Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Síða 36
44 DV. MANUDAGUR13. SEPTEMBER1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Stallone: það má segja að hann sé orðinn boxari enda þótt hann hafi aldreibaristíalvöru. STALLONE VILL BERJAST m A TVINNUMENN í BOXI Sylvester Stallone hefur æft box svo lengi, án þess nokkru sinni að berjast í alvöru, að hann er hreinlega orðinn óður í almennilegan slag. Hann hefur nú lokið þriðju Rocky myndinni. Fyrri myndimar tvær höluðu inn fjármuni og engin ástæða er til að ætla annað en að sú þriðja geri það líka. Sylvester „Rocky” sagði í viötali á dögunum að hann vildi berjast einn boxleik. „Mér er sama þó það væri hérna heima hjá mér. Þess vegna í svefnherberginu. Ég er búinn að æfa svo lengi aö ég vil gjaman sjá hvort ég geti eitthvað.” Kvikmyndafyrir- tækin eru ekkert hrifin af hugmyndum Stallones um að berjast einn leik við atvinnumann. „Það er verið að berja nýbyrjaða boxara daginn út og daginn inn,” sagði fulltrúi fyrirtækis Rockys, en þaö er bara einn sem getur leikið Rocky. ” Stallone reyndi eins og hann gat að fá atvinnuboxara til að leika á móti sér í Rocky 3. Hann reyndi bæði Joe Frazier og Ernie Shavers. „Ég var með fjögurra spora skurð eftir Frazier,” segir Stallone” og ég lærði sitthvað af honum.” Um Shavers segir hann: „Það er Emie Shavers sem kenndi mér þaö í eitt skipti fyrir öll að ég get ekki lifaö án lungnanna. Hann baröi lungun næstum úr mér.” Þessir atvinnumenn eru svo vanir því að berja menn í klessu að þaö þýðir ekki aö biöja þá um aö halda aftur af sér.” Aö lokum fann hann náunga sem kallaöur er Herra T. Sá var lífvörður boxaranna Muhammed Ali og Leon Spinks. Stallone á vart orð til að lýsa hrifn- ingu sinni á Herra T. Hann hefur eina góða sögu af samskiptum þeirra er þeir voru að leika boxsenu í Rocky 3. „1 lokalotunum bað ég hann um að berja svolítið fast, til að þetta yrði raun- verulegt. Herra T. æstist allur upp, enda 6 þúsund manns i salnum, og ég hélt hreinlega að hann ætlaði að ganga frá mér. Eg var með verki í 2 vikur eftir senuna.” Ekki furða því að Stallone mátti þola nefbrot, rifbeins- brot og meiðsli á hnakka eftir upptök- urnar! Gledjistallirgumar: Grístvöer á leiðinni Jaja, þá er búið að gera annan hluta Grease. Auðvitað, framleiðendur Grease græddu 181 milljón dala þannig að vitaskuld varð aö gera aðra mynd. Að sögn þeirra sem hafa séð seinni myndina er hún enn verri en hin fyrri. En þaö þýðir víst ekki að segja Travolta aödáendum að myndin sé léleg. 1 stað Travolta er kominn maöur nokkur, ákaflega likur Nonna Trafala. Sá heitir Maxwell Caulfield og er tuttugu og tveggja ára gamall. 1 stað Olafíu er komið sápuauglýsingamódel Morgunblaðsins sjálf Michelle Pfeiffer en hún er ægifögur eins og þeir sem séð hafa sápuauglýsinguna á baksíðu sunnudagsblaös allra landsmanna getavitnaöum. Söguþráöurinn í Grease 2 er eitthvað á þessa leið: Enskur strákur kemur í Rydel skólann. Hann er náttúrlega ekki í T-Bird genginu og því verður hann aö grípa til annarra ráða. Tjallinn atarna er auðvitað Caulfield sjálfur. Til að ota sínum tota slær hann um sig með tilvitnunum í Sjeikspír og aukinheldur lætur hann líta svo út að hann sé breska útgáfan af mótorhjóla- gæjanum E vel Knievel. Að sögn kunnugra stendur tónlistin töluvert að baki tónlistinni í Grease en dansatriðin munu vera nokkuð vel úr garði gerð enda leikstjórinn Patricia Birch, sjálf dansmeistari. Eins setja aukaleikarar eins og Loma Luft, Sid Ceasar, Connier Stevens og Tab Hunter skemmtilegan svip á myndina. í stað Travolta og Newton-John eru komin Maxwell Caulfield og Michelle Pfeiffer í Grís. V M&m****•- Halga Jónsdóttír i hlutverki þingkonunnar. Seltjamarnes, miðvikudagur 8. september, Taka myndarinnar, Á hjara veraldar, er í f ullum gangi. Leikstjórinn Kristin Jóhannes- dóttir leggur leikaranum Amari Jónssyni linurnar. Sigurður Pálsson, aðstoðarleikstjóri grípur gjallar- hornið: „Tilbúin í töku? Hljóð?” „Gengur er svarað — ,Jdynd?” — „Gengur, merkja! ” Sigurður gengur fram fyrir myndavélina með klapptré á lofti: ,3cene seven, slate one-forty, take one”. Klapp! „Action”. Taka er hafin. Amar Jónsson liggur á grúfu. Háriö litað rautt, frakkaklæddur. Hann rís hægt upp . Eldri maður er skammt frá og slær með orfi og ljá. Arnar dregur byssu upp úr vasa sinum, miðar rólega og skýtur .. . „Kött” kallar leikstjórinn., Jlvemig varhúnhjá þér?” Blaðamaður DV heimsótti kvikmyndatökuf ólkið á dögunum þar sem það var að störfum á Selt jamar- nesi rétt við golfskálann. Kristín Jóhannesdóttir, leikstjóri myndarinnar og aðstoðarmaður hennar, Sigurður Pálsson, voru innt eftir því þvernig tökur heföu gengið. Þau voru mjög ánægð. Sögðu að hópurinn væri prófessíonal og mjög samstilltur. Eins hefðu þau verið með ólíkindum heppin með veður. Raunar svo heppin að er þau vom við kvikmyndatöku við Skaftárósa kom besta veður í 34 ár. Og staðurinn skartaði sinu fegursta, eða eins og Sigurðurlýstiþví: „Panórama.tveir jöklar, hafið, ströndin og sunnan- vindamir.” Kvikmyndin hefur verið tekin í Reykjavík á Seltjarnamesi, við Skaftárósa eins og áöur segir, auk þess sem kvikmyndafólkið drap niður fæti á bernskuslóðum föður Kristínar i öxnadalnum og víðar. Taka myndarinnar er vel rúmlega hálfnuö. Hlé verður gert á tökum 15. september en þráðurinn tekinn upp að nýju er vetur konungur hefur ■■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.