Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 17
DV. MÁNUDAGUR13. SEPTEMBER1982.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Hvenær er
von á plötu
fanganna?
Sigurður hringdi:
IDV þriðjudaginn 31. ágúst er ákaf-
lega athyglisverð frétt um hljóm-
plötuútgáfu fanga á Litla Hrauni. Ég
er mjög áhugasamur um þessa plötu,
enda þekki ég af eigin reynslu h'f innan
múra. Mig langar til að vita hver gefur
plötuna út og hvenær von er á henni?
„Vonandi fyrir jól... "
Umsjónarmaður lesendasíðu
hringdi í Ásgeir Hannes Eiriksson,
sem er föngunum innan handar með
útgáfuna. Hann sagöi aö fangamir
gæfu plötuna út sjálfir. Hann kvaðst
ekki geta tiltekiö útgáfutíma nákvæm-
lega en sagöist vona aö hún kæmi út
fyrir jól. Ásgeir bætti því við, aö ef
illa færi; tap yrði á útgáfunni, myndu
fangarnir bera tapiö sjálfir. En ef
gróöi yrði, myndu tveir þriðju hlutar
renna til Fangahjálparinnar og
tómst undamála f anga.
-ás.
Nokkrir núvarandi og fyrrverandi fangar standa nú i hljómplötuútgáfu.
ÍSLENSKI FRÍMERKJABANKINN
IVERÐBRÉFA
MARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 2,
NÝJABIÚHÚSI.
SlMI 22680
BOX 28S 121
REYKJAVÍK.
Berð þú ábyrgö á peningum annarra?
Átt þú aö ávaxta sparifé barnanna,
gamla fólksins eöa félagssjóöinn?
Viö erum miölarar meö alls konar
skuldabréf — verðbréf og víxla.
Haföu samband.
,,/ vetur ætlum við að vera með
dansmúsik, eitthvað fyrir alla — og
vonum auðvitað að við fáum eitt-
hvað að gera hérna heima," segir i
bréfi frá hljómsveitinni Sokkaband-
inu á ísafirði.
Hljómsveitin
Sokkaband
ertil
— „eldhressar dömur á
aldrinum 15-38 ára"
Frá hljómsveitinni Sokkabandinu, Isa-
firöi:
Vegna nýlegs lesandabréfs frá
Charles Hilt, þar sem ýmist er talað
um aö viö séum til eða ekki, sendum
viö þessar linur.
Víst erum viö til, eldhressar dömur
á aldrinum 15—38 ára og æfum á fullu í
bílskúr — neö krakkana vafrandi í
kringum okkur. Sem stendur erum við
aö pæla í frumsömdu efni eftir 3
meðlimi hljómsveitarinnar. Þaö
munum við koma fram meö á tónleik-
um hér á Isafirði, ásamt Allsherjar-
frík. Einnig vonumst við til þess að
spila fyrir sunnan seinni partinn í
september.
1 vetur ætlum viö aö vera með
dansmúsík, eitthvaö fyrir alla — og.
vonum auðvitaö aö viö fáum eitthvað
að gera hérna heima.
Viö höfum heyrt sagt að við séum
þriöja kvennahljómsveitin á Islandi í
gegn um árin sem ber nafnið
Sokkaband. Meðlimir hljómsveit-
arinnar eru: Bryndís Friögeirsdóttir,
setn leikur á trommur; Ásthildur
Þóröardóttir, leikur á bassa; Oddný
Sigurvinsdóttir, á gítar; Eygló
Jónsdóttir, á rythma-gítar; Rannveig
Ásgeirsdóttir sér um hljómborðið og
Ásdís Guðmundsdóttir syngur.
VIÐ LEITUM
AÐ FÓLKI MEÐ
HUGMYNDIR
Ef þú ert að velta fyrir þér hug-
mynd um smáiðnað eða skyldan
rekstur geturðu sótt um þátttöku í
verkefni um stofnun og þróun smá-
fyrirtækja.
Kannski viltu líka reyna nýjung-
ar í rekstri, sem þegarer hafinn.
Ekki er krafist sérstakrar þekking-
ar eða reynslu, aðeins brennandi áhuga á að koma hug-
myndum í framkvæmd.
Við stofnum ekki fyrirtæki fyrir þig, en veitum aðstoð við
að meta möguleikana og koma þér í startholumar.
Samstarfsnefnd um iðnráðgjöf í landshlutunum skipu-
leggur verkefnið í umboði iðnaðarráðuneytisins og í sam-
starfi við iðnráðgjafa í landshlutunum.
Verkefnið er m.a. styrkt af Iðnþróunarsjóði, Iðnrekstrar-
sjóði og Byggðasjóði. Það miðar að því að fjölga litlum
fyrirtækjum, efla þau sem fyrir eru og auka þannig fjölbreytni
í atvinnulífinu.
ÞU VERÐUR
AÐ LEGGJA
HART AÐ ÞÉR
Þetta er ekkert venjulegt
námskeið: Þú leggur sjálfur
til efniviðinn og það erfrum-
kvæði þitt og vinna sem
ræður úrslitum um árangur-
inn.
Þú átt auðveldlega að
geta sameinað þátttöku í
verkefninu núverandi starfi, en gerðu ráð fyrir að mikið af
frítíma þínum fari í verkefnið.
Við hittumst á fjórum vinnufundum um helgar með um
þriggja mánaða millibili. Þar verður unnið í hópum og leið-
beinendur aðstoða þátttakendur við að meta hugmyndir
þeirra og skipuleggja starfið stig af stigi.
Milli vinnufundanna þarftu að glíma við verkefni sem öll
tengjast hugmynd þinni um stofnun fyrirtækis eða nýbreytni
í rekstri.
Þátttakendur verða valdir úr hópi umsækjenda. Áður en
valið fer fram færðu tækifæri til að gera grein fyrir hugmynd
þinni og aðstæðum í viðtali.
UPPLÝSINGAR GEFA:
Halldór Árnason
Vinnusími 91-42411
Heimasími 91 -37865
Þorsteinn Garðarsson
Vinnusími 99-1350
Heimasími 99-3834
Theodór Blöndal
Vinnusími 97-2300
Heimasími 97-2260
SAMST ARFSNEFND UMIÐNRÁÐGJÖF í LANDSHLUTUNUM.
Iðntæknistofnun íslands, Vesturvör 27,200 Kópavogur, sími 91 -42411.