Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Page 45
DAGBLAÐIÐ&VlSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981.
45
Matthildur Hannesdóttir lézt 5.
desember 1981. Hún var fædd 18.
október 1898, dóttir hjónanna Hannes-
ar G. Kristjánssonar og Einbjargar
Þorsteinsdóttur, þau eignuðust sex
börn. Matthildur nam ljósmóðurfræði
og gerðist síðan ljósmóðir í uppsveitum
Borgarfjarðar en síðar starfaði hún við
hjúkrun. Matthildur verður jarðsungin
í dag frá Fossvogskirkju kl. 13.30.
EIis Bergur Þorsteinsson frá Laxárdal,
Álftamýri 12 Reykjavík, sem andaðist
2. desember sl., verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag, 14. desember, kl.
15.00.
Fjóla Matthiasson, Birkiteig 18 Kefla-
vík, lézt í Landspítalanum 10.
desember.
Guðmundur H. Jóhannsson, Kambs-
vegi 34, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 15. desember
Aðalfundur
pöntunarfélags
Náttúrulækningafólags
Reykjavíkur
verður haldinn mánudaginn 14. desember kl. 21 að
Laugavegi 25.
Jólamarkaður
Goðatúni 2
Við Hafnarfjarðarveg i sömu byggingu og Blóma-
búðin Fjóla. Opið alla daga vikunnar frá kl. 13.00.
Andlát
kl. 15.
Ingibjörg (Didí) Ingvarsdóttir, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 14. desember kl. 16.30.
Ingveldur Teitsdóttir, Skúlagötu 13
Borgarnesi, lézt 12. desember.
Rósbjörg Beck verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 16.
desember kl. 13.30.
Siguröur Jónsson, Bústaðavegi 69
Reykjavík.andaðist í Borgarspítalanum
10. desember.
Tyrfingur Agnarsson, Bræðraborgar-
stíg 22, verður jarðsunginn í dag, 14.
desember, kl. 13.30 fráHáteigskirkju.
Tilkynningar
Næsti fræðslufundur Fugla-
verndarfélags íslands
verður haldinn i Norræna húsinu þriðjudaginn 15.
desember 1981 kl. 8.30.
Fundarefni: 90 minútna mynd um Galapagoseyj-
arnar í Kyrrahafi, um fugla og dýralíf þar.
önnur mál.
öllum heimill aðgangur. Stjórnin.
Félagar úr Alþýðuleikhúsinu
í jólasveinabúning
Eins og undanfarin ár fara nú félagar úr Alþýðuleik-
húsinu aftur á kreik i jólasveinaklæðum. Þeir hafa
samið og æft að undanförnu prógramm með ýmis-
konar sprelli og uppátækjum. Ef fólk hefur áhuga á
að fá jólasveinana á jólaböllin sín getur það leitáð
frekari upplýsinga í simum 19567 og 20050. Jóla-
sveinarnir senda öllum sínar beztu kveðjur.
Ég þarf ekki að fá þessa bók
lánaða. Ég frétti að hún yrði
sýnd I sjónvarpinu i næstu viku.
Um helgina Um helgina
„VID GETUM BARA
SLEPPT ÞESSU”
Þótt ég meti ríkisfjölmiðlana mest
fyrir fréttir og fróðleik, sem útvarpið
flytur án afláts mestallan sólarhring-
inn og sjónvarpið fjörgar svo með lif-
andi sýningum atburða, má nota
margt fleira af þessum vettvangi. Oft
er það þó raunar færra en fleira, sem
fellur að mínum smekk, eins og
gengur, enda er almennt efnisval
rfkisfjölmiölanna sniðið við ,,eitt-
hvað fyrir alla” og misjafnlega tekst
að raða niður.
Frá helginni er fátt efirminnilegt.
Útvarpið er úr öllum skorðum vegna
óstöðvandi auglýsingalesturs, og er
það þó ekki vant að virðingu sinni
hvað snertir timamörk á dagskrár-
efni. Það er því úr þessari sögu, nema
fréttirnar. Þáttur Ómars Ragnars-
sonar í sjónvarpinu, Stiklur, var að
venju lifandi og að ýmsu leyti vel
gerður. Landlýsingar Ómars eru oft
frábærar og fundvísi hans á athyglis-
vert efni er viðbrugðið. „Loks er
spurt” hétu endalokin á spurninga-
þætti sjónvarpsins, og var þátturinn
nú loksins orðinn sæmilega slípaður.
