Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982.
3
Af flokksþingi Framsóknarflokksins:
Konur
höfnuðu
foirétt-
indum
við kjör f miðst jórn f lokksins—tillögu
um að loka þinginu fyrir fréttamönnum
vísaðfrá
Átjánda flokksþingi Framsóknar-
Rokksins lauk i gærkveldi eftir að
gengið hafði veriö frá
stjórnmálaályktun flokksins.
Nokkrar breytingar voru gerðar á
skipulagi flokksins, meðal annars var
fjölgaö í miðstjóm hans um tíu
fulltrúa. Fram til þessa hefur
miðstjórnin verið skipuð 25 fulltrúum
kosnum á flokksþingi, alþingis-
mönnum, fulltrúum hvers kjördæmis,
formönnum kjördæmasambanda og
formanni SUF en héðan í frá munu
bætast við formaður verkalýðsmála-
nefndar Framsóknarflokksins, for-
menn launþegaráða og formaður
Það var skoðun Helga H. Jóns-
sonar að menn ættu að geta
gagnrýnt flokksforystuna án þess
að þurfa að horfa framan i
blaðamann Morgunblaðsins á
meðan og þvi vildi hann láta loka
þinginu fyrir fróttamönnum. Á
myndinni er Friða Proppó blaða-
maður Morgunblaðsins að störfum
ó þinginu.
„Þeir eru góðir leiðararnir i Tímanum ..." Ólafur Jóhannesson og Kristinn Finnbogason stinga saman
nefjum.
Auk þess sagöi hún aö þátttaka
kvenna í þessu þingi hefði verið áber-
andi meiri en áður og þær virkari í
störfum þess.
Helgi H. Jónsson fréttamaöur á
Ríkisútvarpinu, sem var fulltrúi á
þinginu, bar fram tillögu þess efnis að
þinginu yrði lokað fyrir frétta-
mönnum. Röksemdir hans voru þær að
þingfulltrúar ættu að geta talaö
óþvingað og gagnrýnt forystu
flokksins án þess að þurfa að horfa
framan i biaöamann Morgunblaðsins á
meðan. Þessari tillögu var vísað frá,
enda var búið aö bjóða öllum fjöl-
miðlum að senda fréttamenn á þingið
og skipaður hafði verið sérstakur
blaðafulltrúi þeim til aðstoðar.
Af aragrúa samþykkta sem gerðar
voru á flokksþinginu má nefna ályktun
um að hlustendum Ríkisútvarpsins
skuli veitt aukin aðstaða til að velja
um dagskrár. Ætti það að gerast með
því að koma á annarri rás útvarpsins,
koma upp aðstööu til útsendinga í
öllum landsfjórðungum og hefja
staðbundið útvarp og veita lands-
samtökum og sambærilegum aðilum
aðgang að útsendingarkerfi útvarpsins
fyrir eigin dagskrá. Jafnframt taldi
þingiö að til álita kæmi aö veita öörum
aöilum leyfi til að útvarpa og
sjónvarpa að fullnægöum ákveðnum
skilyrðum.
Þingið lýsti einnig ánægju sinni með
fréttir og forystugreinar Tímans.
-ÓEF.
Þingfulltrúar lásu DV af miklum áhuga ó meðan framsögumenn fluttu
langar tölur sinar.
Landssambands Framsóknarkvenna.
Á þinginu kom fram tillaga um aö
konur fengju ákveðinn fjölda fulltrúa
við kjör í miöstjóm flokksins en Lands-
samband framsóknarkvenna óskaði
ekki eftir því að það gengi fram og var
tillagan ekki samþykkt. Aö sögn
Ragnheiðar Sveinbjömsdóttur for-
manns flokksmálanefndar var á-
stæðan fyrir því að Landssamband
framsóknarkvenna lagðist gegn til-
lögunni sú að átta konur heföu verið
kosnar í miðstjórn án þessara for-
réttinda og því yrði aö telja þau óþörf.
Mini-Table (Barnaboró)
Family Roller..........
Stiga Privato..........
Privat Roller..........
Elite Roller, keppnisboró
/'TIGIV
BORD TENNIS VÖRUR
UTIUF