Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982.
Lesendur Lesendur Lesendur
„Nú hetur veríð undirritaOur semningur á milli FlugleiOa og SAS um aukið samstarf þessara fíugfHaga
um áætlunarfíug á milli íslands, Danmerkur, Noregs, og SvíþjóOar," — segir 2S32-2S75.
Samstarf SAS og Flugleiða:
„SAS er alvöruf lugfélag með
ábyrgan forstjóra”
2532-2975 skrifar:
Nú hefur verið undirritaður samn-
ingur á milli Flugleiða og SAS um
aukið samstarf þessara fiugfélaga um
áætlunarflug á milli Islands, Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar.
Viðræður eru hafnar um aukið sam-
starf í þjálfun, viðhaldi og leigu á flug-
vélum. Einnig er rætt um að vinna
saman að sölu og markaðsmálum,
segir í f réttatilkynningu um málið.
Skyldi fólk kannast við orðalagiö!
Svona voru fréttatilkynningarnar sem
gefnar voru út þegar viðræður hófust
um sameiningu flugfélaganna, Loft-
leiða og Flugfélags Islands, á sínum
tíma.
Og nokkru síðar varð sú sameining
að veruleika. Nú hefur íslenska ríkið
þurft um nokkurt skeið að brauðfæða
Flugleiðir, m.a. með eftirgjöfum á
lendingargjöidum og öðrum þjónustu-
gjöldum til ríkisins. — Og á fjárlögum
er áætlað að ríkið taki að láni, erlendis,
34 milljónir króna til þess að geta stutt
þetta vandræðabarn ríkis og skatt-
borgara landsins.
Þetta á, eftir að ræða á alþingi. Vart
verður því trúað að þingmenn, sem
allir lýsa því yfir að erlend lán séu nú
þegar komin í hámark, styðji enn á ný
erlendar lántökur fyrir rekstrarút-
gjöldum Flugleiða. Það er opinbert
leyndarmál að það er ekki Atlantshafs-
flug félagsins, sem er til trafala,
heldur flugið milli Islands, Norður-
landa og Bretlands. — Þess vegna eru
nú hafnar viðræöur um samvinnu viö
SAS.
Þaö liggur lika í augum uppi að þessi
,.samvinna” við SAS mun ekki enda
með neinu ööru en algjörri sameiningu
í fyllingu tímans. Auðvitað verða það
engin vonbrigði fyrir ríkisvaldið að
SAS taki yfir þetta vandræðabam
íslenskra f lugmála.
Hitt er auövitað hlálegt að hiö opin-
bera skuli ekki fyrir löngu vera búið
aö sjá hversu gagnslaust þaö er að
styðja Flugleiðir með fjármunum
skattborgaranna ár eftir ár, án þess aö
nokkur batamerki sjáist á rekstri
þessa fyrirtækis.
Á sama tima og þjónustu Flugleiða
fer hrakandi eru yfirmenn fyrir-
tækisins látnir koma fram í fjölmiölum
og lýsa brautryðjendastarfi í baráttu
gegn alkóhólisma hjá starfsfólkinu.
Ljótar aðferðir þaö.
Þaö er ekki ein báran stök hjá þessu
aflasæla fyrirtæki í sameiginlegum
sjóöi landsmanna. En nú sér brátt
fyrir endann á þessu basli Flugleiða
með samvinnunni við SAS og síðar
algjörri sameiningu.
Þá fyrst geta landsmenn vænst þess
að f jármál og rekstur Flugleiða verði
tekin föstum tökum, því SAS er alvöru-
flugfélag með ábyrgan forstjóra.
Geirfuglaskrif um Flugleiöir
SvarFlugleiða:
Flugleiðir sjá ekki ástæðu til að
svara rógskrifum 2532-2975, sem sam-
kvæmt þjóðskrá er Geir R. Andersen,
nú frekar en áður. Geir starfaði hjá
Flugleiðum frá árinu 1973 til 1980 í
þeirri deild sem sér um mat í flugvél-
amar. Hann lét af störfum árið 1980 og
er greinilega þeirrar skoðunar að þar
með hafi endalok Flugleiöa verið ráð-
in. Geir gerðist nú skyndilega sérfræð-
ingur í flugmálum og flugrekstri. Þessi
snöggsoðna sérþekking birtist í formi
óhróðursskrifa um Flugleiðir, stund-
um undir nafni en þó oftar undir ýms-
um dulnefnum.
Sú staðreynd að Flugleiðir lögðu ekki
upp laupana er hann hvarf úr þjónustu
fyrirtækisins virðist þyngri kross en
svo að Geir R. Andersen geti borið með
góðu móti. Svo ekki sé minnst á það að
félaginu hefur tekist að yfirvinna
mestu erfiðleikana sem að því steðjuðu
og reksturinn hefur komist í mim betra
horf. Landsmenn eru stoltir af Flug-
leiðum, en það getur enginn verið stolt-
ur af geirfuglaskrifum Geirs R.
