Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Qupperneq 25
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981.
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþrótt
íþrótt
Viðar Simonarson — hann var i leikbanni.
Viðar var í leikbanni
Aflurelding úr Mosfellssveit náði sér i Ivö
dýrmæt stig í baráttunni i 2. deild íslandsmótsins i
handknaltleik karla á föstudagskvöldið.
Þar sigruðu strákarnir úr Mosfellssveitinni
Stjörnuna úr Garðabæ 23—20 eftir að hafa verið
12—7 yfir í hálfleik.
Þeir Guðjón Magnússon og Sigurjón skoruðu
mest í liði Aftureldingar en Gunnar Einarsson og
Eyjólfur Bragason voru iðnastir við að skora fyrir
Stjörnuna.
í lið Stjörnunnar vantaði að þessu sinni Viðar
Símonarson fyrrum landsliðsmann og
landsliðsþjálfara úr FH og Haukum. Viðar var í'
leikbanni í þetta sinn fyrir að gefa einum mótherja
mikið „afturendaspark” í síðasta leik Stjörnunnar
þar á undan. Var það spart dýrt, því Viðar hefði án
efa komið Stjörnunni að góðum notum með sína
miklu leikreynslu i þessari viðureign i Mosfells-
sveitinni.
Staðan í 2. deild islandsmótsins í handknattleik
er nú:
Stjarnan 7 4 1 2 1 60—148 9
ÞórVe. 7 4 1 2 140—131 9
ÍR 6 4 0 2 112—106 8
Haukar 5 3 1 1 1 18—98 7
Afturelding 7 2 2 3 1 44—150 6
Týr 6 2 0 4 127—140 4
Fylkir 7 1 2 4 138—163 4
Breiðablik 5 113 91—94 3
Næstu leikir:
Haukar-ÍR á Fimmtudaginn, Þór-Týr á
föstudag og Breiðablik-Stjarnan á laugardag. -klp-
Sigurmarkið á
síðustu sekúndum
Reykjavíkurmelstarar ÍR í handknattleik kvenna
löpuðu fyrir Akranesi í 1. deildinni þegar liðin
mættust á Skipaskaga á föstudagskvöldið.
ÍR var yfir í hálfleik 8—7 og komst siðan í
fjögurra marka forustu í síðari hálfleik. En Skaga-
dömurnar jöfnuðu og skoruðu síðan sigurmarkið
15—14 úr vítakasti þegar nokkrar sekúndur voru til
leiksloka.
Ragnheiður Jónasdóttir skoraði þá en hún gerði 6
mörk í leiknum. Laufey Sigurðardóttir gerði 4 mörk
og Kristín Reynisdóttir 2 mörk. Fyrir ÍR skoruðu
mest þær Erla Rafnsdóttir 4, Ásta Óskarsdóttir 4 og
Katrin Friðriksdóttir 3 mörk.
Staðan í 1. deild kvenna eftir þennan leik er þessi:
FH 6 5 10 106—83 11
Valur 5 4 1 0 87—57 9
Fram 4 3 0 1 79—59 6
Víkingur 6 3 0 3 105—86 1
KR 5 2 0 3 85—76 4
Akranes 6 2 0 4 72—114 4
ÍR 5 10 4 76—90 2
Þróttur 5 0 0 5 63—108 0
Næstu/eikir
FH-Þróttur og Fram-Valur á laugardag og KR-
Víkingur á sunnudag.
ÍS-dömur
í efsta sæti
— í 1. deild kvenna í körfuknaif-
leik eftir sigur yfir ÍR
Einn leikur var í 1. deild kvenna í körfuknattleik
um helgina. ÍS sigraði ÍR 58—36 og tók þar með
forustu í deildinni.
ÍS náði sér í tvö auðveld stig í deildinni í leiknum
þar á undan. Þá mættu stúlkurnar úr Njarðvík ekki
til leiks á móti þeim og ÍS var þar dæmdur sigur 2—
0.
