Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 18
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982.
Skrifstofustarf
Skrifstofustarf V hjá Rafveitu Hafnarfjarðar er
laust til umsóknar. Grunnlaun samkvæmt 10.
launaflokki. Umsóknum skal skilað á sérstökum
eyðiblöðum fyrir 24. nóvember næstkomandi til
rafveitustjóra sem veitir nánari upplýsingar um
starfið. Rafveha Hafnarfjaróar.
• •••••••**-* »••••••••••••••••• «•••••••••••••••
HÚSEIGENDUR
Önnumst alhliðagluggasmíði;
franskir gluggar,
laus fög,
viðgerðir á gömlum gluggum,
glerísetningar.
Smíðum eldhúsinnréttingar, önnumst einnig
breytingar á gömlum innréttingum.
Uppl. á verkstæðinu daglega í síma 16980 milli kl.
10 og 12f.h.
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMIíMMMMMMMMMMg
Blaðburðarbörn
NU ER VERIÐ AÐ RÁÐA FYRIR
VETURINN
Látið skrifa ykkur á biðlista
BLAÐBERAR ÓSKAST í EFTIRTALIIM HVERFI STRAX
• Eiríksgata
• Arnarnes
• Aragata
• Hagar I
• Hagarll
AFGREIÐSLAN
ÞVERHOLT111
SÍMI 27022
ia|a[a[aiaia[a[aia[a|a|a[a@|a|a@[a[aiaia[a[a@[a[a@@@|aia|
Verslanir!
Hm sivinsæla og myndarlega
JÓLAGJAFAHANDBÓK
kemur ut í byrjun
desember.
Þeir auglysendur sem ahuga
hafa á aö auglýsa í JÖLA-
GJAFAHANDBÓKINNI vin-
samlegast hafi samband viö
auglvsingadeilda »L*J
Síöumúla 33, Reykjavík, eöa í
síma 27022 milli kl. 9 og 17.30
virka daga, sem allra fyrst.
SIMINIM
ER
27022
HAFIÐ SAMBAND
STRAX
Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi i Vöku ásamt hinum nýju höfundum, talið frá vinstri: Jón Ormur Hall-
dórsson, Guðni Kolbeinsson og Sæmundur Guðvinsson.
l\ ir rn
BókaútgáfanVaka:
ÞRÍR NÝIR HÖFUNDAR
KVEÐJA SÉR HUÓDS
Fyrstu bækur þríggja íslenskra
höfunda eru nú komnar út hjá bóka-
útgáfunni Vöku. Þaö eru Mömmu-
strákur eftir Guöna Kolbeinsson, Viö
skráargatiö eftir Sæmund Guðvins-
son og Spámaöur í fööurlandi eftir
Jón Orm Halldórsson. Allir eru þeir
kunnir fyrir önnur störf sín, Guðni
sem þýðandi og íslenskufræöingur,
Sæmundur sem fyrrverandi frétta-
stjóri DV og núverandi blaöafulltrúi
Flugleiöa og Jón Ormur sem aöstoö-
armaður forsætisráöherra.
Á blaöamannafundi, sem haldinn
var í nýjum 'húsakynnum Vöku að
Síðumúla 29, kynntu höfundamir
bækur sínar. Guöni Kolbeinsson
sagöi um bók sína, Mömmustrákur,
aö hún væri fyrir börn á öllum aldri.
Upprunalega var sagan samin til
lestrar í útvarp en þróaöist smám
saman yfir í bókarform. Guöni
kvaöst hafa prófaö söguna á bömum
sinum og heföu undirtektir þeirra
oröið sér hvatning til aö gefa hana út.
Bók Guöna er um 100 síöur aö stærö.
Bók Sæmundar Guðvinssonar, Viö
skráargatiö, er aö sögn höfundar
svipmyndir úr daglega lífinu, séðar í
spéspegli. Sæmundur sagöi að þessi
bók hefði veriö lengi í bígerð hjá sér.
Hann kvaöst halda aö það væri
draumur margra blaðamanna að
semja bók og að hin nýja bók væri
safn stuttra þátta um lífið og tilver-
una hjá venjulegri fjölskyldu í
Reykjavík. Græskulaust grin situr i
fyrirrúmi.
