Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1981, Blaðsíða 29
37 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981. I gærkvöldi Með þokkalegra móti... Dagskrá útvarps var með þokka- legra móti í gærkvöld og raunar skemmtileg á köflum. Mér þykir þó þættinum þeirra Sigmars og Arnþrúðar, Á vettvangi, hafa hrakað nokkuð að undanförnu. Oft hafa verið þar á ferðinni skemmtilegar og vel útfærðar hugmyndir, en nú upp á síðkastið hefur þeim fækkað verulega. Og langlokur um ferðir flugfélaganna finnast mér varla eiga heima í svona þætti. Þar kemur til kasta fréttastofu. Aftur á móti virðist leikritagerð í útvarpi vera að færast til betri vegar. Undanfarin ár hefur verið sparað mikið, of mikið, við gerð leikrita. Leikendur hafa verið þetta tveir, þrír í hverju verki. í gærkvöld kvað við annan tón. Þá fengu útvarpshlust- endur að heyra marga ágæta leikara í bráðfjörugu leikriti. Efni þess var ef til vill langt fyrir utan og ofan allan veruleika. En hvað gerir það til? Kvöldstundin hans Sveins Einars- sonar stendur alltaf fyrir sínu. Og gaman er að fylgjast með ferðalagi Jónasar Guðmundssonar, ásamt „vísitölufjölskyldu” um bakka Rínar. Þetta eru þættir, sem vert er að hlusta á. Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Andlát Guðrún Aðalbjörg Richter Stefáns- dóttir lézt 8. desember 1981. Hún var fædd 21. maí 1921. Guðrún var yngst 10 systkina. Hún giftist Gunnlaugi Guðmundssyni og stofnuðu þau heimili á Akureyri en fluttu til ísa- fjarðar 1943. Til Keflavíkur fluttu þau árið 1971 og síðast var heimili þeirra hjóna Lyngmóar 7 í Ytri- Njarðvík. Guðrún og Gunnlaugur eignuðust fimm börn. Hún var jarðsungin í morgun, 18. desember, frá Fossvogskirkju kl. 10.30. Guðrún Sigurgeirsdóttir, Brautarholti 5 Ólafsvík, lézt 9. desember 1981. Hún var fædd á Eyrinni á Arnarstapa 16. maí 1895. Foreldrar hennar voru hjónin Steinunn Vigfúsdóttir og Sigur- geir Árnason. Þau eignuðust sex dætur og var Guðrún elzt þeirra. Hún giftist Guðbrandi Jóhanni Guðmundssyni. Þau eignuðust sex börn, fimm syni og eina dóttur, en elzta soninn misstu þau í bernsku. Guðrún verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju í dag kl. 13.30. Anna Jónsdóttir Reiners hjúkrunar- kona, sem lézt í Borgarspítalanum 15. desember, verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju laugardaginn 19. desemberkl. 11. Ásgeir Jóhannsson frá Kálfholti and- aðist að kvöldi 15. desember að heimili sínu, Mánavegi 5 Selfossi. Fjóla Matthíasson, Birkiteigi 18 Kefla- vík, verður jarðsungin frá Keflavíkur- kirkju laugardaginn 19. desember kl. 14. Guðrún Aðalheiður Benediktsdóttir frá Torfustöðum, Heiðargerði 104 Reykja- vik, er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Markrún Felixdóttir, Mjósundi 3 Hafnarfirði, andaðist St. Jósefsspítala þriðjudaginn 15. desember. Sigurður Hannesson, Stóru-Sandvik, Flóa, sem varð bráðkvaddur að heimili sínu 11. desember sl., verður jarðsung- ien frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 19. desember kl. 14. Sverrir Sigurðsson kaupmaður, Lind- arbraut 45 Seltjarnarnesi, er látinn. Afmæli 70 ára er f dag, 18. desember, Júlíus Jóhannsson frá Siglufirði. Hann er til heimilis að Þórufelli 12. Viðunandiskamm- fímasamningur — segir Þórhallur Slæm villa slæddist inn í tilvísun í kjallaragrein Þórhalls Halldórssonar í blaðinu í gær. Stóð þar að greinar- höfundur teldi skammtímasamning BSRB og ríkisins „óviðunandi” en átti að vera „viðunandi” eins og glöggt kemur fram í greininni. ^jARAKJöj? ÓLAFUR HAUKUR SÍMONARSON skrifar bók sem er skráning alls í senn: Leitar skáldsins að óvininum sem œtlar að tortíma heiminum í kjarnorkustyrjöld, hversdagslega skáldlegs lífs í Reykjavík, vonar, vonleysis og ótta, tilhlökkunar og eftirvœntingar verðandi föður. Frásögn full af ádeilu og skopi, fleyguð Ijóðum og hversdagslegri lífsspeki. ALMANAK JÓÐVINAFÉLAGSINS Ijóðsaga eftir ÓLAF HAUK SÍMONARSON Máll^log menning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.