Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Page 13
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
13
Neytendur
Neytendur
Töluverður verðmunur á leikf öngum:
Fimmtungi dýrara
að verzla þar sem
dýrast er en þar
sem er ódýrast
Töluverður verðmunur virðist vera á
leikföngum í Reykjavík. Það kom í ljós
í könnun sem Verðlagsstofnun gerði
núna í nóvember. Farið var í verzlanir
og kannað verð á 124 hlutum. Mjög
misjafnt var hvað til var af hverjum
þessara hluta í hverri búð, þannig að í
töflu sem stofnunin gerði um afrakst-
urinn er aðeins getið 12 verzlana og 51
hlutar.
Sú niðurstaða sem fyrst er tekið eftir
er að hefðu vörurnar allstaðar verið
keyptar þar sem þær voru ódýrastar,
hefðu þær kostað 8.788,55. Ef þær
hefðu verið keyptar þar sem þær voru
dýrastar, hefðu þær hins vegar kostað
10.393 krónur. Þarna munar 18,2%
eða tæpum fimmtungi. Þetta er að
sönnu töluverður munur en athygli
vekur að hann er minni en munur á
verði matvöru, samkvæmt síðustu
könnun Verðlagsstofnunar. Er þó
álagningámatvöru föst, en frjáls á leik-
föng.
Ef borið er saman verðið í þeirri búð-
inni, sem að jafnaði var með ódýrustu
leikföngin, og þeirri sem var með þau
dýrustu, kemur í ljós að munurinn er
8,2%. Verðlagsstofnun hafði reyndar
ekki ætlað að láta hann uppi, því talið
var að þetta væri einum of nákvæm-
lega útreiknuð tala til þess að geta talist
rétt. En kaupmennirnir óskuðu sjálflr
eftir að þetta væri eigi að síður gert.
Ýmsar skýringar eru gefnar á mis-
munandi verði. Má nefna fyrst þá sem
oftast er gefin, þegar yfirleitt er rætt
um mismun á vöruverði, misgamlar
birgðir. Leikfangasalar mega einnig
velja sér álagningu á hverja vöru og
hafa auðvitað ekki allir valið þá sömu
þótt litlu virðist muna. Gæðamunur á
vörunni er hins vegar enginn, því alls
staðar var kannað nákvæmlega það
sama.
Menn ættu að kynna sér tðfluna sem
hér birtist með, náið, áður en þeir fara
og kaupa leikföng á þessum tíma þeirra
fyrir jóiin. Til dæmis vek ég athygli á
að á verði á Ficher-Price gjafapakka
munar hvorki meira né minna en
83,7% á verði. Algengasti verðmunur-
inn er hins vegar 10—30% og á verði
annarrar Barbie dúkkunnar munar að-
einskrónurúmri.
DS
Óeðlileg hækkun á eggjaverði
FRJÁLSA SAM-
KEPPNM í HÁMARKI
Sigríður Óskarsdóttir hringdi:
„Mig langar að vekja athygli á því
hvað eggjasalar hafa notfært sér mik-
ið að nú eru jól og aðal-bökunartími í
nánd. Ég keypti fyrir viku egg á 42
krónur kilóið. í gær kostaði hins veg-
ar eggjakílóið orðið 52 krónur. Ég
hafði samband við Verðlagsstofnun
og sagði frá þessu. Þar var mér sagt
að því miður væri ekkert við þessu
hægt að gera. Eggjasalar hefðu leyfi
til að hækka verðið að eigin ósk. Að
vísu ættu þeir að sækja um leyfi, sem
þeir ekki gerðu núna síðast. Málið
hefur verið kært til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, en þar liggur það án
þess að nokkuð sé í því gert. Maður-
inn sem ég ræddi við á Verðlagsskrif-
stofu sagði að ekki þýddi neitt að
kæra aftur, þetta yrði að fá að hafa
Raddir neytenda
sinn gang. Ég hef lika heyrt að verð á
eggjum sé mjög misjafnt í búðum.
Virðast því eggjasalar ekki einu sinni
hafa getað komið sér saman i
eitthvert ákveðið verð.
Svar:
Hér mun vera í fullum blóma hin
frjálsa samkeppni. Eitt af lögmálum
hennar er, að þegar eftirspurnin eykst
án þess að framboðið aukist jafn-
framt, hækkar verðið. Egg er eitt af
því fáa sem lögboðið verð er ekki á.
Satt best að segja veit ég ekki hvort
við eigum heldur að gleðjast eða
hryggjast. Við hryggjumst vita-
skuld, þegar verðið hækkar þetta
mikið. En við getum glaðzt, þegar
framboðið er allt í einu meira en eft
irspurnin, því þá lækkar verðið aftur.
Eitt ætti þó að vera víst. Egg verður
ekki að selja eða gefa til útlanda til
þess eins að halda uppi eggjabúskap í
landinu. Frekar er þeim hreinlega
hent, sem sjaldan eða aldrei gerist þó
DS
Þú veist
að við erum
komnir
miðsvæðis
r W
L
FLCITTCIM AÐ
SKIPHOLTI7
og þar geturðu skoðað
ITT
litstjónvarpstæki
gæðanna vegna
LURt
Skipholti 7 símar 20080—26800
GísliKristjánsson: SEXTÁN KONUR
Hér er rakinn ferill og framtak sextán
kvenna í nútímahlutverkum. Starfsvett-
vangur kvenna er alltaf að stækka. Á æ
fleiri sviðum, sem áður voru talin sér-
svið karla, hafa konur haslað sér völl.
Hér segja frá menntun sinni og störfum:
Veðurfræðingur, rithöfundur, læknir,
loftskeytamaður, deildarstjóri í ráðu-
neyti, safnvörður, alþingismaður, fiski-
fræðingur, Ijósmóðir, jarðfræðingur,
íþróttakennari, oddviti, garðyrkjukandi-
dat, félagsráðgjafi og arkitekt. Frásagn-
ir þeirra geisla af starfsáhuga og lífs-
gleði og fjölbreytni efnis er einstök.
Benedikt Gröndal: RIT I
!
Sígilt og skemmtilegt
safnrit.
Benedikt Gröndal er meðal afkasta-
mestu rithöfunda íslenskra að fomu og
nýju og einna fjölhæfastur og fyndnast-
ur þeirra allra. Þetta fyrsta bindi rita
hans hefur að geyma kvæði, leikrit og
sögur, m.a. er hér „Sagan af Heljarslóð-
arorrustu“ og .Þóröar saga Geirmunds-
sonar“, báðar bráðfyndnar og stór-
skemmtilegar. í síðari bindum þessa
safns verða blaðagreinar hans og rit-
geröirog sjálfsævisagan Dægradvöl.
SKUGGSJA BÓKABÚO OUVERS STEINS SE
SKUGGSJÁ
BÚKABÚO OUVERS STEINS SE