Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUR18. JUNI1982. frfáJst, ahað daghlað Útgófufólag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaður og útgófustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvœmdastjóri og útgófustjóri: Höröur Einarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjónsson og Ellert B. Schram. Aöstoöarritstjóri: Haykur Helgason. Fróttastjóri: Sæmundur Guövinsson. Auglýsingastjórar: Póll Stefónsson og Ingólfur P. Steinsson. Ritsfjórn: Síðumúla 12—14. Auglýsingar: Síöumúla 8. Afgreiösla, óskriftir, smóauglýsingar, skrifstofa: Þverholti 11. Sími 27022. Sími ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda og plötugerö: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skerfunni 10. Áskriftarverö ó mánuöi 120 kr. Verð i lausasölu 9 kr. Helgarblaö 11 kr. Réttlætið sigraði Réttlætið hafði sigur á Falklandi rétt í þann mund, er síðasta og helzta blóðbaðið var að hefjast. Argentínska herliðið sýndi skynsemi, þegar kreppti að. Það gafst upp, þegar ósigur var vís fyrir brezku lokasókninni. Mannfallið í þessu stríði nemur mörgum hundruðum, en hefði getað skipt þúsundum, ef umtalsverð átök hefðu orðið á landi. Vel undirbúin sókn Breta og síðbúið raunsæi Argentínumanna gerðu mannfallið minna en búast mátti við. Margir spyrja vafalaust, hvort Bretum sé 250 fallinna sona virði að hafa aftur náð tangarhaldi á þessum 1.800 manna eyjum. Slíkar spumingar em áleitnar í heimi friðarhreyfinga og endurvakningar kristilegra lögmála. Flestir eru þó enn nógu raunsæir að viðurkenna, að ofbeldi í samskiptum þjóða og ríkja geti þvingað þann, sem fyrir því verður, til að grípa til vopna, rétti sínum og lífsháttum til varnar, jafnvel þótt mannslíf fari fyrir lítið. Heimurinn væri ólíkur því, sem hann er nú, ef banda- menn hefðu ekki um síðir mannað sig upp í að standa gegn yfirgangi og útþenslu nasista. Þá vom færðar gífur- legar mannfómir til aö verja lífshætti vestrænnar mann- réttindastefnu. Ljóst er, aö íbúar Falklands em og vilja vera brezkir. Þeir kæra sig ekki um að verða þegnar í harðstjórnarríki argentínskra hershöfðingja, sem em slík illmenni, að Kremlverjar eru eins og kórdrengir í samanburði. Frelsun Falklands og upphitun brezka flotaveldisins eru eins og krepptur hnefi framan í alla harðstjóra heims- ins, hvort sem þeir heita Galtieri, Brésnéf eða Obote. Hún er yfirlýsing um, að enn sé blóð í vestrænu kúnni. Ef villimennirnir, sem stjóma Argentínu, hefðu haft sitt fram á Falklandi, mundu þeir bæði hafa treyst sig í sessi og fundið hvatningu til að halda áfram á sömu braut ofbeldis inn á við og út á við. Eftir því voru þeir að sækjast. Tugir harðstjóra um allan heim biðu eftir, að Galtieri hershöfðingja tækist að sýna fram á, að bezt væri að taka meö valdi það, sem mann langar í. Lexían hefur hins veg- ar orðiö önnur í reynd, svo er þrjózku Breta fyrir að þakka. Mikilvægast er þó, að Kremlverjum hefur óbeint verið bent á, að Vesturlönd em ekki ein allsherjar friðarsæng nytsamra sakleysingja í Hyde Park, hæfilega þroskuð til að gleypa. Falklandsstríðið linar útþensluþrá Kreml- verja. Falkland er svo engan veginn úr sögunni, þótt Bretar hafi unnið orrastu. Þeir verða nú að halda þar úti setuliði fyrir 300 milljónir punda á ári. Og satt að segja er það of dýrt á erfiðum tímum aö ver ja svo f jarlægar eyjar. Svo lengi sem argentínskir hershöfðingjar þurfa að dreifa athygli kúgaðs lýösins frá óstjórn og hryðjuverk- um stjórnvalda, er alltaf hætta á, að ný atlaga verði gerð að Falklandi. Sigur Breta er engan veginn endanlegur. Bezt væri því að nota friðinn til að koma á viðræðum um varanlega skipan mála, sem tekur tillit til, að Falk- land kemst næst því landfræðilega að teljast suður- amerískur eyjaklasi og varðar því hagsmuni þar í álfu. Ef Bretar vilja hins vegar fórna peningum um ófyrir- sjáanlegan tíma til að tryggja Falklendingum það ríkis- fang, sem þeir vilja, og þau mannréttindi, sem þeir vilja, — þá eigum við ekki aö lasta Breta, heldur