Staðan í deildinni er nú þessi:
ÍS 8 6 2 336—371 12
KR 6 5 1 330—224 10
Laugdælir 6 4 2 327—232 8
ÍR 7 1 6 203—245 2
Njarövík 7 1 6 170—372 2
-klp-
Allt upp á gátt í úrvalsdeildinni
Keppnin í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik opnaðist heldur betur aftur
nú um helgina þegar bæði toppliðin,
Fram og Njarövík, töpuðu sínum leikj-
um.
Fyrirfram var búizt við hreinuein-
vigi á milli þeirra um Íslandsmeistara-
titilinn og nánast skylduverk að leika
leikina um þessa helgi, sem voru sið-
ustu leikir þeirra i fyrri hluta mótsins.
—þegar bæði Njarðvík og Fram töpuðu leikjum sínum nú um helgina
En það fór á annan veg. Islandsmeist-
arar Njarðvíkur töpuðu á laugardaginn
fyrir ÍR í æsispennandi leik 83—84 og
Reykjavíkurmeistarar Fram töpuðu
svo á sunnudaginn fyrir KR í enn
öðrum æsileik 58—60.
Þar með hafa bæði Fram og Njarð-
vik tapað tveim leikjum í deildinni og
fleiri félög geta því farið að blanda sér í
slaginn um titilinn eftirsótta. Bikar-
meistarar Vals eiga tvo leiki i vikunni
— gegn KR og ÍS — og sigri Valsmenn í
þeim eru þeir ekki nema 4 stigum á eftir
Fram og Njarðvík. KR-ingar geta
einnig blandað sér í baráttuna með því
að sigra Val á fimmtudaginn en þeir
verða þá 6 stigum frá þeim efstu og 10
leikir eftir af mótinu.
Báðir leikirnir um helgina voru mjög
harðir, og kvarta menn í körfunni nú
óspart undan því að dómararnir leyfi
orðiö alltof mikia hörku. einn þeirra er
Danny Shouse þjálfari Njarðvíkinga.
„Körfuboltinn hér er farinn að verða
Meistaramir lágu
—Jón Jörundsson skoraði sigurkörfuna þegar 10 sekúndur
voru eftir af leik ÍR og Njarðvíkur í úrvalsdeildinni
ÍR-ingar mættu með nýjan liðstjóra,
gömlu stórskyttuna Agnar Friðriksson,
þegar þeir komu til leiks gegn ísiands-
meisturum Njarðvikur i úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik á laugardaginn.
Agnar stjórnaði ÍR-ingunum þar með
harðri hendi og þeir gerðu það sem
hann sagði þeim að gera. Uppskeran
var lika eins og til var sáð — sigur gegn
meisturunum úr Njarðvikinni.
„Við einsettum okkur að taka ekki
fyrir nema 5 eða 10 mínútur í einu og
missa þá ekki meira en 10 stigum fram
úr. Regla númer eitt var þó að gera sem
fæstar vitleysur og það tókst okkur,”
sagði Agnar eftir leikinn.
Það var allt annað og betra ÍR—lið
sem lék þennan leik en liðið sem tapaði
fyrir „botnliðinu” ÍS tveim dögum
áður og mannskapurinn var þó sá sami.
Bob Stanley lék þarna sinn bezta leik
með IR frá því að hann kom til félags-
ins í haust. Yfirvegaður, ákveðinn og
jafnframt öruggur í skotum. Skoraði
hann 37 stig og þarf góðan mann til að
gera það gegn liði eins og Njarðvík.
Jón Jörundsson stal þó senunni frá
honum í síðari hluta leiksins. Hann
fékk fljótlega 4 villur í leiknum og var
þá tekinn út af. Hann var sendur aftur
inn á undir lokin og var þá hreint út
sagt stórkostlegur.
Hann skoraði 14 stig á þeim kafla og
hélt ÍR-ingunum á floti með því.
Drýgstur var hann þó síðustu tvær mín-
úturnar og staðan 79—79. Danny
Shouse kom Njarðvík yfir, 81—79, en
Jón jafnaði i 81—81. Danny kom
Njarðvík aftur yfir með glæsilegri
körfu, 83—81. Jón fékk boltann undir
körfunni í næstu sókn og brauzt af
miklu harðfylgi í gegn og skoraði.