Sæmundur hefur áöur skrifaö vin-
sæla pistla í blöð og tímarit. Viö skrá-
argatiö er 132 síður aö stærö.
Bók Jóns Orms Halldórssonar
fjallar um deildarstjóra í ráöuneyti,
sem snýr sér aö því aö reyna aö bæta
heiminn í kringum sig, fyrir tilverk-
an óvæntra atburöa. Nefnist bókin
Spámaöur í fööurlandi.
Jón Ormur kvaö hugmyndina aö
þessari bók hafa blundaö lengi meö
sér en hún heföi síðan verið skrifuö í
hjáverkum að mestu. Jón sagði að
persónur bókarinnar væru hreinn
skáldskapur og ef menn teldu sig
þekkja einhverja ákveðna menn að
baki þeim væri slíkt algerlega á
þeirra eigin ábyrgö. Reynsla sín af
ráöuneytisstörfum heföi þó vissulega
komiö sér að gagni viö ritun bókar-
innar.
Ölafur Ragnarsson, forstööumað-
ur Vöku, lét þess getið aö allar þess-
ar bækur hefðu oröiö til fyrir hvatn-
ingu eöa frumkvæði forlagsins. Hann
sagöi aö þær væru innbyrðis ólíkar
en ættu þó allar sameiginlegan
ákveöinn bjartsýnistón.
Vaka gefur út á þessu ári um 30
titla, þar af 14 nú fyrir jólin. Af þeim
14 eru íslenskir höfundarníutalsins.
Rit um atvinnuréttindi
útlendinga hérá landi
„Upplýsingarit þetta er ætlað út-
lendingum, þ.e. ríkisborgurum ann-
arra landa en Islands, sem hafa hug
á aö ráöa sig til starfa hér á landi.
Einkum er þaö ætlaö þeim sem leita
til Islands í fyrsta sinn í þessu
skyni og eru því ókunnir íslenskum
vinnumarkaöi og þeim reglum sem
hér gilda um dvöl útlendinga í land-
inu.” Þannig hefst formáli í bæklingi
um atvinnuréttindi útlendinga á ís-
landi sem Vinnumálaskrifstofa
félagsmálaráöuneytisins hefur látiö
prenta. Bæklingurinn er bæöi gefinn
út á ensku og íslensku.
Samkvæmt 5. grein laga nr.
26/1982 um atvinnuréttindi útlend-
inga ber Vinnumálaskrifstofunni að
útbúa og dreifa skriflegum upplýs-
ingum þar sem greint er frá reglum
um dvalarleyfi og atvinnuleyfi, al-
njgnnum launakjörum, vinnutíma,
sköttum og opinberum gjöldum og
ööru sem snertir útlendinga er
hyggjast leita eftir atvinnu hér á
írMK.OVV.r.N Í JN IŒLANI j
PRACTICAL INFORMATION
fo; J'wmpr: Naiioiuds.
landi. Þessar upplýsingar er allar að
f inna í umræddum bæklingi. -JGH.
Úlfljótur gefur út
lögin um einkamál
—ásamt greinargerðum
Ulfljótur, tímarit laganema, hefur
nýlega gefiö út sérprentun af lögum
um meöferö einkamála í héraöi nr.
85/1936 meö síöari breytingum og
safn greinargerða viö þau lög. Er
þar um að ræöa greinargerðir viö
eftirtalin breytingalög: Lög nr.
52/1937, 32/1948, 100/1950, 33/1963,
7/1965, 59/1975, 14/1976, 80/1976 og
28/1981.
Bókinni er fyrst og f remst ætlaö aö
koma laganemum og lögfræðingum
ao gagm viö nám og störf. Umsjón
með útgáfunni höfðu Jón G. Finn-
bjömsson stud. jur. og Jón Höskulds-
sonstud. jur.
Lög um meðferð einkamála í hér-
aöi og safn greinargeröa er seld í
Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla
Islands og Bóksölu stúdenta
v/Hringbraut. Hún er 139 blaösíöur
aö stærö og er unnin í Ríkisprent-
smiö junni G utenberg.