Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Side 18
18 DAGBLAÐID & VÍSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981. Menning Menning Menning Menning HÓGVÆR EN HEIMILDARÍKUR VITNISBURÐUR ÚR ELDUNUNNI Ólafur Ragnarason ræðir vlð GUNNARTHORODDSEN Útgafandi Vaka 1981 Stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsens snemma árs 1980 er að sjálfsögðu tímamótaviðburður f stjórnmálasögu siðari ára á ísiandi pg ber margt til þess. Hún er að n'okkru vitni um ákveðna stjórnmálaþróun, sem ekki er bundin við flokk Gunn- ars einan, lausn flokkshnúta og nýjar kröfur fólks um frjálsari tengsl við fiokka. Lið flokka er nú í þremum fylkingum — flokksþrælar, flokks- menn og samferðafólk, og mun síð- astnefnda fylkingin liklega orðin stærst. Flokkar eru að verða allt aðr- ar stofnanir eii áður var vegna þessar- ar þróunar í pólitísku lífi. Hér er án efa um að ræða sókn til persónufrels- is. Frá sjónarmiði flokksþræla hvar í flokki sem er var framtak Gunnars svik fordæmt af sumum en fagnað af öðrum. Að flokksmannaskoðuri, mátti hún teljast álitakostur, og að mati samferðafólks pólitískra flokka alveg eðlilegt úrræði. En þótt stjórn- armyndun Gunnai sé hiklaust leiðar- steinn í pólitískri frelsisbaráttu ein- staklinganna hnigu miklu fieiri og margþættari rök að þessum úrslitum, og það er engan veginn rétt að lita á hana sem einangrað fyrirbæri, eða þá einvörðungu sem eðlilega afleiðingu þessarar almennu stjórnmálaþróunar og gliðnunar flokksbanda. Þar kem- ur að minnsta kosti tvennt annað veigamikið til — manngerð og hug- sjónaviðhorf Gunnars sjálfs og sam- lyndi hans og annarra fyrirmanna í Sjálfstæðisflokknum á liðnum ára- tugum. Þegar þetta er skoðað má gerla sjá, að rætur að siðustu stjórn- armyndun liggja miklu dýpra en í yf- irborði umrótsdaganna í upphafi árs- ins 1980. Að mínu áliti veitir samtalsbók Ólafs Ragnarssonar og Gunnars Thoroddsens gild og greinargóð svör við spurningum um þessar djúpstæð- ari rætur málsins fremur en mönnum opnist einhver ný bók um fæðingar- hríðirnar sjálfar þegar stjórnin var í heiminn borin. Hún er mjög skilrik til skilnings á öllum lengri aðdrag- anda. Bókin Valdatafl í Valhöll sem út kom í fyrra veitti töluverða innsýn í fæðingarhríðirnar en miklu minni í aðdragandann og auk þess sem ýms- um fannst sem Gunnar nyti þar varla fyllilegs réttdæmis. Að minnsta kosti kemur það skýrt fram í þessari við- talsbók, að honum þykir hafa verið á sig hallað þar. En víkjum nú að bók- inni. Þetta er ekki ævisaga og raunar er þar ekki margt um einkalíf Gunnars, fræðistörf eða tómstundagaman. Þetta er auðvitað nær einvörðungu pólitísk saga, sett fram í þáttum, samtalsstundum ef svo má segja. Þeir Ólafur og Gunnar virðast hafa tekið sér ákveðnar stundir til spjalls og sett sér fyrir dltekna efnisþætti hverju sinni. Síðan rekur Ólafur það sem þeim fór á milli. Þetta er því samtals- bók um málefni og hluti en ekki ná- kvæm sagaþeirra nema stundum. Fyrsti kafli bókarinnar heitir Sam- bandsslit og fyrsti gusturinn. Hann hefst áþví að Ólafur kveður dyra hjá Gunnari, er ljúfmannlega tekið og síðan fer nokkur útlitslýsing á mann- inum sem „gengur sparibúinn að reiptogi stjórnmálanna”. En maður spyr ósjálfrátt: Hvern fjandann kem- ur þetta manninum við? Hann er lík- lega samur hver sem klæðnaður hans. háralitur eða andlitsdrættir eru. Þaðeitt skiptir máli í þessari lýs- ingu að hann ber aldurinn vel og er enn í fullum færum. „Ekki upp ó pallborðið hjá íhaldsmönnum" Gunnar víkur fyrst spurningarlaust að sjálfstæðismálum þjóðarinnar og segir: „Allt frá því er ég fór að hugsa um þjóðmál var ég eindregið fylgj- andi þeirri hugmynd og hugsjón að íslendingar ættusvo fljótt sem föng væru á að segja upp sambandinu við Dani, taka öll mál í eigin hendur og stofna lýðveldi”. Það þarf ekki aðef- ast um einlægni þessara orða, stjórn- málastörf Gunnars síðan gefa ekki ástæðu til þess. Hann rekur síðan hvernig hann blés þessum anda í nýja stefnuskrá Heimdallar ýmsum eldri íhaldsmönnum til hrellingar. Þá segir hann allgreinilega frá ræðu sinni á norrænu stúdentamóti í Kaupmanna- höfn 1935 þar sem hann lýsti hiklaust vilja íslendinga til sambandsslita og stofnunar sjálfstæðs og óháðs ríkis. Sú ræða varð allfræg og er líklega eitthvert mikilvægasta framlag á þeim árum til þess að sannfæra Dani um, að islendingar mundu þrátt fyrir allt standa saman í þessu máli þegar til skarar skriði. Fram að þeim tíma munu danskir stjórnmálamenn marg- ir hverjir hafa treyst því og trúað að þeir gætu haldið sambandstökum í krafti íslensks sundurlyndis um mál- ið. Þessi ræða hlýtur því jafnan að teljast mikilvægur leiðarsteinn í sjálf- stæðismálinu. Þessu næst er stutt spjall um fyrstu forsetakosninguna og fleira, og þann ágreining sem uppi var í flokki Gunnars um kosningu Sveins Björns- sonar, en hann kveðst hafa stutt Svein og telur að þjóðinni hafi mis- líkað það að þingmenn skyldu ekki geta fylgt einingu þjóðarinnar eftir með því að standa saman um forseta- kjör á lýðveldishátíðinni á Þingvelli. Þegar Gunnar hefur haslað sér stjómmálahólminn með þessum hætti á tveim samtalsstundum létt- ir hann á með því að víkja að ættum sínum og dvelst einkum við Jón Thoroddsen afa sinn og móðurkyn sitt úr Briems-ætt. Þá segir hann lítil- lega frá uppvexti sínum og pólitísk- um rótum, verður þar að vonum tíðrætt um Skúla Thoroddsen og hlut hans að sjálfstæðismálinu. Þegar hann ræðir um „uppkastið” 1908 gerir hann hlut Skúla mikinn að verð- leikum, en mér finnst þó að hann hefði mátt hefja svolítið meira úr- slitamikil áhrif Bjarna frá Vogi. Frelsistmdi og áræði Skúla var auð- vitað sjálfur eldurinn, hyrinn sem lýsti, en Bjarni gerði honum arin eða vafði honum kyndil. Um póli- tísk viðhorf sjálfs sín á un 'um aldri segir Gunnar: „Strax þegar ég fór að hafa af- skipti af stjórnmálum tók stefna frjálslyndis og félagslegra umbóta hug minn. En margt af því sem við ungir menn settum á oddinn, féll ekki í góðan jarðveg hjá hinum eldri og íhaldssamari í Sjálfstæðisflokknum. Þannig hefur það verið alla stund, að sumar skoðanir sem ég hef, hafa ekki átt upp á pallborðið hjá hörðustu íhaldsöflunum”. Af þessum orðum má ráða að Gunnar telji sig i raun hafa verið i nokkurri andstöðu við ráðamikil öfl 1 flokki sinum allt frá öndverðu, og þvi ekki átt þar haldmikla heimilisfesti, ef til vill aldrei átt þar fullkomið hug- sjónaathvarf. Augljóst má vera að Gunnar Thoroddsen stendur ekki á sömu pólitisku stólparótinni og meg- inforysta Sjálfstæðisflokksins alla tíð. Gunnar er runninn upp af tvi- skiptri rót og stendur öðrum pólitísk- um fæti i arfi Skúla en hinum í jötu Hannesar frænda síns Hafstein og gefur það raunar sjálfur í skyn í þess- ari samtalsbók. Færist f jör í leikinn Nú tekur að færast fjör í leikinn þegar Gunnar vindur sér i forseta- kjörið 1952, en Ólafur gefur því eink- unnina „hjaðningavíg” í samræmi við efni málsins. í þeim kafla kemur fátt nýtt fram, né drættir úr djúpinu, en ljósara verður en fyrr að afstöðu Gunnars þar ráða ekki aðeins ná- tengdir við Ásgeir Ásgeirsson heldur toga þar einnig hinar gömlu rætur. Samstöðu þeirra Hermanns og Ólafs