Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Síða 44
44
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
Nýkomnir
sjúkraskór
NR. 3 BLUE NR. 4 HONEY
KR. 285,- KR- 315,-
NR. 5 CREAM
KR. 315,-
NR. 1 FLAXEN
KR. 285,-
NR. 2 HONEY
KR. 285,-
Opið laugardaginn 12. des. til kl. 18.00.
Kristín Gunnarsdóttir
fótasérfræðingur
ÁLFTAMÝRI 1-5. - SÍMI 31580
| ATH. í HÚSI BORGARAPÓTEKS
Sparibúiö bílinn
fyrir hátíöarnar!
Væri ekki upplagt aö gieöja fjölskyldubil-
inn og notendur hans meö nýjum sæta-
áklæöum, nú þegar jólin nálgast?
Mjúk, falleg og hlý áklæöi i miklu úrvali
fyrir flestar tegundir bifreiöa.
Afar hagstætt verö.
Fást á bensínstöðvum Skeljungs
Heildsölubirgðir:
Skeljungur hf. - Smávörudeild
Síðumúla 33, sími 81722
I gærkvöldi I gærkvöldi
Hvort er mannkynið hryllilega
eða hlægilega heimskt?
Ég fylgdist allvel með dagskrá
ríkisfjölmiðlanna frá þvi klukkan
fimm siðdegis í gær og fram á mið-
nætti. Mér fannst þar margt reglu-
lega athyglisvert, ekki sizt í sjónvarp-
inu, sem ég sá þó aðeins með öðru
auganu, því ég var að sauma með
hinu.
Það sem mér fannst ailra merkileg-
ast var kafli úr frönskum unglinga-
þætti um sögu skipanna. Þessi kafli
fjallaði um sögu kafbátanna, og að
honum loknum langaði mann til að
æpa: hvernig getur mannkynið verið
svona hryllilega heimskt?
Eða hlægilega heimskt. Einhverjir
náungar fara að gera tilraunir með
tunnur sem hægt er að sigla neðan-
sjávar. Þær eru endurbættar smám
saman og í hvert skipti verða allir
ægilega glaðir yfir hugviti mannsand-
ans. Og nú sitjum við uppi með ókjör
af kjarnorkukafbátum sem druslast
fram og aftur um höfin, tilbúnir að
eyða heilum borgum á svipstundu.
Hver ber ábyrgðina? Er það
almenningur með sljóleika sínum?
Eru það kaldrifjaðir fésýslumenn?
Eða eru það misvitrir stjórn-
málamenn?
Inga Huld
Hákonardóttir
Sumir mundu segja stjórnmála-
mennirnir — og nú vildi svo til að í
þættinum Á bókamarkaðnum var
einmitt lesið úr tveim bókum, þar
sem einn litríkasti stjórnmálamaður
aldarinnar kom við sögu, en það var
Jónas frá Hriflu.
Önnur var Stóra bomban (eftir Jón
Helgason ritstjóra) og fjallar um við-
skipti Hriflu-Jónasar og Helga
Tómassonar yfirlæknis á Kleppi, sem
landsfræg urðu. Hin var saga
Menntaskólans í Reykjavík (eftir
Heimi Þorleifsson) og sagði þar frá
hvernig Jónas réði Pálma Hannesson
rektor, yngstan umsækjenda, til að
hleypa lífi í stofnunina, en það vakti
hörkudeilur því Pálmi var langyngst-
ur umsækjenda.
Fannst mér báðar þessar bækur
mundu vera stórskemmtilegar og í
rauninni er þessi jólavertíð fengsæl
fyrir þá sem áhuga hafa á íslenzkum
stjórnmálamönnum, því auk Stóru
bombunnar koma nú þykkar bækur
um Ólaf Thors og Gunnar Thor.
Og svo við snúum aftur að kjarn-
orkukafbátunum þá er það mál sem
íslenzkir stjórnmálamenn hafa þegar
þurft að taka afstöðu til og verður þó
enn meira til umræðu næstu misseri.
JÖLADAGATAL
Volvo F 609 árg. 1976,
lítið ekinn. Selst án palls. Kraftúttak fyrir sturtur. Burðar-
geta 5 tonn. Bifreiðin er til sýnis milli kl. 5 og 6 næstu
daga.
Ellingsen hf.
Ánanaustum. — Sími 28855.
