Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Side 32
32
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1^81.
Menning
Menning
Menning
Menning
FORMRÆNIR MOGULEIKAR
Undanfarið hefur staðið yfir sýn-
ing að Kjarvalsstöðum á málverkum
eftir Margréti Reykdal, en þetta er
þriðja einkasýning hennar.
Aðgefa ískyn
Þegar litið er yfir sýningu Margrét-
ar er Ijóst að landslagið hér er ekki í
eiginlegum skilningi. Hér er fremur
um að ræða myndsýn sem gefur í
skyn (ákveðnar sögur eða tilfinning-
ar), en lýsir ekki fyrirmyndinni ná-
kvæmlega. Myndverkin sem virðast
standa milli draums og veruleika eru
gerð með malerískri pensilskrift, og í
lifandi hreinum litum, þar sem allt er
gert til að forðast nákvæma útlist-
un á fyrirbærinu, sem fær óskil-
greindan blæ, sem áhorfandinn er
frjáls um að túlka.
í hvernig rými?
En aðalspumingin hjá listakon-
unni virðist þó vera formræn, — eða
i hvernig rými á að tjá þessar draum-
sýnir? Við tökum eftir þvi að lista-
konan leitar fyrir sér og við kynn-
umst hér á sýningunni nokkrum
möguleikum á myndbyggingu.
Fyrst er það heföbundið landslag,
þar sem miöjufjarvídd elur af sér þá
sjónblekkingu sem er vel þekkt í hinu
natúraliska málverki.
I öðru Iagi brýtur listakonan upp
miðjufjarvíddina með því að setja vel
afmarkaðar smámyndir inn á flötinn,
(mynd nr. 10). Myndin fær skemmti-
lega tvöfeldni, þar sem óhorfandinn
skynjar í senn: litlu flatarmyndirnar
og hefðbundið landslag. Þessi mynd-
bygging nær vel að tjá hina ólíku
tíma á myndfletinum.
Hér er um að ræða sterka frásögn:
fólkið, landslagið og mismunandi
tímar (litlu myndirnar) eru vel að-
greindir þannig að áhorfandinn, sem
þrátt fyrir allt hefur frjálsa túlkunar-
möguleika, stendur frammi fyrir
ákveðnu sögulegu ferli;
í þriðja myndbyggingarmöguleik-
anum er persóna sett inn í „loft-
„Hafið” ’81. „Áhorfandanum er tjáð-
ur samruni forma sem er frjálst að
túlka.” Ljósmyndin GBK.
kennda fjarvídd” (perspectif atmos-
pherique) án þess að henni sé gefið
jarðsamband. Formið virðist fljóta
inn í rýminu, en er þó tengt grunnin-
um og umhverfinu með sjálfri pensil-
skriftinni. Formið er þannig rissað
inn í umhverfið. Hér er ekki um að
ræða hið sögulega ferli sem við tók-
um eftir í myndum eins og „Myndir”
Myndlist
Gunnar B. Kvaran
nr. 10, heldur er áhorfandanum tjáð
viss samruni forma (sjór, land
figura), sem honum er frjálst að upp-
lifa og túlka á sinn persónulega hátt.
„Opin kerfi"
Allar formrannsóknir listakonunn-
ar virðast beinast að því að miðla
óraunsærri frásögn. Draumar, minn-
ing og óskilgreindar verur, staldra við
á myndfletinum, blandast og gefa
okkur upplýsingar um persónulega
listsýn listakonunnar. Hér getum við
vart talaö um neitt heimspekilegt
eða frumspekilegt (metaphysique)
Nýjar bækur
Þrautgóðir á
raunastund
13. bindi
Bókaútgáfan örn og örlygur hf.
hefur sent frá sér 13. bindi bókaflokks-
ins Þrautgóðir á raunastund eftir
Steinar J. Lúðviksson, en bókaflokkur
þessi hefur að geyma björgunar- og sjó-
slysasögu íslands. Fjallar 13. bindið
um atburði áranna 1900—1902 að
báðum árum meðtöldum, en auk þess
eru í bókinni viðbætur við fyrri bindi
bókaflokksins. Með bók þessari hefur
sagan verið rekin frá aldamótum fram
til ársins 1958, en fram kemur í formála
bókarinnar að ætfun útgáfunnar sé að
taka síðan til við söguna frá 1958 og
rekja hana fram undir nútímann.
í bókinni er sagt frá ýmsum stórvið-
burðum er urðu á fyrstu árum aldar-
innar. Þannig er t.d. ýtarleg frásögn af
hörmulegu sjóslysi er varð við Vest-
mannaeyjar á uppstigningardag árið
1901; en þá drukknuðu 27 manns þar í
höfninni er bát hvolfdi, og komst
aðeins einn maður lífs af. Þá segir
einnig frá öðru slysi er aðeins einn
komst af, en það var er togarinn Cleo-
patra strandaði við Loftstaði í árs-
byrjun 1901, sagt er frá mannskaða-
veðrinu mikla 20. september árið 1900
og ýtarleg frásögn er af undarlegum ör-
lögum togaraskipstjórans Nilssons,
þess er varð þremur mönnum að bana á
Dýrafirði laust fyrir aldamót.
Þrautgóðir á raunastund er sett,
filmuunnin og prentuð hjá Prentstofu
G. Benediktssonar, en bundin hjá Arn-
arfelli hf. Káputeikning er eftir Pétur
Halldórsson.
INNANDYRA • A HVERFISG0TU 6 I FJ0GUR AR 0G FJ0RA DAGA ^
etta er fyrsta bók höfundarins. Hún er ný- Gamansemi Vilhjálms gægist víða fram. Og
árleg, því enginn íslenskur ráðherra hefir oft er seilst eftir svipmyndum utan dyra þótt
)ur sett saman bók um ráðuneytið sitt. Hverfisgata 6 sé þungamiðja bókarinnar.
ilhjálmur kemur víða við og ræðir m.a. Frásögnin er opinská en laus við alla beiskju.
öðuveitingar, írafár á Alþingi, námsmanna- 180 myndir eru í bókinni.
ssa og kalda stríðið um peningana.
Verð kr. 320.00
ÞJOÐSAGA
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SIMI 13510
Troðfull búð
af glæsilegum töskum
Töskur
og hanskar
eru góð jólagjöf
Fyrir herra:
Ferðatöskur
skjalatöskur
hanskar, belti
og regnhlífar
í glæsilegu úrvali
Sendum í póstkrofu