Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. Columbia: Lendir í dag. Columbía lendir í dag Áhöfn geimskutlunnar Columbíu er sögö viö bestu heilsu og í léttu skapi, en hún mun snúa til jaröar í dag og lenda í Kalifomíu kl. 14.34. Gönguferð tveggja geimfaranna út í geiminn hefur verið aflýst, því aö í ljós kom að milljón dollara geimfara- búningamir vom gallaðir. En stjóm- endur geimferðarinnar segja að ferðin hafi að öðru leyti tekist fullkomlega. Aöalverkefnið var að setja á loft tvo fjarskiptahnetti í eigu einkafyrirtækja og var því lokið áður en tveir sólar- hringar vom liönir frá flugtaki. Ýmsar bilanir, sem ollu mönnum áhyggjum áður en Columbíu var skotið á loft, hafa ekki látið á sér kræla í ferð- inni. Skutlan mun fara 81 hring umhverfis jörðina áður en hún lendir í dag. Það verður nokkur bið á því að Columbía verði send aftur á loft. Það verður ekki fyrr en í september á næsta ári. Áöur á að gera á skutlunni ýmsar breytingar svo að hún geti flutt heila geimrannsóknarstöö með sér. önnur geimskutla, Callenger, á að fara i sína jómfrúarferð í janúar næst- komandi og síðan tvær feröir til viðbót- ar á sex mánuðum. — Geimskutlurnar eiga alls aö verða fjórar samkvæmt núgildandi geimferöaáætlun Bandaríkjastjómar. Fyrirtækin sem eiga fjarskipta- hnettina er Columbía setti á loft segja aö þeir virki eins og til var ætlast. BASKAR RÆNA Rúmlega 5000 Baskar tóku í gær þátt í mótmælagöngu í samúðarskyni við iðnjöfur sem baskískir skæruliðar hafa rænt. Kref jast skæruliðarnir þess að fá félaga sína lausa úr fangelsi. Mótmælagangan fór fram í grenj- andi rigningu í Baskaborginni Zumarr- aga. Var gangan farin á vegum verka- lýðsfélaga og stjórnmálamanna sem krefjast þess aö iðnjöfrinum, Satum- ino Orbegozo, verði sleppt. Honum var rænt á leið til kirkju. Fulltrúar ETA (heimastjómar- flokks Baska) sendu þau boðsímleiðis i gær til Baskablaðs nokkurs að þeir hefðu rænt hinum 69 ára gamla iðnjöfri og krefðust í stað hans frglsis fyrir fangelsaða félaga sína. Þátttakan í mótmælagöngunni var mikil miðaö við stærð borgarinnar sem hún för fram í. Telja menn það merki um aö Baskar séu sjáifir farnir að missa þolinmæði með skæmliöum og ofbeldisverkum þeirra. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Fyrsta glasabant ið austan tjalds Nýlega fæddist fyrsta glasabam- sjúkrahúsi í Bmo og segir í frétt ið í Tékkóslóvákíu og er þetta jafn- þaðan að bæði móðir og bam séu framt fyrsta tilraunaglasabarnið við bestu heilsu. austantjalds. Barnið fæddist á KOMDU . KRÖKKUNUM Á OVAKT! Fardu til þeirra umjólin Mömmur, pabbar, systur, bræöur, afar, ömmur, frændur, frænkur, synir, dætur og vinir geta nú brugðið undir sig betri fætinum og farið sjálf með jólapakkana og hangikjötið til útlanda. Ástæðan er auðvitað hin hagstæðu jólafargjöld sem Flug- leiðir bjóða til Norðurlandanna. Fargjöld báðar leiðir eru sem hér segir: Kaupmannahöfn Gautaborg Osló Stokkhólmur kr. 4.653.00 kr. 4.598.00 kr. 4.239.00 kr. 5.304.00 Bamaafsláttur er 50%. Fargjöldin taka gildi 1. des. Upplýsingar um skilmála og ferðamöguleika veita söluskrif- stofur Flugleiða , umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi Kosningarnar í Brasiliu: 58 milljónir kusu Kosningarnar í Brasilíu munu hafa gengið árekstralaust fyrir sig að und- anskildu því að einn kosningastarfs- maður stjómarandstöðuflokks var stunginn til bana í Sao Paulo. Nær 58 milljónir Brasilíumanna skil- uðu atkvæði í kosningunum í gær, kosningin heldur áfram á dag. Talning atkvæða er hafin, en landið er stórt og sums staöar eru byggöir einangraðar, svo að hvortveggja tekur tímann sinn, kosningin og atkvæðatálningin. Kosið var í ríkisstjóraembættin, til þingsins og í önnur embætti og þykja þetta mikilvægustu kosningar sem igær fram hafa farið í Brasilíu síðan 1960, en þá var Janio Quadros kosinn forseti landsins. Hann sagði af sér eftir átta mánuði og við tók þá Joao Goulart, sem þótti vinstrisinna. Var honum bylt af hernum 1964 og hefur herinn farið meö stjómina í Brasilíu þau átján ár semsíðan eruliðin. Joao Figueiredo, núverandi forseti, hefur heitið því að koma á fullkomnu lýðræði í landinu áður en sex ára emb- ættisskeið hans er á enda. Þessarkosn- ingar eiga að vera fyrsti áfanginn í þeirriáætlun. ÓSA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.