Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 15
DV. MANUDAGUR13. SEPTEMBER1982. 15 x * Ætla mætti að verulega brenglað fólk hefði hér um vé'.að. Sé ákveðinnar framkvæmdar þörf vegna almenningsheilla, hafi lög- gjafinn eða framkvæmdavaldið gert um það samþykkt, liggi hin pólitíska ókvörðun fyrir (og greinargerð þar um lögð fyrir dómstólinn), sé um hagkvæmustu og ódýrustu lausnina að ræða samkvæmt útreikningi til þess bærra sérfræðinga — ef öllum þessum skilyrðum er fullnægt, er þá ekki einmitt dómstóll rétti aöilinn til að skera úr um eignarnám? Að mínu áliti tvimælalaust. Dómstóll sem fær er um að meta bætur fyrir fjámámiö, er auövitað ekki síður fær um að meta hvort þess er þörf eða ekki. Fullyrðing G.G. Sch. stangast einnig á við þá almennu reglu að löggjafinn gefi hina almennu reglu, en dómsvaldið skeri úr umhið einstaka. Réttindi og skyldur Samfélagið getur engin réttindi tryggt borgurunum nema borgaramir í heild standi aö baki sem endurtryggj- andi. Því meiri réttindi sem sam- félagið tryggir borgurunum, því meira verður það að heimta af borgumnum í staðinn. Velferöarríkið hlýtur því aö enda sem kjúklingabú. Þess vegna ber að byggja Mannréttindaskrána þannig upp að jafnan haldist í hendur réttindi og skyldur. Samkvæmt stjómar- skránni mætti ætla aö borgaramir heföu engarskyldur nema landvamar- skylduna. Skattyfirvöld sem með- höndla gjaldendur sem sláturpening eru samt ekki á sama máli. Skúli Magnússon. Ríkisborgararéttur Næsta grein (sú 68unda) kveður á um að enginn útlendingur geti fengið ríkisborgararéttindi nema með lögum. Þetta ákvæði er fráleitt. Stjórnarskrá og lög eiga aöeins að kveða á um þau skilyrði sem útlendingur verði að uppfylla til aðgetagerstríkisborgari . Það ákvæði í lögum að skylda útlend- inga til að breyta um nafii hlýtur að vera brot á allri meignhugsun um persónurétt. Rétturínn til lífsins Frumréttur einstaklingsins hlýtur aö vera réttur hans til lífsins. Hann er grundvöllur undir öllum ööram rétti. Lík t.a.m. getur ekki notfært sér rétt til málfrelsis. Samt sér stjórnarskráin ekki ástæðu til að skilgreina þennan frumrétt. Samkvæmt t.a.m. almannatrygg- ingalögum er fóstur eða ófætt barn persóna að lögum (barnið getur öðlast réttindi áður en það fæðist) Þar af leiðir að af hreinum „júrískum” ástæöum hlýtur barnið að hafa lagalegan rétt til verndunar gegn „fóstureyðingum”. „Fóstureyðingar” geta því ekki veriö einkamál móður. Er furöulegt að enginn skuli hafa komið auga á þetta atriöi. Þarf aö útskrifa fleiri lögfræðinga? Lög (barnalög) munu nú hafa bætt veraleg úr. En það breytir því ekki aö skilgreina þarf rétt barna, einnig gagnvart foreldrum sínum. Hvers rétt þarf að skilgreina og vernda ef ekki lítilmagnans? Eignaupptaka Enn um eignarrétt. Samkvæmt 67u grein má ekki taka eign af manni (land) nema almenningsheill krefjist eöa lagafyrirmæli bjóði. Það flokkast undir almenningsheill að leggja verður vegi um landið. Þess vegna getur enginn hindrað vegagerð í skjóli eignarréttar. Þetta er sjálfsagt. Þurfi hins vegar að taka land eignamámi eða þess sé talin þörf, t.d. vegna virkj- unar, verður að semja lög þar um. Gunnar G. Schram ritar (á bls. 83 í „Stjórnarskrá Islands”): „Dómstólar eru hins vegar ekki bærir að dæma um það atriði (hvort þörf sé fyrir hendi aö taka land eöa aðra eign eignamámi). Verður eignarnámsþolinn að una mati löggjafans í þessu efni.” Ekki fylgir rökstuðningur, enda um alþýölega handbók aö ræða, en ekki fræðilega greinargerð. VeRZLUNRRBRNKINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.