Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 6
6
DV. MÁNUDAGUR13. SEPTEMBER1982.
1/öruleiðir hf.
flytja vörur til og frá Reykjavík
á eftirtalda staði:
Dalasýslu. Búöardal. Skriðuland. Austur-
Baröastrandasýslu. Króksfjaröarnes.
Reykhóla. Strandasýslu. Hólmavík.
Drangsnes. Akureyri. Eyjafjörö. Greni-
vík. Hrísey. Grímsey. Hornafjörö. Öræfi.
Fagurhólsmýri. Selfoss. Eyrarbakka.
Stokkseyri. Hveragerði. Voga. Vatns-
leysustr. Njarövíkur. Keflavík. Kefla-
víkurflugvöll. Hafnir. Garð. Sandgerði.
Grindavík. Reykjanes.
Vörumóttakan er opin frá 8—12 og 13—17.
VÖRULEIÐIR HF.
Kleppsmýrarvegi 8. Sími 83700.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á Hraðfrystihúsi Voga
hf. Vogum, ásamt lóð úr Norðurkoti, þingl. eign Voga hf., fer fram á
eigninni sjálfri að kröfu Útvegsbanka Islands, föstudaginn 17. sept.
1982, kl. 11.30.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaöinu á fasteigninni Þórukoti i
Hafnarhreppi, þingl. eign Friðjóns Jóhannssonar, fer fram á eigninni
sjálfri að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. og Jóns G. Briem hdl.
föstudaginn 17. sept. 1982 kl. 10.30.
Sýsiumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
annað, og siðasta á fasteigninni Víkurbraut 12 í Grindavík, þingl. eign
Jóhanns M. Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri, að kröfu Páls
Arnórs Páissonar hrl., Skúla J. Pálmasonar hri., Árna Guðjónssonar
brl., Vaigarðs Briem hrl. og Ævars Guðmundssonar hdl. fimmtu-
daginn 16. sept. 1982 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Grindavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Garðbraut 81 í Garði, þingl. eign Torfa
Steinssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Guðjóns Steingríms-
sonar hrl. fimmtudaginn 16. sept. 1982, kl. 14.30.
Sýslumaöurinn í Gullbringusýsiu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Kirkjubraut 7 í Njarðvík, þingl. eign
Vilhjálms Eyjólfssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Veðdeildar
Landsbanka íslands, Jóns Kr. Sólnes hdi., Olafs Axelssonar bdl. og
Hafsteins Sigurössonar hrl. fimmtudaginn 16. sept. 1982 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn í Njarðvik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 15., 17. og 19. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Borgartangi 2, Mosfellshr., þingl. eign Kristbjörns Árna-
sonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs, Inga Ingimundar-
sonar hrl. og Áma Guðjónssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn
16. sept. 1982 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Neytendur Neytendur Neytendur
Myndin er tekin i ingóHsapóteki. Minnstu sjúkrakssarnir eru úr plasti, þeir kosta um 200 krónur með sjúkra-
vörum. Hinir stærri um 300krónur en járnkassarnir kosta tómir frá 300—800kr.
DV-mynd GVA.
Margir eiga
sjúkrakassa
— en vita ekki um nauðsynlegasta innihaldið
Sjúkrakassi er hlutur sem ætti að
vera til á vísum stað á hverju heimili.
Á vinnustöðum og víðar eru sjúkra-
kassar en viðhald á þeim er litið sem
ekkert. Sumir þykjast góðir ef þeir
eiga plástur og skæri og þá eiga þeir
jafnvel verkjatöflur að auki. En ef far-
ið er að hugleiöa þetta þá er það ekki
nikil fyrirhöfn að útbúa sjúkrakassa. I
raun má nota hvaða box sem er, aðal-
atriðið er aö innihald kassans sé þaö
rétta.
I Iðunnarapóteki fengum við lista
yfir allt það helsta sem þarf að vera í
sjúkrakassa. I öilum lyfjaverslunum
sem við höfðum samband við, er boðiö
upp á þá þjónustu að endumýja
sjúkrakassa. Algengt er að fólk komi
með sína gömlu kassa og láti yfirfara
þá. Síðan er greitt fyrir hin nýju stykki
sem látin eru í. Sjúkrakassar era fáan-
legir tómir ef fólk óskar eftir að kaupa
í þá sjálft. Þeir eru úr járni í mismun-
andi stærðum. Verð á járnkössunum er
frá 200 krónum í 800 f er það eftir stærð.
Stærstu kassarnir eru teknir í skip og
báta, síðan era sér stærðir fyrir verk-
stæði og aðrar fyrir heimili.
Vörur fluttar inn
í sjúkrakössum
Sjúkratöskur era fáanlegar tii að
hafa í bílum. Þær eru í laginu eins og
púðar, þannig að hægt er að leggja þær
undir höfuðsjúklings.
Flestar þessar töskur
era innfluttar og þá eru leiðbeininga-
bækur á erlendum tungumálum. Þetta
er að sjálfsögðu ókostur og gæti þaö
komiö sér illa fyrir marga að geta ekki
lesið sér til á slysstað. Eitt er víst að
fjöldi fólks kaupir sér sjúkratöskur og
kassa með öllum sjúkravörum en
kynnir sér ekki hvað er í kassanum
fyrr en þörf er á. Þá er of seint að fara
að lesa utan á umbúðirnar til að kanna
hvers kyns innihaldið er. Sjúkratösk-
umar sem okkur voru sýndar eru
þýskar og kosta um 700 krónur.
