Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Page 18
18
Fólk
Fólk
Fólk
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
Fólk
Það er ekki á hverju kvökfí *em fófít dansar i skikkjum að hættí Sesars gamia.
KLÆÐNAÐUR AÐ
HÆJTl SESARS GAMLA
—í Sjallanum á Akureyri
Á dögunum var haldið svonefnt
grískt-rómverkst sk kkjukvöld í
Sjallanum á Akureyri, þar sem sam-
an voru komnir nokkrir tugir manna,
sem áttu það eitt sameiginlegt að vera
klæddir þeim fötum sem tíðkuðust á
tímum Kládiusar og Sesars gamla.
Eins og eðlilegt má teljast ríkti
mikill fornkappablær yfir Sjallanum
þetta kvöld og var greinilegt að fólki
líkaði vel þessi afturför til gamalla
tíma. Á borðum voru vínber, epli og
bananar, sem að sjálfsögðu var rennt
niður með tilþrifum og góðri lyst.
Meðal skemmtiatriða þetta kvöld
var kappát, þar sem fjórir svangir
strákar voru fengnir til að gleypa eins
mikið af ávöxtum og þeir gátu í sig
látið. Og svo var auðvitað dansað
það sem eftir var kvöldsins með þeim
hætti, sem fornköppum var einum
lagið.
Ljósmyndari DV, Guðmundur
Svansson, var að sjálfsögðu mættur á
staðinn og smellti hann nokkrum
myndum af liðinu í þessum fádæma
klæðnaði. -SER
Snótín sú ama nautsín greiniiega vei við vinberja-
átíð.
TÓK UPP PLÖTUNA í SÓF-
ANUM HEIMA HJÁ SÉR
— rætt við bóndann Garöar Olgeirsson, harmónikuleikara
Út er komin nokkuð sérstök
harmónikuplata með Garðari Ol-
geirssyni, bónda í Hellisholtum,
Hrunamannahreppi í Árnessýslu,
sem hann tók upp einn og óstuddur
áð heimili sínu fyrir austan fjall.
Ogsvo...
... er það vísa dagsins. Þessi ku
hafa komið af vörum einhvers verka-
mannsins þegar honum varð litið upp
undir Laugarásinn.
Forríkur er sagt aö só
sá, er byggir þarna.
Honum verður flestað fá
fjandanum þeim arna.
En ekki meira um það.
Af þessu tilefni var slegið á þráð-
inn til Garðars og hann spurður hvað
það væri sem fengi bónda til að skella
sér í poppbransann.
„Þetta er fyrst og fremst gert af
áhuga fyrir harmónikuleik, sem ég
hef gengið með frá unga aldri. í
bernsku nam ég klarínettuleik hérna
heima í héraðinu, en skellti mér síðan
til Reykjavíkur þar sem ég nam
harmónikuleik hjá Karli Jónatans-
syni í 5 ár. Siðan spilaði ég gömlu
dansana í Reykjavík í nokkur ár með
félögum mínum og var um tíma með
eigin hljómsveit sem sérhæfði sig í
gömlu dönsunum.”
En hversvegna tókstu plötuna upp
einn og óstuddur heima í stofu, i stað
þess að fara í stúdíó eins og tíðkast
jafnan nú hin síðari ár?
„Ég hafði bara einfaldlega ekki
efni á því. Það fylgir þvi svo ofboðs-
legur kostnaður að taka plötu upp í
stúdíói, auk þess sem ferðakostnaður
hefði orðið mikill, ef ég hefði ráðist í
það.
Svo er það ekki auðvelt fyrir okkur
bændurna að hlaupast að heiman
vegna peninganna óg þess vegna varð
það að ráði að platan var tekin upp
heima í stofö,. Ég notaðist einungis
við lítið segulb'andstæki og sat í'sóf-
anum heima méð harmónikuna og
spilaði lögin síðan hvert af öðru. Það
var nú allur galdurinn.”
— Hvað viltu segja um stöðu
harmónikuleiks í landinu á þessum
síðustu og verstu tímum?
,,Ég get ekki sagt annað en að
áhuginn fyrir þessu hljóðfæri fari
vaxandi, sem rekja má beint til upp-
gangs hinna fjölmörgu harmóniku-
félaga hin slðari ár. En því er ekki að
leyna, að það eru margir gamlir og
góðir spilarar hættir að spila og fáir
hafa leyst þá af hólmi. En það er von-
andi að úr því rætist bráðlega”, sagði
Garðar.
-SER
„Ég skal máia allan heiminn eisku mamma," segir í einhverju kvæðinu,
en hvort litia stúlkan á myndinni ætíar aó ráðast i svo mikið stórvirki er
ekki vitað.
DV-mynd. Friðþjófur.
Ustamenn,
þóungirséu
Börn eru líka fólk, staðreynd sem
hinir eldri og reyndari vilja oft
gleyma í amstri dagsins. Og oft er
það að þarfir smáfólksins eru mis-
skildar og þeim lítt sinnt í heimi nú-
tímans, þar sem menn hafa vart tíma
fyrir sjálfan sig, hvað þá aðra.
En slíku var ekki fyrir að fara á
menningarvöku þeirri sem ALFA-
nefndin hélt í fyrri viku þar sem
kynnt er líf og list fatlaðra, því þar
fengu börnin sinn bás til að hafaofan
af fyrir sér á meðan fullorðna fólkið
fylgdist með dagskrá vökunnar.
Aðstöðu hafði verið komið upp
fyrir krakkana í einu horni félags-
heimilis Seltjarnarness, en þangað
flutti vakan frá Hótel Borg fyrr í vik-
unni, þar sem þeir gátu föndrað og
málað sín listaverk undir leiðsögn
Sigrúnar Björnsdóttur, listmálara.
En það er óþarfi að orðlengja það.
Myndirnar tala sínu máli.
-SER.
Ekki ber á öðru en að hár sáu fag-
menn á ferðinni.
DV-mynd Friðþjófur.
Og svo voru iistaverkin að sjáff-
sögðu hengd upp jafnnóðum og
þau vorubúin.
D V-mynd Friðþjófur.
Garðar Olgeirsson harmónikuleikari — og að sjátfsögðu með nfítkuna tfí
taks.