Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Side 1
135. TBL. 72 og 8.ÁRG. FÖSTUDAGUR18. JUNÍ1982.
fijálst, óháð dagblað
Gamla Heydalakirkjan brann tilgrunna ígærdag:
GRUNSEMDIR ERU
UPPIUM ÍKVEIKiU
—Einn maður handtekinn, hefur ekki játað verknaðinn
Um klukkan 3 í gærdag kviknaði í
eldri kirkjunni í Heydölum í
Breiðdalshreppi og brann hún til
grunna á skammri stundu. Slökkvi-
bíll kom fljótt á staðinn en kirkjan
var þá alelda og varð ekki við neitt
ráðið. Kirkjan var tæplega 130 ára
gömul, byggö árið 1856, en hafði ekki
verið í notkun frá árinu 1976 er ný
kirkja var vígð á staðnum. Gamla
kirkjan var í eigu Þjóminjasafnsins.
Grunur leikur á að um íkveikju
hafi verið að ræða þar sem rafmagn
var ekki tengt við kirkjuna. Lögregl-
an handtók í gær Helga Hóseasson
húsasmið úr Reykjavík en hann var
þá staddur á Breiðdalsvík hjá bróður
sínum, sóknarprestinum. Var hann
fluttur til Reykjavíkur og er í vörzlu
lögreglunnar. Játning liggur ekki
fyrir.
Að sögn Þórs Magnússonar þjóð-
minjavarðar var í kirkjunni
prédikunarstóll og altari, jafngamalt
byggingunni, og tvær gamlar kirkju-
klukkur, báðar að líkindum frá 17.
öld. Á aðra klukkuna var steypt
ártalið 1672.
Sagði þjóöminjavörður að mikil
eftirsjá væri að þessum gripum svo
og kirkjunni sjálfri sem hefði þótt
mjög falleg bygging á sinum tíma.
Hún hefði að vísu verið illa farin, en
inýlega sett á fornleifaskrá og fyrir-
hugað aö - gera hana upp á næstu
árum. ÖEF
MA útskrifaði 116 nýstúdenta
ÚtskríftnýstúdontB frá MenntaskóJanumá Akureyrihefur verið fastur tiöur Selma Hauksdóttir sem var „duxinn"6 stúdentsprófimeð 9,55iaðaleink-
ihátiðarhöidunum þar ibm iáratugi. Hór má sjá nokkra hressa stúdenta úr unn.
hópi 116 nýstúdenta aó loknum skólaslitum igær. Á innfelldu myndinni er (DV-mynd GS/Akureyri)
Tryggvi Gíslason skólameistari sleit
102. skólaári Menntaskólans á
Akureyri í Akureyrakirkju í gær þegar
hann hafði útskrifað 116 nýstúdenta frá
skólanum.
Tæplega 700 nemendur voru við
Menntaskólann á Akureyri í vetur, þar
af um 120 öldungadeild. Af þeim út-
skrifuðust aðeins 3 stúdentar. Sagði
Tryggvi Gíslason, að einungis 40%
þeirra sem létu innrita sig í öldunga-
deild lykju prófi.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut
Selma Hauksdóttir, 1. ágætiseinkunn
9,55. Fékk Selma bókaverðlaun fyrir
frábæran námsárangur í ensku,
dönsku, þýzku og frönsku.
„Starfið í vetur hefur gengið mjög
vel en ný námsskrá og nýjar reglur um
lágmarkseinkunnir hafa gert okkur
erfitt um vik,” sagði TryggviGíslason
skólameistari í stuttu spjalli við DV aö
lokum skólaslitunum. Sagöi hann aö
ástæða væri til að breyta reglum á
þann veg að gleggri munur yrði gerður
á bóklegu námi og starfsnámi sem
veitir lögvemduð starfsréttindi.
GS/Akureyri
Evrópuþing Kiwanis í Reykjavík:
Þátttakendur á sjötta hundrað
Evrópuþing Kiwanishreyfingar-
innar hefst í Reykjavík í dag. Þingið
sækja um 550 manns, þar af helming-
ur erlendir gestir.
Síðdegis í dag munu þingfulltrúar
sitja boð borgarstjómar að Kjar-
valsstööum en formlega verður þó
þingið ekki sett fyrr en í Háskólabíói
í fyrramálið. Mun Reinhold Grazt,
forseti Evrópusambands Kiwanis,
flytja setningarræðuna.
Sérstakt pósthús verður opið í Há-
skólabíói á morgun. Póst- og síma-
málastjórnin hefur látið gera sér-
stakan póststimpil í tilefni þingsins
og verða umslög merkt þinginu til
sölu á staðnum. Þá verður gefinn út
minnispeningur í tilefni þingsins.
Evrópuþinginu lýkur svo á sunnu-
dag. -KÞ
AnnaKolbrún
Jónsdóttirerá
fóstudags-
myndinniídag
— sjá bls. 2
Hátíðarhöldin
17. júní:
Mikil þátttaka
ogfáóhöpp
Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík fóru hátíðarhöldin
í miðbænum óvenju vel fram.
Mjög mikill mannfjöldi var
samankominn í bænum og
var þama fólk á öllum aldri,
enda veður mjög gott. ölvun
var ekki tiltakanlega mikil og
urðu engin meiri háttar slys á
fólki. Flestir voru famir heim
um fjögurleytið. Starfsmenn
borgarinnar voru mættir um
fimmleytið til aö hreinsa til
en umgengni var ekki verri
en um venjulega helgi.
Frá öðrum stöðum á land-
inu berast þær fréttir að há-
tíðarhöld þjóðhátíðardagsins
hafi farið vel fram. Víöast
var veður gott og þátttaka
góö i hátíðarhöldunum.
-JGH
— sjábls8—9
Galtierisagði
afsérínótt
— sjá erlendar
fréttir
bls. 10-11