Tilbúnir sjúkrakassar eru í mun
meira úrvali en hinir tómu. Þeir eru
flestir innfluttir en einnig útbúnir í
lyfjaverslunum. Verð á þeim er allt frá
200 í 600 krónur. Það er misjafnt hvaða
kröfur fólk gerir og hve nægjusamt það
er. I tilbúnum, innfluttum sjúkraköss-
um, sem kosta um 200 krónur, era
plástrar, sárabindi, nælur, svöðusára-
bindi, þrýstiumbúðir, sem notaðar eru
ef blæðir mikið, t.d. úr slagæð, einnig
eru í kassanum bómull, skæri augn-
leppur og fingurbindi. Þetta er dæmi-
gert innhald í þessum innfluttu kössum
og vantar þar mikið á aö þeir komi aö
raunverulegu gagni. Það vantar til
dæmis sáravatn, branasmyrsl,
brennsluspíritus sárasmyrsl og jafn-
vel verkjatöflur í minnstu kassana.
Fyrir þá sem vilja kaupa inn
sjúkravörar sjálfir, og koma þeim
fyrir í sína kassa, þá birtum við vöru-
listann ásamt áætluðu verði á hverjum
hlut.
I sjúkrakassa þarf:
plásturpakka, mismunandi stærðir,
pakkinn kostar ca 30 kr.,
heftiplástursrúllur 3 stærðir verð frá
8—20 krónur.
brunasmyrsl dós á 13 kr., túpa á 25 kr.,
brennsluspíritus 100 ml, kr. 13.30,
sárasmyrsl, 27 kr.
Ayrton’s græðandi smyrsl, kr. 15.90,
sárabindi í mismunandi stærðum, 10—
20 kr. pakkinn,
magnyltöflur, 20 stk., kr. 12.90,
höfuðverkjatöflur, 30 stk., kr. 21.30,
verkjatöflur, 20töflur, kr. 18.75,
skæri, kr. 8.65,
nælur, 12 stykki á 4 kr.,
flísatöng, 19 krónur,
sótthreinsuð baðmull, 15 g, kr. 3.30,
rautt joð (sáravatn) 10 ml, kr 15.40.
brjóstsviðatöflur, 50—100 stk. á 44—50
krónur,
svöðusárabindi, litlir pakkar, 10—17
krónur,
sáragrisjur, 2—4 krónur,
teygjubindi, lengd 4,5 m, 7 cm br., kr.
30,10 cmbr.,kr. 40,
eyrnardropar mikilvægir ef ungböm
eru á heimilinu,
baðmullarpinnar.
Þetta er það helsta sem ætti að vera í
sjúkrakössum og væri ekki úr vegi að
hvert heimili ætti islenska bók með
hjálp í viðlögum. Það er ekki nóg að
hún sé til, innihald hennar þarf að lesa
stöku sinnum. Sumir segjast kunna
blástursaðferðina og það sé alveg nóg.
En rétt handtök era afar mikilvæg á
slysstað sama hve lítið óhapp getur
orðið.
-RR.
Nær barnið upp
í handlaugina?
Þaö er aldrei of oft rætt og skrifað
um bömin. Þau geta ekki gert kröfur
eins og fullorðna fólkið og verða því oft
að sætta sig við hlutina eins og þeir eru
hannaðir fyrir fullorðna. Við rákumst
á litla fótaskemla í versluninni BB-
byggingavörur. Þessir skemlar hafa
Iengi verið fáanlegir víða í verslunum,
þeir kosta nú 77 krónur. Ætlunin er aö-
eins að vekja athygli á því hvað við
getum gert fyrir þau minnstu án mikils
kostnaður. Skemlamir eru til margs
nýtir, til að standa á við vask, þegar
bamið þvær sér og burstar tennur. A
sumum heimilum hafa böm ekki að-
gang aö tannbursta eða greiöu án þess
aö fullorðnir rétti þeim hjálparhönd.
Víðast hvar hanga speglar það hátt
uppi aö þau hafa ekki gagn af þeim.
Lengi mætti upp telja og mætti þá
bæta við að aðstaða barns við matar-
borð er oft bágborin. Eftir að notkun
bamastólsins lýkur, sitja bömin ann-
aöhvort á hnjánum, eða aö þau ná rétt
upp fyrir borðbrún. I hlutfalli við hend-
ur bams era venjuleg hnífapör allt of
stór og því miður er oft ætlast til að þau
noti sömu stærð og fullorðnir. Glös eru
það sver að böm ná ekki tökum á þeim
nema með báðum höndum. Svo er
verið aö skammast eða afsaka þau, ef
hellist niöur við að leggja frá sér glas-
ið. Hvemig þætti okkur að drekka úr
haldlausri lítrakönnu?
Sem betur fer hafa augu manna opn-
ast mikið fyrir breytingum á opinber-
um stööum þar sem gert er ráð fyrir
börnum og fleira fólki með sérþarfir.
Leikhom sem komið hefur veriö upp á
opinberum stöðum eru mikið til bóta.
Það skaðar ekki að fólk setji sig stund-
um i spor bamsins og athugl hve mikið
er gert fyrir þau tll að leyfa þeim að
bjarga sér sjálf, í fatahenginu, á bað-
herberginu, í eldhúsinu eða annars
staöar.
-RR.