Thors um séra Bjarna má i raun kalla „sögulegar sættir”, en það eru álög á því fyrirbæri í íslenskri pólitík að valda ósköpum og heppnast helst aldrei. Svo fór um sjóferð þá og fleiri siðar. Bókmenntir Andrés Kristjánsson í kafla um „viðreisnarbúskapinn” er fátt fréttnæmt. í frásögn Gunnars af þeirri stjórnarmyndum eru það helst ný tiðindi, að Bjarni Benedikts- son „þverneitaði” að taka að sér fjármálaráðuneytið og varð Gunnar því að fara í það ,,vonbrigða”-skarð. Skynugur maður, Bjarni Benedikts- son. Þokan á Mosfellsheiði og í Grafn- ingi á næsta samræðudegi þeirra Ólafs hefur ef til vill kallað fram þá samlíkingu Gunnars að brottför hans úr stóli fjármálaráðherra á miðri ver- tíð hafi verið ráðstöfun til þess að draga sig ,,út úr púðurreyknum” enda viðurkennir hann það hiklaust að hann hafi þá verið farinn að hugsa til forsetaframboðs. Hann nefnir þó tvær ástæður aðrar: þrjátfu ára opin- ber erilstörf og löngun til að ljúka doktorsriti. Ræður og tillögur á landsfundi, sem þarna er skýrt frá, sýna gerla að bæði hann og sam- flokksmenn hans lita þá svo á að hann sé að kveðja flokkspólitik. Gunnar er nokkuð stuttorðum um sendiherrastörfin í Höfn og eru þar þó töluverð frásagnarefni, því að það er alkunna að þeim gegndi Gunnar með miklum ágætum. í púðurreykinn „Forsetakjör með dapurlegum skugga” er einhver athyglisverðasti samtalskaflinn í bókinni og fjallar um forsetakjörið 1%8. Þar galt Gunnar óheppilegra aðstæðna, sem að sumu leyti má kenna þvi hve óvan- ir menn voru því að ganga til þess leiks. Gunnar hlaut verri útkomu en efni stóðu til eða réttlæti gat talist. Hann átti í raun meira fylgi og hefði fengið það ef menn hefðu skilið betur hve þjóðin var og er viðkvæm fyrir því hvernig nálgast ber slíkt framboð. Gunnar fjallar nú um þessi úrslit af mikilli hlutlægni og skilningi og met- ur réttilega flestar meginástæður nið- urstöðunnar. Eina veigamestu ástæð- una finnst mér þó vanta. Hún er sú að mjög margir felldu sig illa við það hve lengi hafði verið unnið að fram- boðinu áður en kallað væri til kjörs. Fólki virtist þetta eins og viðleitni til þess að búa til forsetann fyrir það og þann rétt vildu menn ekki láta taka af sér eða rýra. Þetta varð áreiðanlega afdrifaríkt. Og svo verður auðvitað að hafa það í huga, að „púðurreyk- urinn” var ekki hjaðnaður. Mökkur- inn sást enn úti við sjóndeildarhring- inn, þó að Gunnar væri þá ekki leng- ur í honum. En þetta er allt saman sagan einber. Miklu nákomnari okkur um þessar mundirer afturkoma Gunnarsí ,,púð- urreykinn” og það sem siðan hefur leitt af henni. Um það fjallar allur siðari helmingur bókarinnar, og sú lýsing finnst flestum nú vafalítið for- vitnilegust. Af henni má augljóslega ráða, að myndun núverandi rikis- stjórnar er ekki einvörðungu að minnsta kosti tilþrif upp úr þurru í því skyni að ná völdum, og af löng- um aðdraganda og málefnaágreiningi má sjá að um annað og meira er að ræða. í köflunum um stjórnarmynd- unina rekur Gunnar framvindu mála af skýrleik og hlutlægni að því er best verður séð, en með hliðsjón af því að leiðrétta misskilning eða missagnir sem skotið hafa upp kolli og sýna og sanna að hann hafi ekki gripið í gang mála með óeðlilegum hætti né heldur tekið fram fyrir hendur formanns flokks síns. Eitt lítið atriði virðist þó enn á dálitlu reiki. Það er tímasetning fyrstu umræðu við hann um þennan möguleika — að hann myndaði ríkis- stjórn. Um þetta hafa orðið nokkur blaðaskrif siðustu daga og ber vitn- um sem leidd hafa verið ekki alveg saman við frásögn hans í bókinni um þetta. Menn sem við