Andersen — nema ef til vill hann sjálf-
ur.”
Nemendaleikhús LÍ.:
Athugasemdir vegna viðtals
Frá Nemendaleikhúsi Leiklistarskóla
tslands:
Vegna viðtals þess við okkur, sem
birtist í DV þann 3.11., sjáum við undir-
rituð okkur tilneydd að gera örfáar at-
hugasemdir.
I viðtalinu eru ýmsar fullyrðingar
eftir okkur hafðar, sem eru gjörsam-
lega slitnar úr samhengi og rökstuön-
ingi fyrir þeim, sem kom þó fram í við-
talinu við okkur, algerlega sleppt.
Allt of langt mál yrði að fara að leið-
rétta hvert einstakt atriði, en þó getum
við ekki látið hjá líða að leiðrétta al-
varlegan misskilning sem kemur fram
í eftirfarandi setningu: .. .„En það er
leitt að stofnanatannhjólið hefur dreg-
ið allt ferskt og nýtt niður..— I
samhengi við það sem á undan kemur í
viðtalinu mætti skilja þessa fullyrð-
ingu sem svo að hún eigi við stofnana-
leikhúsin og að við séum að vega illi-
lega að þeim. En það sem við áttum við
með þessari setningu er að það er fjár-
veitingavaldið sem hefur löngum dreg-
ið allan kjark og líf úr frjálsum leik-
hópum hér, vegna skilningsleysis og
fjársveltis.
Við viljum einnig taka það fram að
ekki dettur okkur í hug að halda því
fram að Ritva Siikala sé eini leikstjór-
inn sem lítur á samstarfsmenn sína
sem listamenn, eins og mætti skilja á
síðasta svari okkar í viðtalinu, eins og
blaðamaður setur þaö fram.
Svar blaöamanns:
Blaðamaður DV átti langt spjall við
leiklistarnema í Nemendaleikhúsinu á
dögunum. Þegar blm. vann viðtalið
varð að stytta það töluvert mikið og
því var vitaskuld sú hætta fyrir hendi
að ónákvæmni gætti er svör þeirra
voru tíunduð. Á hinn bóginn má benda
á þaö aö leiklistarnemar gerðu ekki
neinar athugasemdir við þau atriði
sem þeir gera athugasemd við hér að
ofan, og gafst þeim þó tækifæri til þess.
Það er von mín að þó aö stytting á við-
talinu hafi veriö ófullnægjandi, skaði
það ekki Nemendaleikhúsið. Oska ég
Nemendaleikhúsinu áframhaldandi
velgengni.
ás.
17
PRÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
28.-29. 11. 1982
SKRIFSTOFA STUÐNINGSMANNA
PÉTURS SIGURÐSSONAR
SKIPHOLTI 31, GOTUHÆÐ
(Vestan við Tónabíó)
VERÐUR OPIN KL. 12 - 23 ALLA DAGA.
SÍMAR: 25217 OG 25292
FAM
RYKSUGUft
Haukur og Ólafur
Ármúla 32-Sími 37700.
TIL SÖLU
18 rúmlesta fiskiskip, smíðað
árið 1979.
Allar nánari upplýsingar vcittar á skrifstofu Fiskvciðasjóðs Islands í síma 28055 og hjá Valdimar
Einarssyni í síma 33954.
Tilboðóskast scnt Fiskvciðasjóði Islands, fyrir 1. dcscmbcrnk.
Fiskveiðasjóður íslands.
NÝ ÞJÓNUSTA
PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR,
VERKLÝSINGAR, VOTTORÐ,
MATSEÐLA, VERÐLISTA,
KENNSLULEIÐBEININGAR,
TILBOÐ, BLAÐAÚRKLIPPUR,
VIÐURKENNINGARSKJÖL, UÓSRITUNAR-
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STÆRÐ ALLT AÐ 45x60 CM.
OPIÐ KL. 9-12 OG 13-18.
LÆKJARGÖTU 2, NÝJA-BlÓHÚSINU © 22680
sending“\
Kuldaskór á karlmenn
fyrir veturinn
Teg: Dan-naturform.
Litur: natur.
StærOir: 36-46.
Teg.Sic.
Litur: Ijósbrúnn.
Stærðir: 40—46.
Teg: Sic.
Litur: brúnn.
Stærðir: 41—46.
Teg: Humanic.
Utur: brúnn.
Stærðir: 41—46.
SKOFATN AÐU R
Á ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Skó-
yerslun
HomrQBbofQ 0 - Simi 41754