Ljósmæðrafélag íslands
Jólafundur fclagsins verður þriðjudaginn 8.
desember kl. 20.30 i safnaðarheimili Langholts-
kirkju. Stjórnin.
Kvenfólag
Bæjarleiða
heldur jólafund þriðjudaginn 8. desember kl. 20.30 í
safnaðarheimili Langholtssóknar. Munið eftir litlu
jólapökkunum.
C&indindisfékx Skumnma
Bindindisfélag ökumanna
Nú i ár sem undanfarin ár heur BFÖ gefið út jóla-
dagatal, sem dreit er endurgjaldslaust til fólks i
nóvemberlok. Á dagatalinu eru heilræöi til vegfar-
enda i jólaumferðinni, eitt heilræöi á dag.
BFÖ vill bjóða yöur að nota þetta jóladagatal til
að minna á jólin og þær hættur sem fylgja jólaum-
ferðinni.
A myndinni eru f.v. Hdga Kristin Bragadóttir, Ólöf
Halldórsdóttir og Ingibjörg Einarsdóttir hár-
greiöslumeistari.
Hárgreiðslustofan
Meyjan — eigendaskipti
Eigendaskipti hafa orðið á Hárgreiðslustofunni
Meyjunni, Reykjavíkurvegi 62 í Hafnarfirði. Guðný
Gunnlaugsdóttir, hárgreiöslumeistari sem opnaði
stofuna í upphafi þessa árs er nú flutt af landi brott
og eru nýju eigendurnir Ingibjörg Einarsdóttir, hár-
greiðslumeistari og Ólöf Halldórsdóttir. Hár-
greiðslustofan Meyjan mun áfram kappkosta að
veita Hafnfirðingum sem besta þjónustu og býöur
gamla viðskiptavini velkomna . Þess má geta að
Ingibjörg lærði í Hafnarfiröi og starfaði um árabil á
Hárgreiöslustofunni Lokki. Meyjan er, sem fyrr
segir, á Reykjavikurvegi 62, annarri hæð og siminn
er 54688.
Opnunartfmi
verzlana
Eins og á undanförnum árum er hcimilt aö hafa
verzlanir opnar lengur í desembermánuði en í öðrum
mánuðum ársins.
Samkvæmt reglugerð um afgreiðslutíma vcrzlana
og kjarasamningum við verzlunarmenn verður
heimilt að hafa verzlunar opnar fram yfir venjulegan
afgreiðslutíma (sem er daglega frá 9.00—18.00) sem
hér segir:
Laugardaginn 5. des. til kl. 16.
Laugardaginn 12. des. til kl. 18.
Laugardaginn 19. desember til kl. 22.
Á Þorláksmcssu til kl. 23.
Á aðfangadag og gamlársdag ti 1 kl. 12.
AA-samtökin
REYKJAVÍK Kl.
Tjamargata 5 (91-12010) Græna húsiö 14.00
Tjarnargata 5 Græna húsið Enska 19.00
Tjarnargata 5 (91-12010) Græna húsiö
opinn fjölskyldurfundur 21.00
Tjamargata 5 (91-12010) lokaöur uppi 21.00
Tjarnargata 3 Rauða húsið, Hádegisfundur 12.00
Tjarnargata 3 (91-16373) Rauða húsið 21.00
Hallgrímskirkja, Byrjendafundir 18.00
Neskirkja, 2. deild 18.00
Neskirkja 21.00
LANDIÐ:
Akureyri, Sporafundur 21.00
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39 12.00
Hellissandur, Hellisbraut 18 21.00
Húsavik, Höfðabrekka 11 20.30
Neskaupstaður, Egilsbúö 20.00
Selfoss, (99-1787) Sigt. 1, Sporafundur 20.00
Frá Ferðafélagi íslands
Myndakvöld verður haldið að Hótel Heklu, mið-
vikudaginn 9.d es. kl. 20.30stundvislega.
Efni: Tryggvi Halldórsson og Bergþóra Sigurðar-
dóttir sýna myndir úr ferðum F.Í., ennfremur
nokkrar myndir frá Búlgaríu, Sviss og viðar. Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir. Veitingar i hléi.
Þaö er Hjálmari aö kenna, aö ég
keypti þennan voöalega sund-
bol. Hann var alltaf aö segja
mér aö gera þaö ekki.
TIL SÖLU
Bella
° Fundir
Tilkynningar