Gunnar Þorvarðarson braut á honum
um leið — 5. villa hans í leiknum — og
Jón fékk því 1 vítaskot fyrir það að
auki.
Ekki voru nema 10 sekúndur eftir af
leiknum þegar þetta gerðis og pressan
því mikil á Jóni þegar hann tók vítið.
En hann brást ekki sfnum mönnum.
Boltinn rataði rétta leiö og ÍR var þar
með komið yfir 84—83. Njarðvíkingar
höfðu 10 sekúndur til að skora eina
körfu — og sigra þar með í leiknum —
en skot Danny Shouse á síðustu sek-
úndunni rataði ekki réttu leiðina og
sigur IR var þar með staðreynd.
Harka var mikil í leiknum og
mörgum mönnum líka þungt í skapi.
Einn ÍR-ingur, unglingalandsliðs-
maðurmn Benedikt Ingþórsson, var til
dæmis rekinn í bað af öðrum dómaran-
um, Þráni Skúlasyni, snemma í fyrri
hálfleik fyrir „kjaftbrúk”. Eftir leik-
inn dró líka til tíðinda við tímavarða-
borðið, en þar mættu Njarðvíkingar í
hópum og höfðu hátt sumir hverjir.
Ekkert varð þó úr neinu þar nema stór
orð — aðallega í garð dómaranna, sem
alltaf er gott að skella skuldinni á þegar
stjörnurnar 1 uppáhaldsliðinu bregðast
með öllu.
Danny Shouse var áberandi í liði
Njarðvíkur sem fyrr — skoraði 36 stig
þrátt fyrir að hann væri oft grátt leik-
inn af varnarmönnum ÍR. Valur Ingi-
mundarson skoraði 16 stig og Gunnar
Þorvarðarson 13. Bob Stanley skoraði
eins og fyrr segir 37 stig fyrir ÍR, Jón
Jörundsson 21 en næstu menn voru
með þetta 4 og 6 stig hver. -klp-
Brazy skoraði meira
en helming stiganna
—en Framliðið allt skoraði ekki nema 58 stig og KR
sigraöi með tveggja stiga mun, 60 - 58
„Það má vel vera að sumir okkar
hafi haldið að við værum með þetta allt
í hendi eftir að ÍR hafði sigrað Njarð-
vík og því ekki með hugann við það
sem þeir þurftu og áttu að gera i leikn-
um við KR,” sagði Bandaríkjamaöur-
inn í liði Fram, Val Brazy, eftir leikinn
á milli KR og Fram í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gær.
Þar komu KR-ingar heldur betur á
óvart og sigruðu Framara 60—58 í
spennandi leik. „KR-Iiðið spilaði
góðan varnarleik en við vorum líka
ömurlega lélegir. Að ná ekki að skora
einu sinni 60 stig í heilum leik segir
svolítið um það,” sagði Brazy og virtist
ekki taka tapinu neitt illa.
Sóknarleikur Fram var
tekur landi hans, Bob Stanley, á móti honum en hann bar sigurorð af Danny i þessum
leik, skoraði meira en hann og lið hans sigraði þar að auki i leiknum. DV-mynd S.
óvenjuslakur. I fyrri hálfleiknum — 20
minútum — skoraði liðið ekki nema 24
stig.
KR-ingarnir voru þá aðeins betri
eða með 29 stig — og það voru búnar
meir en 25 mínútur af leiknum þegar
Fram tókst loks að komast í 30 stigin!!
Þá voru KR-ingarnir búnir að skora
42 stig, eða 12 stigum meir. Þann mun
tókst Fram að brúa og vel það, þvi liðið
komst yfir 53—52 þegar 4 mínútur
voru til leiksloka. Þá reiknuðu menn
almennt með að KR-ingarnir gæfust
upp því Framliðið virtist vera allt að
vakna ti! lífsins.
En það var ekki aldeilis svo. Hver
dellan á fætur annari var gerð á næstu
mínútu og þegar 3 mínútur voru eftir
var KR komið aftur yfir 60—55. Á
þessum þremur mínútum voru gerð slík
mistök að menn vissu ekki hvort þeir
áttu að hlæja eða öskra á leikmennina.
