Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 10
10
DV. MANUDAGUR13. SEPTEMBER1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Ung frönsk kona, sem í sumar var
dæmd til dauða í Malaysíu fyrir
hlutdeild í eiturlyfjasmygli, leiddi
athygli fjölmiöla á Vesturlöndum að
þeim mikla vanda sem stjómin í
Kuala Lumpur á við að glíma vegna
eiturlyfjanna.
Malaysía hefur verið eins og þjóð-
braut eiturlyfjasmyglara og þar í
gegn hefur leiðin legiö með heróínið
frá „gullna þríhyrningnum”
(Thailand, Laos og Burma) og
„gullna hálfmánanum” (Pakistan,
Afghanistan, Iran og Tyrkland) til
hinna svörtu markaða á Vestur-
löndum. Töluvert situr þó eftir þar
því að af 13 milljóna þjóö er um ein
milljón manna sögð ánetjuð óþverr-
anum.
Vegna þessarar óheillaþróunar og
fyrir þrýsting frá stjórnvöldum á
Vesturlöndum hefur stjómin í Kuala
Lumpur hert baráttuna gegn eitur-
lyfjasmyglinu. Um 3000 manna
lögregluliö fæst nú algerlega og ein-
vörðungu við það verk. Viðurlög hafa
verið hert og varðar nú dauðarefs-
ingu ef í fórum manns finnast meira
en 100 g af heróíni. Hefur henni
veriö beitt ótæpilega en dauðarefs-
ingu er fullnægt í gálganum í Malay-
síu.
Fjórir útlendingar hafa verið
dæmdir til dauða í sumar í Malaysíu
og þar á meðal franska stúlkan.
Hefði hún verið leidd í gálgann fyrst
Vesturlandabúa, ef hún hefði ekki
viö áfrýjun dómsins fengiö honum
breytt í lífstíöarfangelsi. Á meðan
hafa átta Malaysíubúar veriö teknir
af lífi fyrir eiturlyf jasmygl og 28 til
viðbótar bíða í dauðadeildinni.
„Ungfrú Saubin (franska stúlkan)
var heppin. Hún slapp við gálgann,”
sagði lögmaður einn í Kuala
Lumpur. „En sá dagur hlýtur aö
renna upp að útlendingur verði
leiddur í gálgann. Ef við tökum
landsmenn okkar af lífi, því þá aö
hlífa útlendingum?”
45 útlendingar hafa verið hand-
teknir viöriðnir eiturlyfjasmygl á
fyrra helmingi þessa árs i Malaysíu.
(Lögreglan hefur gengið mjög ötul-
lega fram og yfir 5000 hafa veriö
handteknir eftir hús- eða farangurs-
leit) Tíu þessara útlendinga voru
Ástralir, átján voru Thailendingar,
átta frá Singapore en hinir frá
Frakklandi, Pakistan, Indónesíu,
Bretlandi, Vestur-Þýskalandi,
Irlandi, Nýja Sjálandi og Argentínu.
Hin 20 ára Beatrice Saubin haföi
verið tekin á flugvellinum í Penang
þegar tolleftirlitsmönnum fannst
hún hafa grunsamlega glæsilega
ferðatösku. I fóðrinu í töskunni
fundust falin 534 grömm af hreinu
heróíni. Stúlkan kom algerlega af
fjöllum og vissi hvorki upp né niöur.
Hún hafði leitaö á vit ævintýranna í
hinum fjarlægu Austurlöndum en
með lítil fararefni og varð fljótlega
peningalaus. Kvaðst hún hafa kynnst
í Malaysíu Kínverja sem hún varð
ástfangin af en þegar ástin dofnaði
ákvað hún aö snúa aftur heim til
Frakklands. Kínverjinn gaf henni
nýju feröatöskuna í staö gömlu tuðr-
unnar sem hún haföi haft. Þessi saga
þótti ekki sérlega trúverðug enda
hafði Saubin látið undir höfuö
leggjast aö nefna Kínverjann í fyrstu
yfirheyrslum.
I Malaysíu vilja menn kenna eitur-
lyfjanotkunina ungum vestrænum
ferðamönnum fremur en harðsvír-
uöum alþjóölegum smyglurum.