Var að honum allgóð skemmtun og
mátti ekki seinna vera.
Fréttir í útvarpi og sjónvarpi ganga
í byigjum, sem fara greinilega jafnt-
eftir dugnaði fréttamanna og sveifl-
um í viðburðum. Fréttirnar eiga það
því jafnvel til að verða að engu. Þessa
helgi voru þær rétt í meðallagi.
Annars hef ég mestar áhyggjur af
íþróttafréttunum, sem falla mjög að
sumum hugðarefnum mínum. Hjá
útvarpinu eru þær málamyndaliður,
sem er greinilega undir kaflaheitinu:
„Við getum bara sleppt þessu”.
Framhaldssyrpurnar í iþróttaþætti
sjónvarpsins eru einnig oft vísbend-
ing um vandræðaefni. Bæði í útvarpi
og sjónvarpi er úr hófi kastað til
höndunum við flutning innlendra
iþróttafrétta. Þar þyrfti að gera
bragarbót.
Herbert Guðmundsson.
Afmæli
90 ára er i dag Valdemar Jónsson i
Álfhólum, Vestur-Landeyjum.
Valdimar verður að heiman í dag.
75 ára er i dag, 14. desember, Þor-
grímur Hermannsson, bátasmiður á
Hofsósi.
Mánudagur
REYKJAVÍK
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsiö kl. 14.00
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsiö kl. 21.00
Tjarnargata 5 (91-12010) Græna húsiö. Kvennadeild
uppi kl 21.00
Tjarnargata 3 (91-16373 . Rauða húsiö kl. 18.00
Tjamargata 3 (91-16373). Rauðahúsið kl. 21.00
Langholtskirkja (opinn) kl. 21.00
LANDIÐ
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39 kl. 21.00
Dalvík, Hafnarbraut 4 kl. 21.00
Hafnarfjörður, Austurgata 10 kl. 21.00
Hvammstangi, Barnaskóli kl. 21.00
Mosfellssveit, Brúarland kl. 21.00
Raufarhöfn, Hótel Noröurljós kl. 21.00
Selfoss, (99-1787) Sigtúnum 1 kl. 21.00
Suðureyri Súgandafirði, Aðalgata kl. 21.00
Vestmannaeyjar, (98-1140) Heimagata 24 kl. 20.30
Ferðafélag íslands
Áramótafcrö í Þórsmörk 31. des.—2. jan.; brollför
kl. 07.
Gönguferðir eftir þvi sem birtan leyfir, áramóta-
brenna, kvöldvökur. Ef færð spillist svo, að ckki
yrði unnt að komast i Þórsmörk, verður gist í Hér-
aðsskólanum að Skógum.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, öldu-
götu 3.
Afsökun
Opið bréf Jóhönnu Birgisdóttur
blaðamanns til Sverris Haraldssonar
læknis birtist hér í blaðinu á laugardag-
inn fyrir mistök. Við hörmum þau og
biðjumstá þeim afsökunar. -Ritstj.
KVIKMYNDAMARKAÐURINN
VIDC0 • TÆKI • FHMUR
SKÓLAVÖRÐUSTtG 19 (KLAPPARSTtGSMEGIN) - SiM116490.
FATABREYTINGAR
Breytum og lagfærum fatnaðinn á alla fjölskylduna.
Lagfærum einnig mokkajakka og -kápur.
Buxumar með víðu skálmunum eru komnar úr tízku.
Ath. Það er hægt að gera þær sem nýjar.
Fataviðgerðin
Drápuhlíð 1.
Ýmislegt
Fundir
ÉíbIWpMí
Þettá er önftur hljómplata hans í sevintýraflohknum. í
fyrra kóm ót wSóng0evintýrið“ me5 eevintýrunum um
Rauðhettu og Hans & Gétu §em geröj stormandi lukku
hjáyngri kynslóðímii,
Nú eru ELDFÆRIN komin á markaö, og ekki minnkar
spennan. Flytjendur eru m.a. Gylfi Ægisson, Hermann
Gefið eftírminnílega sióf gggg~vintýri
■ í Öllum hljómplotuverálunum.
Dreifing
sloinorhf
Utgefandi
ONG'pFT--H
? jí.jp' plli Py i J y § ik BPm
&}laÍisogGnlta
'
•^ ‘sV ___ jÉrjjult. Tlr!' 1