Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR18. JUNt 1982. Til sölu Chevrolet Blazerpickup árg. 77 Allur nýupptekinn, m.a.: sjálfskipting, millikassi, hösingar. Allur ný- sprautaður að utan sem innan, hækkuð sæti, upphækkaður á nýj- um, breiðum dekkjum og felgum. Bíll í sérflokki. Uppl. i síma 85040 á daginn og 35256 á kvöldin. Fyrstu tölur í birtastíDV á mánudag, 21 júní Tryggiö ykkur Bingo blokk i tíma Útlönd Útlönd Útlönd Beirút verður „Stalíngrad arabanna”: SLAGURINN ER BARA AÐ BYRJA —segir Yasser Arafat, leiðtogi PLO, um átök ísraelsmanna og Palestfnuskæruliða íBeirút Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínumanna, PLO, seg- ir að slagurinn um Beirút sé bara aö byrja og að skæruliðar muni gera hana að ,,Stalíngrad arabanna”. Þessi boðskapur Arafats var opin- beraður af palestínsku fréttastofunni Wafa í gær á sama tíma og stjórn- málamenn reyndu að koma í veg fyr- ir bardaga í Beirút á milli skæruliða og hersveita Israelsmanna sem sitja um borgina. Talið er að um sex þúsund liðs- menn PLO séu nú umkringdir af ísraelsmönnum í suður- og vestur- hluta Beirútborgar. Tilraunir til lausnar deilunni tengj- ast nú einkum stofnun sérstakrar neyðarþjóðstjórnar, sjö pólitískra leiötoga sem Elias Sarkis, forseti Líbanons, hefur útnefnt. Stjórn þessi hefur þó ekki komið saman til fundar ennþá einkum vegna andstöðu eins af stjórnar- mönnum, Walid Junblatt. Hann er leiðtogi vinstri þjóðarhreyfingarinn- ar sem er í bandalagi við PLO. Junblatt, sem í gær átti bæöi viðræður viö Sarkis og Habib, sendi- mann Bandaríkjastjórnar, vill að þjóðstjómin verði útvíkkuö. Israelsmenn bíða nú tilrauna Bandaríkjastjómar til að fá skæru- liða til að leggja niöur vopn. I því sambandi er einkum rætt um þann möguleika að Palstínumenn lúti stjóm stjórnarhersins í Líbanon og afhendi honum vopn sín. :íí:í>:'íS':v:^ AFSTAÐA REAGANS VELDUR VONBRIGDUM Sú afstaða Reagans Bandaríkjafor- seta aö koma ekki til móts viö loforð Sovétmanna um að þeir verði ekki fyrstir til að beita kjamorkuvopnum hefur valdið vonbrigðum meðal margra sendifuiltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum. Nokkur léttir var þó fyrir þessa sömu aöila að heyra loforð Reagans um að stjóm hans—sem aldrei hefur þótt sérstaklega hlynnt Sameinuðu þjóðunum — muni halda áfram aö greiða 25 prósent af kostnaðinum við stofnunina. „Fjárhagsstuðningur Bandaríkj- anna hefur ekki og mun ekki minnka,” sagði Reagan á hádegisverðarfundi sem hann átti með Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna,ígær. Margir fulltrúar hjá Sameinuðu þjóðunum vonuðust til að Reagan kæmi með markvert innlegg í afvopn- unaramræöuna er hann heimsótti aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í gær. I ræðu sinni kom Reagan ekki á neinn hátt á móts við nýlegt loforö Sovétmanna um að þeir verði ekki fyrstir til að beita kjarnoricuvopnum. Hann endurtók í þess stað ýmsar þær Alexander Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Menachen Begin, forsætisráðherra Israels, munu hittast í New York í dag. Þeir munu leitast við að finna leiðir til þess að friði verði komið á í Líbanon og aö Israelsmenn verði á brott með her sinn úr landinu. Haig mun einnig ræða við Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna. Tal- ið er fullvíst að ástandiö í Líbanon verði einnig efst á baugi á fundi þeirra. I gær átti Haig viðræöur við Marwan Kasim, utanríkisráðherra Jórdaníu, tillögur sem Bandaríkjamenn hafa þrásinnis flutt áður og fór hörðum orðum um Sovétríkin. og Ghansan Tueni, sendiherra Líbanons hjá Sameinuðu þjóðunum. Jafnframt fékk Haig í gær skýrslur frá Habib, sendimanni Bandaríkjastjórn- ar í Miðausturlöndum, þar sem Haibib skýrði frá tilraunum sínum til að miðla málum í Líbanon og að koma í veg fyrirfrekara blóðbað. Bandaríkjastjóm hefur sætt mikilli gagnrýni — einkum frá arabaríkjun- um — fyrir að mistakast að fá Israels- menn til að verða á brott með herlið sittúrLíbanon. Haig og Begin hittast í dag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.