Hinir fyrrnefndu eru margir sjálfir
háðir eiturlyfjum og koma nýjum
vinum sínum í Malaysíu á bragöið. —
Dómstóllinn í Penang lét sig litlu
skipta þótt Saubin væri ung, falleg og
Daglega ganga þar vörubílar milli
Songkhla í S-Thailandi og Kedah-
héraðsins í Malaysíu. Segist
lögreglan ekki hafa nokkurt bolmagn
til þess að leita í þeim öllum.
Ennfremur eru til skógarstígar við
landamærin sem smyglarar þekkja
út og inn.
Aukið framboð heróíns frá gullna
hálfmánanum hefur lækkað eitur-
lyfin um 25% í veröi í Malaysíu en
sagt er aö smyglhringarnir líti nú
fast á markaðsmöguleikana í
Ástralíu og sýnist aukinn fjöldi
Astrala, sem Malaysíulögreglan
hefur afskipti af, styðja þær grun-
semdir. Hefur kveðið rammast að
þessu á ferðaeyjunni Penang sem er
vinsæll viðkomustaður ferðalanga á
þessum slóöum.
Ungt fólk, sem af ævintýra-
mennsku leggur leiö sína til Austur-
landa og er vant léttúð ungmenna á
Vesturlöndum í umgengni við fíkni-
efni, varar sig ekki á hörkunni sem
þarna rikir í réttvísinni. Af galgopa-
hætti lætur það vitandi eða óafvit-
andi nota sig til fíkniefnadreifingar
eða smygls og er sér ekki meövitandi
um hættuna fyrr en skuggi gálgans
fellur á það. Ur sínu heimalandi
þekkir þetta unga fólk ekki annað en
að dauðarefsingin heyri fortíöinni til
og samfélagið sé með hugann við
mannúðlegan aðbúnað í fangelsum. I
þessum heimshluta eru menn hins
vegar uppteknari af öðrum vanda-
málum sem eru meira aökallandi en
að tryggja lögbrjótum í dýflissum
einhver lágmarksþægindi.
Af þeim sökum væri óskandi að
ungt fólk léti sér reynslu Saubin og
dapurleg örlög að kenningu verða
því að þótt Saubin hafi sloppiö við
gálgann er óvist að ævilöng vist í
fangelsi í Malaysíu sé Vesturlanda-
konu neitt mildari örlög.
frönsk. I gálgann skyldi hún.
En heima í Frakklandi rann
mönnum til rifja að ung stúlka,
hugsanlega leiksloppur illmenna,
skyldi hljóta slik örlög og var þrýst
aö frönskum stjórnvöldum aö bjarga
henni. Þau treystu sér ekki til þess
að blanda sér i starf dómstóla i
Malaysíu en hæstiréttir bjargaði
Saubin frá gálganum eins og áður er
getið.
Mikiö af heróíninu, sem finnst í
Malaysíu, hefur komiö yfir
landamærin frá Suöur-Thailandi.
Beatrice Saubin, handjámuö viO lögreglukonu i Maiaysiu. Hjá henni
fókk ævintýriö ekkigóOan endi.
Þrenningin, indira, Maneka og Sanjay, meOan allt lók i lyndi.
hverrar úlfúöar innanflokks hjá
kongressflokknum.
Flokkur forsætisráðherrans hefur
brugðist harkalega við óhlýðni
Maneku. Þegar hún flutti ræðuna í
Punjab reyndu ungfélagar úr
kongressflokknum að hleypa upp
fundinum en aðferðir þeirra minna
oft á algera glæpamennsku. I upp-
þotinu slösuöust tuttugu manns. 1 j úlí
lagði lögreglan eina af skrifstofum
Maneku í Delhi í rúst og bar eld að.
Verkiö var réttlætt með því að bygg-
ingin hefði verið reist í óleyfi. Þegar
Maneka boöaði í síðustu viku fyrir-
hugaöa stofnun nýs stjómmálaflokks
var annar þingmaðurinn, sem hún
hafði reitt sig á, barinn til óbóta.