hrósa þeim. Jónas Kristjánsson Mega flugum- f erdarstjórar ekki hafa skoðun? Þegar þetta er ritaö, stendur yfir atkvæöagreiösla hjá félagi flug- umferöarstjóra um aö reka einn félagsmanna, Olaf Haraldsson úr félaginu. Olafur hefur þaö eitt til saka unniö aö hafa aðra skoðun en stjórn félagsins á því, hversu marga menn þurfi til þess aö stjóma flug- umferö um KeflavíkurflugvöU. Olafur lét þessa skoöun sína í ljós sem trúnaöarmaöur ríkisvaldsins. Stjóm félagsins er þeirrar skoðunar, aö Olafi sé óheimilt aö setja fram aðrar skoöanir opinberlega en þær, sem hún hefur sjálf. Þess vegna á aö reka Olaf. Rétt er aö hafa í huga, aö sam- kvæmt samþykktum félagsins mega félagar í félagi flugumferðarstjóra ekki vinna meö Olafi ef hann veröur rekinn úr félaginu. Atkvæðagreiösl- an er því í raun atkvæðagreiðsla um aö svipta Olaf atvinnu sinni vegna skoðana sinna. Vald verkalýðsfélaga Þessi atlaga stjórnar félags flug- umferöarstjóra aö tjáningarfrelsi félagsmanna sinna leiöir huga manna að valdi verkalýösfélaganna. Þaö er ekki verið að halda því fram, aö forustumenn verkalýös- félaganna hafi misfarið með vald sitt, þótt þeirri skoöun sé lýst, að tryggja þurfi minnihlutanum lágmarksréttindi. Þegar nýju hlutafélagalögin voru sett, voru meöal nýmæla ákvæði um rétt minnihlutans. I hlutafélagi getur tiltekinn minnihluti krafist hlutfalls- kosninga og reglur um vægi atkvæöa er þannig, aö nái minnihluti tiltek- inni stærö, á hann aö koma manni að „Atkvæðagreiðslan um að reka Ólaf Har- aldsson úr félagi flugumferðarstjóra er tilræði við skoðana- og tjáningarfrelsi í landinu,” segir Haraldur Blöndal í grein sinni. Þorsteinn og Ásmundur Tvær innistæöu- lausar ávfsanir Nærri því daglega er okkur f rétta- hlustendum útvarps og sjónvarps velgt undir uggum. Þá eru þeir leiddir fram Þorsteinn Pálsson og Ásmundur Stefánsson til þess aö segja þaö sama og þeir sögðu í fyrra, sögöu í hittiöfyrra. Þeir eru báöir á- búöarmiklir, báöir drengilegir. Við hinir höfum ekki við að vera sam- mála þeim. Þeir hafa báðir áhyggjur af þjóöarhag, og þó sérstaklega tals- maöur Vinnuveitendasambandsins. Hann vill engar kollsteypur. Eg reyni aö rifja upp um hvaöa efnisatriði menniniir hafa veriö að tala í tugum viötala í útvarpi og sjónvarpi undanfamar vikur. Ég man varla eða ekki eftir einu einasta. Þeir pústra svolítið hvor utan í annan. Annars ekki neitt. Þeir eru báöir drengilegir, kurteisir og ákafir talsmenn almannaheillar, hvor meö sínum áherslum. Um mann fer öryggissæla. Þetta hlýtur allt aö vera allt í lagi. Þorsteinn og Ásmundur ætla að gera samning. Þeir segja þaö að vísu ekki, en viö hin vitum, aö það gerir út af fyrir sig ekkert til. I fyrsta lagi gerir þaö ekkert til vegna þess, aö á eftir koma sérsamningar sem skipta miklu meira máli, en einhverjir samningar sem þeir kynnu aö gera. Ef þeir ákveða einhverja tölu, sem meöaltalsmennimir, sem ráöleggja ríkisstjóminni segja að sé of há, þá er því umsvifalaust kippt til baka Vilmundur Gylfason Þeir em hvor um sig svo drengilegir, prúðir og penir, aö þeir spurja engra spurninga um gmnd- völlinn, sem þeir em aö semja á; þeir valda umhverfi sínu og yfir- boðurum engum erfiðleikum, engum andvökunóttum. Þeir draga meðaltölin ekki í efa, gera ekki athugasemdir við hiö hripleka skattakerfi. Með öörum orðum, þeir emídeaL Nú er það aö vísu svo, aö samningurinn sem þeir Ásmundur og Þorsteinn koma til meö aö gera skiptir stóran hluta launþega engu máli. Þeir eru nefnilega yfirborg- aðir. Einhvers staöar viröast því vera til peningar. Og staðreynd er líka að kaupmáttur opinberra starfs- manna hefur á nokkmm missemm „Prúðu piltamir eiga í rauninni miklu meira sameiginlegt en hitt, sem skilur þá að. Og þeir eiga sér sameiginlegan óvin: „Upplausnaröflin í þjóðfélaginu”,” segir Vil- mundur Gylfason í grein sinni. meö gengisbreytingu og/eöa öörum aðgerðum. rýmaö um 30%. Þeir em hins vega allflestir, ekki yfirborgaðir. Þeir ei

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.