Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Page 40
NÝJA AGFAFILMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM ÓDÝRARIFILMA SEM FÆST ALLS STAÐAR Ung stúlka varð fyrir bifreið á Fríkirkjuveginum fyrir utan Frikirkjuna um klukkan hálfþrjú aðfaranótt föstudagsins. Var stúlkan á gangi á miðri götunni, er bíllinn kom aðvifandi. Hægði öku- maður bilsins á sér og ætlaði að sveigja rólega fram hjá stúlkunni er hún gekk í veg fyrir bilinn, og slangraðist utan i hann. Ekki munu meiðsli stúlkunnar hafa verið alvarleg. -JGH/DV-mynd S. Piltarmeð hnff réðustámann Sex piltar á aldrinum 15 tÖ 16 ára réöust á mann um fertugt og ógnuðu honum með hnífi á Suðurgötunni um klukkan tvö á föstudagskvöldið. Maðurinn, sem var einn á ferð, var að fara yfir Suðurgötuna á móts við Galleríið á Suðurgötu 7. Réðust þá pilt- amir á hann og gerðu tilraun til að ræna hann. Hann þráaðist við og drógu þeir þá upp hníf. Voru þeir komnir með hendur á veskið, er lögreglan kom á vettvang. Tóku þeir þá á rás og hlupu í burtu. Lögreglan náðitveimur þeirra. Ekki sakaði manninn er varð fyrir árásinni og veskinu slepptu piltarnir strax er þeir urðu varir við lögregluna. _________________________JGH Löggurog fangarkepptu ífótbolta Ovenjulegur knattspymuleikur fór fram um helgina. Lið lögreglumanna úr Reykjavík og lið fanga mættust. Fór leikurinn fram á Litla-Hrauni á laug- ardag. Leikar fóru svo að lögreglumenn báru sigur úr býtum. Unnu þeir með átta mörkum gegn fjórum. Staöan í leikhléi var6—1. Aö sögn Helga Gunnarssonar fang- elsisstjóra var leikurinn fjörugur og hressilegur. Léku bæði liöin prúðmannlega knattspyrnu. Dómarinn var úr röðum fanga. Lét hann menn ekki komast upp með nein fangbrögð. Að sögn fangelsisstjórans mótmælti enginn dómum hans. Níu menn voru í hvoru liöi. Iæiktími var2x35mínútur. -KMU. LOKI Reagan óttast mest að Vigdís farí á móti honum í kosningunum 1984. QJLJL I | RITSTJÓRN | | SÍÐUMÚLA 12—R AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFA ÞVERHOLTI 11 27022 ELDSNEYTIFYRIR TUGI MILUÓNA HENT í HAFIÐ? Hendum viö árlega í hafið hráefni sem vinna má úr eldsneyti að verð- mæti um fimmtíu milljónir króna? Slíkt er ekki fjarri lagi ef við gefum okkur þá forsendu að lýsi megi nota sem eldsneyti í staö svart- oh'u eöa jafnvel í stað gasolíu. Og reynsla þeirra sem reka bræðsluna í Sandgerði og þeirra sem aka vörubíl Lýsis hf. bendir einmitt til þess að nýta megi lýsiö sem eldsneyti og það ímiklum mæli. Orkugildi lýsis er mjög svipað orkugildi gasoliu. Samt er gífurleg- um hráefnum, sem lýsi má vinna úr, hentísjóinn. Togaraflotinn hendir nærallri lifur þegar fiskurinn er slægður um borð. Samkvæmt upplýsingum Sigurjóns Arasonar, efnaverkfræðings hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, má ætla að um 25 þúsund tonn af lifur fáist úr þorskafla landsmanna á einu ári, miðað við 460 þúsund tonna heildarafla. Úr allri þessari lifur má vinna um 15 þúsund tonn af lýsi. A síðasta ári framleiddu íslendingar hins vegar aðeins um fjögur þúsund tonn af þorskalýsi. Þorsklifur sem innihélt um ellefu þúsund tonn af lýsi varþvíhentíhafið. -KMU. Starfsmenn Jarðborana rikisins i Flatey með borinn Drífanda. A innfelldu myndinni sóst borinn við vitann í aynnl. DV-mynd GS/Akureyri. IFLATEY? OLÍA Skyldu þeir finna olíu í jarðlögun- um