Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Blaðsíða 21
DV. MÁNUDAGUR13. SEPTEMBER1982. 29 Ráðgjafinn í Útvegsbankanum Sýningin „lcelandic Fashions” — Opnuð um helgina í Dayton’s vöruhúsinu í Minneapolis Við opnun menningarkynningarinn- Vigdís Finnbogadóttir flytja aðalræö- ar, Scandinavia Today, var flutt tón- list frá Norðurlöndunum. Þar var frumflutt tónverk Karólinu Eiriksdótt- ur, Sonans. Tónlistargagnrýnendur þar vestra létu vel af íslensku verkun- um. Á laugardag hófst dagskráin með hátíðarsamkomu á Metrodome- leikvanginum. Þar fluttu fulltrúar allra Norðurlandanna stutt ávörp. Forseti Islands, Vigdis Finnbogadótt- ir, snæddi hádegisverð i boði kvenna- samtakanna „Junior League of Minneapoiis. Síðdegis var forseti fslands við opnun sýningarinnar Icelandic fashions í einu stærsta vöru- húsi borgarinnar Dayton’s. Þetta sama kvöld voru svo hátíðar- tónleikar Tonight Scandinavia í Orchestra Hall og var þeim sjónvarp- aö um öll Bandaríkin. I gær sat forseti Islands hádegis- verðarboð ríkisstjórans í Minnesota, en síödegis héldu samtök Islendinga í Minnesota forseta Islands boð. Opnunarathöfn Scandinavia Today í New York verður síðan í dag. Þarmun una í Lincoln Center. -EG Vigdis Finnbogadóttir og aðrir gestir á fyrstu tónleikum norrænu menningarkynningarinnar Scandi- navia Today. DV-simamynd GTK. MARGT GÓDRA GESTA — á tónlistarhátíðinni Ung Kordisk Musikfestival Gestir tónlistarhátiöarínnar Ung Nordisk Musikfest sem haldin verður í Reykjavík dagana 19.—25. september veröa aö þessu sinni hollenska tón- skáldið Ton de Leeuw, breska söngkon- an Jane Manning, hljómsveitarstjór- inn Arthur Weisberg, Diana Kainedy víóluleikari og Roger Carlsson slag- verksleikari. Ton de Leeuw mun halda fyrirlestra, standa fyrir námskeiöi um nútima tónsmiðatækni, auk þess sem verk hans verða leikin á tónleikum. Jane Manning, er einkum kunn fyrir túlkun sína á nútímatónlist og mun hún halda söngnámskeið á hverjum degi hátíðarinnar. Hún mun einnig halda tónleika þar sem m.a. veröa flutt ný verk, sérstaklega samin fyrir hana af íslenskum tónskáldum. Sett verður á sto&i 85 manna samnorræn sinfóníuhljómsveit og mun hinn þekkti bandaríski hljómsveitar- stjóri Arthur Weisberg stjórna hennL Einleikari verður Diana Kennedy, vióluleikari frá Bandarík junum. Arthur Weisberg hóf feril sinn sem fagottleikari við góðan orstír. Hljómsveitarstjóm nam hann hjá Jean Morel við Juliard skólann. Árið 1960 stofnaöi hann 12 manna kammersveit: The Contemporary Chamber Ensamble. Kammersveitin hefur getið sér gott orð víða um heim. Húnhefur leikiö inn á hljómplötur mörg helstu meistaraverk 20. aldarinnar og þar að auki hefurWeisberg unnið ötullega að þyj . að kynna ný verk áður óþekktra tónskálda. Fyrir nokkrum árum færöi hann út kvíamar og stofnaði hljómsveit til að annast flutn- ing nýrra sinfónískra verka: The Orchestra of the 20th Century. Diana Frances Kennedy er fædd áriö 1952. Hún stundaöi nám við Kaliforníuháskólann og síðar við Yale háskólann og lauk meistaraprófi þaðan áriö 1979. Meðalkennara hennar hafa verið Sol Greitzer og Raphael Hillyer. Frá árinu 1976 hefur hún leikiö með sinfóníuhljómsveitinni í New Haven og The Orchestra of the 20th Century. Tónleikar á Ung Nordisk Musikfesti- val verða af ýmsu tagi, kammertón- leikar, tónleikar með elektrónískri músík og Sinfóníuhljómsveit Islands verður með tónleika undir stjóra Guðmundar Emilssonar. Einleikari á þeim tónleikum verður Roger Carls- son, slagverksleikari, frá Svíþjóð. -EG Nánari upplýsingar á öllum afgreiðslustöðum bankans. ÚTVEGSBANKINN Rinmitt hankinn fvrir biö. öll ráð á hendí? Eða gætu nokkur holl ráð á fjárhagssviðinu bætt um betur? Þjónusta ráðgjafans í Útvegsbankanum stendur öllum viðskiptamönnum hans til boða, og hún veitist þeim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.