Maneka hefur fordæmt þessar of-
beldisaðgerðir og kallað blett á lýð-
ræðinu og reginhneyksli. Stjómar-
andstæðingar úr öömm flokkum
hafa samt ekki mikla samúð með
henni þótt þeir kunni margir hverjir
frá svipaöri reynslu að segja. Það
var nefnilega Sanjay heitinn, eigin-
maður Maneku, sem drjúgan þátt
átti í því að innleiöa slikar baráttuaö-
ferðir í indversk stjórnmál, og atti
óspart unggæðingum sinum fram til
slfkra verka á meðan hann stóö viö
hliðmóðursinnar.
Indira Gandhi, forsætisráðherra
Tndlands, mætir nú nýrri pólitískri
samkeppni úr sinni eigin fjölskyldu.
Það er Maneka tengdadóttir hennar
sem setur á laggirnar nýjan stjóm-
málaflokk í næsta mánuði með stuðn-
ingi margra vina eiginmannsins sál-
uga, Sanjay Gandhi.
Það hafði engin gengiö þess dulinn
að Indíra hafði ætlað Sanjay syni sín-
um forystuhlutverkið eftir sinn dag
en Sanjay fórst í flugslysi 1980.
Maneka ól með sér von um aö hún
öðlaöist sæti Sanjays, sérílagi þar
sem eldri sonur Indíra, flugstjórinn
Rajiv, var tregur til stjórnmálaaf-
skipta og vildi helst halda áfram
starfi sínu hjá indverska flugfélag-
inu. En Indíra er viljaföst kona og
Rajiv sneriséraðstjómmálunum.
Sanjay hafði verið ötull við að|
koma unggæðingum sínum til áhrifa
í kongressflokknum sem fer með
völdin í Indlandi. Rajiv beið hins
beran fund sem vinir Sanjays höfðu
boöaö til í trássi viö fyrirmæli Indíra.
Sagt er að heiftarlegt rifrildi hafi
brotist út heima hjá Indíru eftir f und-
inn milli þessara tveggja kvenna.
Mun því hafa lokiö meö því að
Maneku var vísað á dyr.
Fram til þess hafði Maneka út i frá
sýnt tengdamóður sinni tryggð en
þaöan í frá hefur hún ekki farið dult
með gagnrýni sína á ríkisstjórnina.
Það var umtalsverður fjöldi þing-
manna og rikisstjóra sem átt hafði
embættisgengi sitt að þakka Sanjay
og ekkjan taldi sig eiga stuöning
þeirra vísan. I því liði voru þó marg-
ir tækifærissinnaðri en svo að þeir
þyrðu að bjóða Indíru og Rajiv byrg-
inn með því að ganga til liðs við
Maneku. Annar þeirra tveggja þing-
manna sem Maneka taldi visa stofn-
félaga í nýja flokknum hefur afneit-
að henni opinberlega.
Framundan era fylkiskosningar í
fjóram fylkjum en talið er vafasamt
að flokkur Maneku fái þar nokkurn
mann kjörinn þótt hún telji nú þegar
15 fylkisþingmenn meðal áhangenda
sinna. Þetta brölt tengdadótturinnar
gæti þó alið á sundurþykkju innan
kongressflokksins og af því stafar
Indíru meiri hætta en af stjórnarand-
stööuflokkunum. Uppreisnarskarfar
innan kongressflokksins uröu þess
valdandi að flokkurinn vann ekki
hreinan meirihluta i kosningum í
maí í vor í tveim fylkjum á Norður-
Indlandi. 1 öllum fylkjum gætir ein-
Rajiv sem gegn vilja slnum settist i
krónprinssæti Sanjays.
vegar ekki lengi með aö víkja þeim
frá og koma sinum fylgismönnum aö
í staöinn. Þaö mislíkaöi mágkonu
hans, Maneku, mjög og venslin fóra
kólnandi. Upp úr sauð í mars síðasta
vetur þegar Maneka ávarpaöi opin-
Maneka sýpur nú sjáH seyOiO
af baráttuaOferöum eiginmannsins
sáluga, Sanjay, syni Indiru.
I ÆVINTÝRALEIT
í SKUGGA GÁLGANS
fjölskyldunni
Valkyrjurnar
í Gandhi-