Dómararnir gerðu ekki síður vitleysur
en leikmennirnir — dæmdu helzt ekki
neitt — og þannig tifaði klukkan
áfram.
Á þessum þrem síðustu mínútum
voru skoruð heil 3 stig og sáu Framarar
um að skora „þau öll”. Var staðan þvi
60—58 KR í vil síðustu mínútuna en þá
náðu KR-ingar boltanum og héldu
honum þar til flautan gall.
Af þeim 58 stigum sem Fram skoraði
í leiknum gerði Val Brazy 32 stig eða
rúmlega helminginn. Hann hitti þó allt
annað en vel, því 14 skot átti hann þar
fyrir utan sem ekki rötuðu rétta leið.
Þorvaldur Gerisson skoraði 12 stig í
leiknum, Guðsteinn Ingimarsson 6 stig
og Símon Ólafsson ekki nema 8 stig.
Hann var í strangri gæzlu hjá Stew-
art Johnson í KR-liðinu og „saltaði”
Stew hann gjörsamlega eins og sést á
skori Simonar. Stew skoraði aftur á
móti 21 stig fyrir KR en 17 skot átti
hann í leiknum sem hann hitti ekki úr
og þykir það ekki neitt sérlega góð nýt-
ingáþeim bæ.
Ágúst Líndal átti enn einn stórleik-
inn með KR. Hann skoraði 17 stig og
var líka mjög góður í vörninni. Jón Sig-
urðsson var með 10 stig. Þeir Garðar
og Bjarni náðu ekki 10 stigum, en voru
aftur á móti geysigóðir i vörninni, sér-
staklega þó Garðar.
-klp-
Haukar héldu
það ekki úf
— þegar þeir mættu Keflvíkingum í
1. deildinni f körfuknattleik karla ígær
Keflvíkingar komu með „fullt hús”
út úr fyrri hlutanum í 1. deildinni í
körfuknattleik. Þeir léku sinn síðasta
leik í þeim hluta — sjötta leikinn af tólf
— gegn Haukum í Hafnarfirði í gær og
sigruðu þar 73:65.
Það var hörkuskemmtilegur leikur
enda mikið í húfi. Haukarnir urðu að
sigra til að hafa möguleika á að komast
upp í úrvalsdeildina. Þeir voru búnir að
tapa tveim leikjum áður og bilið á milli
þeirra og Keflvíkinga því orðið nokkuð
stórt.
Það leit lengi vel út fyrir að þeir ætl-
uðu að verða fyrstir til að taka stig af
Keflvíkingum, því lítill munur var á
liðunum í fyrri hálfleiknum og langt
fram í þann síðari. Þegar 12 minútur
voru til leiksloka var munurinn í stiga-
skorun ekki nema 2 stig, en þá náðu
Keflvíkingar mjög góðum leikkafla og
komust 15 stigum fram úr — 61—46.
Þann mun tókst Haukunum ekki að
vinna upp og urðu að sætla sig við 8
stigatap — 73—65.
Tim Higgins var mjög góður í liði
ÍBK og áttu Haukarnir i hinum mestu
vandræðum með hann. Skoraði Tim 40
stig en Viðar Vignisson kom næstur
honum með 14 stig. Hjá Haukum var
Webster stigahæstur sem fyrr — skor-
aði 21 stig. Hálfdán Markússon var
með 18 stig og Pálmar Sigurðsson 15
stig. -klp-
eins og handboltinn sem þið leikið —
ekkert annað en pústrur og hrindingar.
Ég cr dauðhræddur um að verða stór-
slasaður í hverjum leik sem ég tek þátt f
en það á ekki að þekkjast að körfu-
knattleiksmaður þurfi að hugsa
þannig.”
Kolbeinn Pálsson liðsstjóri KR-ing-
anna var á sama máli og Danny. „Þetta
er orðin miklu meiri harka í körfunni
núna en þegar ég var að leika. Að vísu
hefur reglunum aðeins verið breytt —
varnarmanninum í hag — en þetta er
orðið of mikið af því góða hér hjá
okkur. Dómararnir verða að tala sig
saman og samræma þetta hjá sér áður
en illa fer.”