þessi mál komu i öndverðu telja að þau hafi komist á umræðustig nokkrum dögum fyrr en Gunnar tilgreinir. Skýringin á þessu getur verið sú, að menn hafi rætt um þetta einhverjum dögum áður en það var borið í mál við Gunnar sjálfan, en hann miði hins vegar við það i sinni frásögn. En þetta skiptir auðvit- að engu máli og augljóst er að það fór ekki á flot fyrr en forsetinn hafði gefið þingmönnum frjálsar hendur. Ekki verður annað sagt en samtals- bók þessi sé á margan hátt mjög vel gerð enda samræðumennirnir báðir vel verki farnir. Ólafur er liðlega rit- fær og hefur vald á góðri blaða- mennsku. Þó finnst manni að hann gæti stundum verið haldur tann- hvassari í spurningurri, eggjað þær betur eða fylgt eftir orðum sögu- manns með spurningum til skýringa. Það verður varla sagt með réttu að hann gangi nærri Gunnari. Þá finnst mér það nokkur ljóður hve lítil og ógreinileg skil eru gerð í texta milli spurninga og svara og það liggur ekki ætíð þegar í augum uppi þegar litið er yfir blaðsíðu, hvað er hans og hvað Gunnars. Til þess þarf að lesa ofurlit- ið kringum staðinn. Gæsalappir eru auðvitað hvimleiðar í annarrí hverri línu, en vel hefði farið á að nota hæfilega leturbreytingu til aðskilnað- ar. Þá hefði líka verið hægt að kom- ast hjá orðum sem fylgja spumingum til þess að ekki fari milli mála hvers kyns er. í bókarauka eru ýmis gögn er varða efnið sem um er rætt, svo sem fimmtug stefnuskrá Heimdallar sem sýnir viðhorf í sjálfstæðismálum og félagsmálum þar sem áhrifa Gunnars Thoroddsen gætir. Þá er þar birt ræða Gunnars á stúdentamótinu í Höfn 1935, grein Gunnars úr blaðinu Forsetakjör 1952, kaflar úr ræðu Bjarna Ben. á landsfundi 1965, yfir- lýsing Alberts Guðmundssonar við stjórnarmyndunina 1980, yfirlýsing Pálma og Friðjóns við sama tækifæri og loks stjórnarsáttmálinn í heild. Síðast er nafnaskrá sem er góðra gjalda verð í slíku riti. í fótspor Adenauers? Ég tel að þessi samtalsbók sé góð brúargerð milli Gunnars Thorodd- sens og þjóðar hans og til þess fallin að eyða ýmsum hindrunum góðs skilnings á þeirri leið. Ég þykist vita að margir fagna því að hann skyldi gera svo einlæga grein fyrir sjálfum sér og viðhorfum sínum sem þarna birtast einmitt á þeim tíma sem henn- ar þurfti helst við, en ekki geyma það síðari tíma. Dómar hans um menn og málefni eru oftast svo hógværir, og umburðarlyndi svo mikils ráðandi, að það vekur virðingu og traust. Menn vita vel að slik afstaða er eng- inn leikur þegar staðið er í miðjum eldinum þar sem heitast brennur, þótt það sé og eigi að vera auðvelt, þegar dagur er að kvöldi. Bókin er mikilvægt framlag til skilnings á þeim atburðum sem gerðust fyrstu dagana í febrúar 1980. Ánægjulegt er að sjá að bókstafirnir dr. skuli ekki látnir fylgja nafni Gunnars i bókinni hvenær sem það er nefnt. Það segir líka sögu. Gunnar Thoroddsen segir einhvers staðar í bókinni, að hann geri ráð fyr- ir þvi að hætta alveg afskiptum af stjórnmálum þegar forsætisráðherra- tið hans ljúki, en hann bætir við að ekkert fararsnið sé á sér enn. Ef til vill má líta á það sem áréttingu þeirra orða að síðasta myndin sem birt er þarna er af honum á tali við Konrad Adenauer hinn langlífa kanslara V- Þýskalands. „Kannski Gunnar eigi eftir að feta í fótspor hans,” segir skrásetjari á síðustu blaðsíðunni. Eigi þau orð að rætast dugar ekki einu sinni næsta kjörtímabil. Þetta er óneitanlega bók sem á full- gilt erindi til manna þessi misserin. Gunnar Thoroddsen og Ólafur Ragnarsson virða fyrir sér eitt eintak af bókinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.