Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 30
30 DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. I gærkvöldi í gærkvöldi Gott sjónvarp í gærkvöldi I gærkveldi var bará nokkuö gott sjónvarp, aö loknum fréttum komu Tommi og Jenni á skjáinn og sýndu listir sínar. Því næst var íþróttaþátt- urinn fastur og ómissandi liöur á mánudagskvöldum og þá er oft grip- iö inn í fleiri íþróttagreinar en knatt- spymu og lofar það góöu. Var þaö góö afþreying aö horfa á fimleika- stúlkur sýna listir sínar. Finnst mér afar mikilvægt aö fjölmiðlar reyni aö gera sem flestum íþróttagreinum góöskii. Einnig hóf nýr breskur gaman- myndaflokkur göngu sína, bar hann heitiö Tilhugalíf og fjailaði um vandamál stúlku sem gengur ekki út og piparsvein sem engin vill líta viö, og var hann nokkuð fyndinn á köfl- um. Síöast á dagskránni var kanadísk sjónvarpsmynd sem að sögn manna var nokkuð góð, en fór þó fram hjá mér. Sjónvarp á mánu- dagskvöldum er með mjög hefð- bundnu sniði og er óhætt að segja aö myndefni þaö sem sýnt er þessi kvöld hafi farið mjög til batnaðar. Ekki er lengur þröngvað upp á lands- menn aö horfa á botnlausar sænskar 10—15 ára myndir. Mánudagarþurfa ekki alitaf aö vera til mæöu. Margrét Sverrisdóttir. Andlát Sæmundur E. Kristjánsson sem lést 5. nóvember var fæddur 2. september áriö 1909 í Bildudal. Foreldrar hans voru hjónin Viktoría Kristjánsdóttir og Kristján Ámason. Sæmundur lauk vél- stjóranámi og var um árabil vélstjóri bæöi á sjó og landi. Jafnframt því vann hann mikið aö félagsmálum. Hann kvæntist áriö 1914 Benediktu Þorsteinsdóttur og eignuöust þau 4 böm. Fyrir hjónaband átti Sæmundur tvö börn. Hann verður jarösettur í dag kl. 13.30 fráFossvogskirkju. Hafþór Helgason sem lést af slysförum þann 26. október var fæddur 12. janúar árið 1945 í Reykjavík. Foreldrar hans vom Helgi J. Hafliöason bifvélavirki og Sigurbjörg Jónsdóttir. Hafþór hlaut skipstjómarréttindi áriö 1962. Áriö 1965 lauk hann einkaflugmannsprófi og var lengi framkvæmdastjóri og einn eigandi Vængja. Hann varö kaup- félagsstjóri, fyrst í Saurbæ í Dölum og síðar á ísafiröi. Áriö 1968 kvæntist hann Guðnýju Kristjánsdóttur og eignuðust þau þrjá syni. Minningar- athöfn fer fer fram í dag kl. 13.30 frá Isaf jaröarkirkju og frá Dómkirkjunni í Reykjavík á fimmtudaginn kl. 13.30. Ingunn Hildur Unnsteinsdóttir, sem lést af slysförum 5. nóvember sl., var fædd 14. október áriö 1967. Foreldrar hennar voru hjónin Lilja Kristiansen og Unnsteinn Guöni Jóhannsson. Útför Ingunnar veröur gerö frá Neskirkju í dagki. 15. Auðbjörg Jónsdóttir, Hjaröarhaga 56, er látin. Elka Jónsdóttir, Eiríksgötu 13, lést í heilsuvemdarstöðinni viö Barónsstíg 14. þ.m. Hólmlaug Halldórsdóttir, Goöheimum 21 Reykjavík, andaðist laugardaginn 13. nóvember 1982. Ingibjörg María (Baugga) Thompson, áður til heimilis aö Vesturgötu 21 Reykjavík, lést í Honolulu, Hawaii 6. nóvember sl. Ketill Jónsson frá Hausthúsum, Oðins- götu 8, verður jarösunginn frá Foss- vogskirkju miövikudaginn 17. nóv. kl. 15. Jónfriöur Guöjónsdóttir, fyrrum hús- freyja á Hóli í Svínadal, veröur jarð- sungin frá Akraneskirkju miövikudag- inn 17. nóvember kl. 14.30. Helgi V. Guömundsson sem lést þann 8. nóvember sl. var fæddur 18. nóvem- ber áriö 1906 í Hafnarfirði. Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon bif- reiöarstjóri og Stefanía Halldórsdóttir. Helgi tók gagnfræðapróf frá Flens- borgarskóla áriö 1923. Áriö 1934 stofn- aöi hann ásamt öörum fyrirtækið Áætlunarbílar Hafnarfjaröar. Þaö rak hann til ársins 1947. Helgi var kjörinn bæjarfulitrúi í Hafnarfiröi áriö 1950 og gegndi eftir þaö ýmsum trúnaöarstörf- um fyrir Hafnarfjaröarbæ. Áriö 1956 geröist hann gjaldkeri hjá bæjarfó- getanum í Kópavogi og gegndi því starfi til ársins 1976 er hann lét af störf- um. Helgi var ókvæntur. Hann veröur jarðsunginn í dag kl. 13.30 frá Aðvent- kirkjunni. Jarðsett veröur í Hafnar- fjarðarkirkjugaröi. Tilkynningar Jólaplöturnar farnar að berast Jólaútgáfan í ár hófst meö útgáfu plötu Mezzoforte, „4”, sem fengið hefur skinandi viötökur læröra og leikra. Fram til jóla eiga eftir aö koma fjórar plötur til viðbótar, sem flestar eru tilbúnar. Hin fyrsta kemur miö- vikudaginn 17. nóvember. Það er I mynd, nýja platan með Ego. Á henni veröa niu lög, öll eftir liðsmenn hljómsveitarinnar og öll meö textum eftir Bubba Morthens. Lögin heita: Fjöllin hafa vakað, Við trúðum blint, Sætir strákar, Manilla, Dauðakynsióöin, Mescalin, Guðs útvalda þjóð, 1 spegli Helgu og Daneing Regaae With Death. Upptökum stjórnaöi Tómas M. Tómasson í félagi við Louie Austin í Hljóðrita, en hljóöblöndun fór fram í Startling Studios í London. Viku síðar, miðvikudagmn 24. nóvember, koma tvær plötur. Það eru Aðeins eitt líf með Þú & ég og Tvær systur Jakobs Magnússonar. Plata Þú & ég var hljóðrituö í London sl. vor og sumar. Upptökum stjórnuðu Gunnar Þórð- arson og Geoff Calver. Á plötunni eru tíu lög eftir Gunnar, Jóhann Helgason, Magnús Sig- mundsson og Jóhann G. Jóhannsson. Textar eru eftir Þorstein Eggertsson, Jóhann G. Jóhannsson, Jóhann Helgason og Toby Her- man. Plata Jakobs, Tvær systur, var hljóðrituð að megninu til fyrrihluta þessa árs í Holly- wood i Kalifomíu og hér heíma en endanleg hljóðblöndun fór svo fram vestra nú í haust. Meö Jakob leika á plötunni flestir þeir sömu og hann hafði sér til aðstoðar á plötunni „Special Treatment”. Lögin á þessari plötu eru sjö og flokkast undir jass bræðing. Náms- og rannsóknastyrkir Fulbrightstofnunin hefur tilkynnt möguleika á náms- og rannsóknastyrkjum sem vert er að vekja athygli á. Er þar fyrst að nefna styrki frá The Rocke- feller Foundation til rannsókna í allt að þvi tvö ár. Umsækjendur þurfa að vera á aldrin- um 25—40 ára, hafa lokið formlegu námi og starfað að alþjóöamálum í nokkur ár. Fyrir- hugaðar rannsóknir séu á sviði menntamála, stjómvísinda, hagfræði, blaöamennsku, viö- skipta, lögfræöi, þjóðfélagsfræði eða raunvís- inda með alþjóöasamskipti i huga. Virðist þama um að ræða gott tækifæri fyrir þá sem hafa reynslu og áhuga á málum er snerta alþjóðasamskipti á breiðum grund- velli, og þá sérlega er snertir stefnumarkandi rannsóknir. Athygli vekur að konur eru sér- staklega hvattar til að sækja um styrki þessa. Þá vekur Fulbrightstofnunin einnig athygli á hinum árlega Frank Boas styrk til fram- haldsnáms i alþjóðalögum við Harvardhá- skóla veturinn 1983-84. Allar upplýsingar um 85 ára er í dag, 16. nóvember, Guðrún Valdimarsdóttir, fyrrverandi ljós- móðir. Hún tekur á móti gestum í Dval- arheimilinu við Dalbraut kl. 16 í dag. Afmælisbarnið biður þá sem kynnu að vilja gleðja sig á afmælisdaginn aö láta frekar eitthvað af hendi rakna til Slysavamarfélags Isiands. styrki þessa eru veittar á skrifstofu Ful- brightstofnunarmnar, Neshaga 16, eftir há- degi daglega. Árshátíð Félags sjálfstæðismanna í Fella- og Hólahverfi verður haldin laugar- daginn 20. nóv. 1982 aö Seljabraut 54, (hús Kjöts og fisks). 1. borðhald. 2. skemmtiatriöi. 3. dansað til kl. 2.00. Veislustjóri er Jón Sigurðsson, kaupmaður í Straumnesi. Borð- hald hefst stundvíslega kl. 19.00. Mætum öll og höfum með okkur gesti. Miðapantanir í símum 77748 og 71519 milli kl. 18 og 22. Nefndin. IMemendasamband Löngumýrarskóla Hittumst allar fimmtudaginn 18. nóvember kl. 20.00 í veitingahúsinu Gafl-inn, Dalshrauni 13, Hafnafiröi. Mætum vel og eigum saman skemmtilega kvöldstund. Sálarannsóknarfélag íslands Félagsmenn athugið að fyrirhugaður félags- fundur þann 18. nóvember fellur niöur. Jónas Ingimundarson spilar Chopin Hádegistónleikar eru haldnir hvern