Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1982, Síða 37
DV. MANUDAGUR13. SEPTEMBER1982.
45
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
„Práfessjónal og samstillt llð"
vinnurnúað töku nýrrar myndar
—Á hjara veraldar undir stjóra
Krístínar Jóhannesdóttur
hafiö innreiö sina í nóvember.
Siguröur aöstoðarleikstjóri var
beðinn um að gera lítillega grein
fyrir efni myndarinnar. Hann sagði
aö þetta væri mynd um fjölskyldu-
átök sem tengdust mjög náiö hita-
málum, svo sem orkumálum og
sakamálum. „Þetta er ástríðu-
þrungin mynd, en meö glettnu ívafi
um móöur, son og dóttur.”
Sem fyrr segir er Kristín
Jóhannesdóttir leikstjóri og
handritshöfundur og Sigurður Páls-
son, aöstoöarleikstjóri. Kvikmynda-
tökumaöur er Karl Oskarsson, en
honum til aðstoðar þeir Einar Berg-
mundur og Olafur Rögnvaldsson.
Hljóöupptökumaður er Siguröur
Snæberg Jónsson og honum til
aöstoöar er Jón Karl Helgason. Leik-
myndir geröi Sigurjón Jóhannesson
og aöstoðarmaöur hans er Geir
Ottarr Geirsson.
Förðunarmeistarinn er
Guörún Þorvaröardóttir og skrifta er
Oddný Sen. Framkvæmdastjórar
eru þau Helgi Gestsson og Auöur Eir
Guömundsdóttir. Aöalhlutverkin
leika Arnar Jónsson, Helga Jóns-
dóttir og Þóra Friöriksdóttir. Um
12—15 leikarar fara meö lítil en
veigamikil hlutverk. Auk þeirra er
töluveröur slatti af smáhlutverkum.
Meöal leikara má nefna: Pétur
Einarsson, Borgar Garöarsson,
Valdemar Helgason. Auk þess er
fjöldi statista s.s. Viðar Víkingsson,
Dagur Sigurðarson, Möröur Arna-
son, Jónas Sen, og síöast en ekki síst
Siguröur Pálsson. Þaö er ekki á
margra vitoröi aö hinn síöastnefndi
hefur leikið í nokkrum myndum,
geröum á ríkiskvikmynda-
skólanum franska. Á hjara veraldar
veröur frumsýnd í mars á næsta ári.
Þangað til veröa kvikmyndaunn-
endur aö láta sér nægja ljósmynd-
imar hér á síðunni sem Páll Stefáns-
son, „hirðljósmyndari íslensk-
frönsku bylgjunnar” tók af kvik-
myndatökunni.
-ás.
„Hún kom i upphafí tíi min eins og hugljómun. Ég sá þessa mynd eitt kvöld standa mór fyrir hugskots-
sjónum með ógnarhraóa, og þessi upplifun kom mór þannig fyrir eins og þetta hefði aiit gerstsagði
Kristín Jóhannesdóttír iHP viðtali 6. ágúst siðastíiðinn.
Hin illu öfi á ferð: Mörður Ámason Komml, Gulli Stjama, Jónas Sen og
Dagur Sigurðarson.
Kristín Jóhannesdóttír ieikstjóri ásamt Amari Jónssyni og Helgu Jónsdóttur. Maðurinn sem Amar leikur
er fyrrverandi sjómaður en er Ijósamaður i leikhúsi er atburðimir sem myndin týsir gerasL Konan sem
Heiga leikur er þingmaður.
A Nesinu: Sigriður Dúna Kristmundsdóttír og Kristin Bjamadóttír.