skemmti- legan hátt , svo skemmtilegan að Ingi gat ekki á sér setið og hló dátt þegar honum barst leikurinn í hendur. En sá hlær best sem síðast hlær. Skömmu síðar féll Björn Þorsteinsson á tfma gegn Davies, með erfiða stöðu og Keene vann Jóhann Hjartarson eftir mikinn darraðardans. Skákin var í jafnvægi framan af þar til Jóhann seildist eftir skiptamun og svo fór að Jóhann réð ekki við allarhótanirnarog gafst upp eftir 41 leik. Friðrik og Dr. John Nunn tefldu drottningarpeðsbyrjun og hafði Friðrik ivið betri möguleika framan af. Fn taflið jafnaðistog eftirló leikivar samið um jafntefli. Skák ofanritaðs við Speelman var í jafnvægi allan tímann og eftir 22 leiki var einungis hrókur, biskup og 6 peð eftir hjá hvorum og jafntefli samið. Speelman beitti Caro Kann vörn og sömuleiðis Elvar gegn fyrrum Evrópumeistara unglinga Shaun Taulbut. Þeir sömdu um Skák Jón L. Árnason jafntefli eftir 24 leiki. Reyndar hefði Elvar að ósekju mátt tefla til þrautar, en hann var naumur á tíma. í skákum Helga og Magnúsar sem fór í dóm var teflt svokallað „brodd- gaitarafbrigði” af enska leiknum. Þeir Magnús og Plaskett hermdu lengi eftir Stean og Helga, en svo fór að leiðir skildu. Sérstök dómnefnd mun dæma skákirnar en hún þyrfti að vera mjög hliðholl íslendingum ef nauðsynlegur 1 1/2 vinningur á að nást. Staðan i skákunum er þessi: Svart: James Plaskett Hvitt: Magnús Sólmundarson. Svartur á leik. Eins og sjá má hefur Magnús töglin og hagldirnar og möguleika á að sprengja upp með f4-f5 og b3-b4. En óvíst er hvort staðan nægi til vinnings. Útlitiö hjá Helga er hins vegar öllu ískyggilegra. Hvftt: Michael Stean: Kf3, Hb6, Re3 h2, g3, b3, a4. Svart: Helgi Ólafsson: Ke7, Hb8, Rf6, h7, g5,a5. Hvítur á Ieik og virðist geta unnið annað peð með Hb5 o.s.frv. En gefum afmælisbarninu orðið: Hvitt: Ingi R. Jóhannsson Svart: Mestel Drott ningarpeösbyrj un. 1. Rf3 c5 2. c4 Rf6 3. Rc3 e6 4. e3 d6!? 5. d4 Rbd7!? 6. Bd3 Be7 7. 0—0 0—0 8. b3 b6 9. Bb2 Bb7 10. De2 a6 11. Hfdl Ha7! 12. e4cxd4 13. Rxd4 Uppbygging svarts er í Svíþjóð nefnd „þriggja raða kerfi Ulf Anderssons”, í Danmörku „Gúmíuppbygging” og í Englandi er hún kennd við broddgölt. Svartur hefur trausta stöðu og ef á hann er ráðist gæti hann stungið með d6-d5, eða b6-b5 eftir atvikum. 13. — Db8 14. Bc2 Hfe8 15. Hdel Bf8 16. Hadl Ba8 17. Khl g6 18. a4 Rh5. Svartur leggur ekki út í 18. —d5?! 19. e5 Rh5 20. cxd5 exd5 21. e6!? meði tvísýnni stöðu. Auðvitað gat hvítur vikið drottningunni undan í 18. leik, til d2. 19. Dd2 Re5 20. Rde2 Had7 21. h3 Dd8! 22. Hfl Dh4 23. Bcl! d5 24.cxd5 exd5 25. Dg5 Dxg5 26. Bxg5 Dxe4 27. Bxe4 Bxe4 28. Rxe4 Rd3 29. Rcl! Þennan leik varö Ingi að sjá fyrir er hann lék 23. Bcl — hvítur hefur örlítið betri möguleika í endataflinu. 29. — Hxe4 30. Hxd3 Hxd3 31. Rxd3 f6 32. Bcl Kf7 33. Hdl f5 34. Kgl Rf6 35. Bb2 Ke6?? 36. f3! Hh4 Ef 36. — He2, þá auðvitað 37. Rf4+ og ef 36. — He3, þá 38. Rf4 + Kf7 39. Bxf6 Kxf6 40. Rd5 + og vinnur hrókinn í báðum tilfellum. 37. g3! Hh6 38. Bcl! f4. Ef 38. — Hxh3 þá 39. Rf4+ ogeftir 38. -g5 39. Bxg5 kemur aftur riddara- gafalláf4reitnum. 39. Rxf4+ Kf7 40. Kg2 Nákvæmara er 40. h4! og hrókurinn getur sig hvergi hrært. 40. — g5 41. Rd3 Bdó 42. Rf2 Bc5 43. Bxg5 Hgó 44. Bxf6 Kxf6 45. Re4+ Ke5 H4 Bd4 47. Rg5! Kd5 48. f4 Kc5 49. f5 — og svartur gafst upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.