undir Flatey á Skjálfandaflóa? Hver veit, ef til vill á Flatey eftir að iða af mannlífi á ný. Gárungamir segja vonina um olíu á Skjálfanda síöasta hálmstrá ríkisstjómarinnar. Hvað um það, sl. fimmtudag komu starfsmenn Jaröborana ríkisins út í Flatey með jarðborinn Drífanda. Á föstudagskvöldið vom þeir byrjaðir að bora við vitann austast á eynni og var holan orðin um 3 m djúp þegar tíðindamenn DV litu við í Flatey á laugardaginn. Meiningin er að bora niður á 400—500 m til að kanna setlög undir eynni. Kjaminn úr holunni verður tekinn til rannsóknar og mun vera ætlunin að senda sýni úr honum1 til Noregs til frekari greiningar. Fimm menn frá Jarðborunum ríkis- ins voru í Flatey á laugardaginn og á myndinni sjást Sigurgeir Ingimund- arson, Björg Pétursdóttir og Gunnar Hólm að störfum. Á innfelldu mynd- inni sést borinn hreykja sér við hlið vitans austast á Flatey. Nánar verð- ur sagt frá heimsókninni í Flatey í blaöinu á morgun. DV myndir GS/Ak Spennistöð í Grundarfirði gjöreyðilagð- ist í eldi Ein af þremur spennistöðvum í Grundarfirði gjöreyðilagðist í eldi um tvöleytið aðfaranótt laugardagsins. Eldsupptök em ekki kunn, en talið er að rafmagnstengin í stöðinni hafi ofhitnaö og það sé orsök eldsins. Tjónið á stöðinni er metið á um 1,5 milljónir króna. Það var um klukkan hálftvö um nóttina sem hringt var í starfsmann rafmagnsveitunnar og honum tilkynnt um að rafmagn hefði farið af hluta bæjarins. Hann fór strax í spenni- stöðina og sá að tvö öryggi voru ónýt. Skipti hann strax um öryggi og virtist þá allt vera komið í lag. En þegar hann var kominn út í bíl fóru götuljósin skyndilega af bænum. Hann fór þvi inn aftur og sá þá eld í háspennuskáp. Ekkert handslökkvitæki var í stöðinni, þannig að hann hljóp í lögreglubíl sem þama var skammt hjá. Þegar hann kom til baka lagði mikinn reyk úr stöðinni. Hann kvaddi þá slökkviliðið straxtil. Brunaboöi slökkviliðsins á spenni- stööinni varð óvirkur og þurfti því lög- reglan að aka um þorpið og kalla slökkvilið út. Þegar það kom að spenni- stöðinni var hún alelda. Notuöu slökkviliðsmenn kvoöu við aö slökkva eldin til að byrja með, en það gekk ekki sem skyldi. Var því ákveðið að taka allt rafmagn af bænum og sprauta sjó á eldinn. Gekk þá mjög vel aö ráða niðurlögum eldsins, og var slökkvistarfið búið um klukkan þr jú. Tjónið í eldinum er metið á um 1,5 milljónir króna, en það eru fyrst og fremst rafmagnstæki sem eru ónýt. Húsið s jálft er ekki mjög illa farið. Bærinn var raf magnslaus f ram eftir laugardegi og var ekki hægt aö vinna í frystihúsunum eins og staðiö hafði til. Mátti litlu muna að tjón yrði á fiski, því öll fiskverkunarhús í bænum voru full af fiski þar sem togarinn Runólfur landaði seinni partinn á föstudeginum. Einnig voru allar f rystigeymslur fullar af unnum fiski sem átti að fara að skipa út. Rafmagn komst síðan á bæinn seinni hluta laugardagsins og eru ekki lengur neinar rafmagns- truflanirvegnaþessaóhapps. -JGH. Stúlka ók á Ijósastaur Ung stúlka ók á ljósastaur á Reykja- nesbraut á móts við veitingahúsið Broadway klukkan hálffjögur aðfara- nótt sunnudagsins. Farþegi í bílnum slasaðist lítillega á höfði og var fluttur á slysadeild. Ekki urðu miklar skemmdir á bílnum. Grunur leikur á að stúlkan hafi ekiö bilnum ölvuð. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.