Staðan í úrvalsdeildinni eftir leikina
um helgina er nú þessi:
Fram
Njarðvík
Valur
KR
ÍR
ÍS
10 8 2 826—741
10 8 2 831—753
4 627—613
5 663—693
7 758—827
8 699—777
8 4
9 4
10 3
9 1
-klp-
LENSVANN4-2,
TEITUR SK0RAÐI
—og Laval sigraði á útivelli
„Þetta var áy.ætur sigur á útivelli Staðan er nú þannig:
gegn Auxerre. Niton bakvörður skor-
aði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu
fyrir Laval. Ég var varamaður að þessu
sinni, kom inn á lokakaflann. Leikinn
varnarleikur 4—4—2. Teitur Þórðar-
son kom einnig inn sem varamaður hjá
Lens og skoraði eitt af mörkum liðsins í
4—2 sigrinum á Tours,” sagði Karl
Þórðarson þegar DV ræddi við hann í
gær.
Heil umferð var í 1. deildinni
frönsku um helgina. Úrslit urðu þessi:
Paris SG—Metz 2—0
Auxerre—Laval 0—1
Brest—Bastia 2—0
Nice—Lyon 0—0
Lens—Tours 4—2
Nantes—Montpellier 7—0
Sochaux—Monaco 1—4
Nancy—Lille 1—1
St. Etienne-Strasbourg 2—0
Valencien-Bordeaux 0—1
St. Etienne 21 13 5 3 45—18 31
Monaco 21 14 2 5 46—22 30
Bordeaux 21 11 7 3 34—22 29
Sochaux 21 10 7 4 34—26 27
Paris SG 21 10 5 6 35—22 25
Laval 21 8 8 5 25—24 24
Brest 21 8 8 5 30—31 24
Nancy 21 8 6 7 32—27 22
Lille 21 8 6 7 33—30 22
Nantes 21 8 5 8 31—24 21
Lyon 21 9 3 9 19—19 21
Bastia 21 7 6 8 29—39 20
Tours 21 8 3 10 32—32 19
Strasbourg 21 6 5 10 23—26 17
Valencien 21 6 4 11 23—37 16
Auxerre 21 5 6 10 18—38 16
Metz 21 2 11 8 16—24 15
Montpellier 21 5 5 11 19—37 15
Lens 21 5 4 12 23—36 14
Nice 21 3 6 12 19—34 12 -hsim.
igjöfin
áungu
dömunu
Litir: hvitt, blátt eða vinrautt
Peysakr. 190,50
buxur kr. 98,00
Trefillkr. 73,50
Stœrðir: 10 12 14
PÓSTSENDUM
W
n
LAUGAVEGI61. SiMI 22566
AEG
UOLA
GJAFIR
Nú getum við boðið AEG smátæki á sérstaklega hagkvæmu verði
vegna lækkunar erlendis. Notið tækifærið og kaupið jólagjöfina strax.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
XJNBANFARIN ÁR
HAEA HAPPY HÚSGÖOHVERIB MJÖG
VTNSÆL JÓLAGJÖF
... Og það ekki að ástæóulausu. Happy eru falleg og vönduð húsgögn sem uppfylla allar þær kröfur sem ungt fólk ger-
ir til húsgagna. Hægt er að byrja smátt, t.d. með skrifboröi og bæta síðan við smám saman t.d. svefnbekk, fataskáp eða
bókahillum. Happy býður upp á óteljandi möguleika og flestir finna eitthvað við sitt hæfi í Happy kerfinu. Og síðast en
ekki síst... HAPPY KOSTAR MINNA EN ÞIG GRUNAR.
rifeyjili HUS/Ð
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfiröi. simi 54499
AKUREYRI: Örkin hans Nóa, EGILSSTAÐIR: Verslunin Bjðrk, SAUÐÁRKRÓKUR: Húsgagnaverslun Sauðárkróks, ÓLAFSVlK: Verslunln Kassinn,
IVESTMANNAEYJAFÚÞorw^