miðviku- dag í Norræna húsinu á vegum Tónleika- nefndar háskólans og hefjast kl. 12.30. Mið- vikudaginn 17. nóvember leikur Jónas Ingi- mundarson píanóleikari ýmis verk eftir Chopin, tvær polonesur og sex etýöur. Tón- leikamir eru öllum opnir. Þeir vara um 40 mínútur; aðgangseyrir erkl. 50. Áhugafólk um jazztónlist tilkynnir komu bandaríska jazzhljómsveitar- innar AIR til landsins, en hún mun halda tón- leika í kvöld, 16. nóvember,í íslenska óperu- húsinu (Gamla bíói) kl. 9. Koma AIR til lands- ins telst til stærri viðburða í tónlistarlífinu hér á landi, því hljómsveitin er ein af bestu jazz- sveitum vorra daga og nægir að nefna þessu til stuðnings að AIR átti hljómplötu árins 1980 í Downbeat að mati gagnrýnenda. AIR skipa þeir Henry Threadgill, sem leik- ur á allar tegundir saxófóna, flauta og hjól- koppafón (þ.e. ásláttarveggur er saman- stendur af hjólkoppum og cymbölum); Fred Hopkins leikur á bassa og Steve McCall á trommur. Upphaf hljómsveitarinnar má rekja allt aftur til 1971 þegar þremenningam- ir komu saman í Chicago til að flytja ragtime tónlist Scott Joplins, en sú tónlist hefur lengi verið á dagskrá þeirra. Tilkynning I haust hefur farið fram í fjölmiðlum nokkur umræða um stríðsleikföng. 1 leikfanga- verslunum er fjölbreytni og framboö þessara leikfanga ótrúleg og margir foreldrar og uppalendur telja óæskilegt að börn leiki sér að þeim. Fimmtudaginn 28. október sl. mynduðu fulltrúar eftirtalinna félaga með sér starfshóp sem hefur það að markmiði að efna til mál- efnalegrar umræöu um áhrif leikfanga sem eru eftirlíkingar vopna. Ahersla er lögð á að vekja fólk til um- hugsunar um þann veruleika sem þama liggur að baki, veruleika sem er fjarlægur en óhugnanlegur. Hópurinn skorar á alla barnavini að gefa bömum ekki leikfangavopn. Ragna Freyja Karlsdóttir, sérkennari, veitir upplýsingar ef óskað er í síma 42462. Bréf til starfshópsins sendist í pósthólf 36, Kópavogi. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna. Félag íslenskra sérkennara. Fóstrufélag Islands. Hjúkrunarfélag Islands. Kennarasamband Islands. Félag þroskaþjálfa. Hin íslenska þjóðkirkja. 28 í prófkjöri Sjálfstæðis- flokks Alls taka 28 manns þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu þing- kosningar. Frambjóðendurnireru: Albert Guömundsson alþingis- maður, Ása S. Atladóttir, hjúkrunar- fræðingur, Bessí Jóhannsdóttir cand mag., Birgir Isl. Gunnarsson alþingis- maður, Björg Einarsdóttir skrifstofu- maður, Elín Pálmadóttir blaðamaður, Ellert B. Schram ritstjóri, EstherGuð- mundsdóttir þjóðfélagsfræðingur, Finnbjörn Hjartarson prentari, Frið- rik Sophusson alþingismaður, Geir H. Haarde hagfræðingur, Geir Hallgríms- son alþingismaður, Guðbjörn Jensson iðnverkamaöur, Guöjón Hansson öku- kennari, Guömundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, GuðmundurHans- son verslunarmaður, Halldór Einars- son iðnrekandi, Haukur Þ. Hauksson kaupmaður, Hannes Garðarsson verkamaður, Hans Indriðason flug- rekstrarstjóri, Jón Magnússon lög- fræðingur, Jónas Bjamason efnaverk- fræðingur, Jónas Elíasson prófessor, Pétur Sigurðsson alþingismaður, Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur, Sigfús J. Johnsen kennari, Sólrún B. Jensdóttir sagnfræðingur og Þórarinn E. Sveinsson læknir. Leiðrétting Misritun varð í gær í kjaliaragrein Bjöms Dagbjartssonar, „Þegar loðnu- skipin bætast í loðnuflotann”. Þar stóð: „Nýlega ritaði Hilmar Viktors- son grein í blað um stærð fiskiskipa- stólsins. Heilum DV-leiðara og nokkr- um blaðaviðtölum var varið í að snúa út úr niðurstöðum hans.” 1 handriti Bjöms stóð: Heilum dagblaðsleið- ara. .., en ekki DV-leiðara, enda var átt við leiöara Tímans. Beðist er vel- virðingará mistökunum. IMauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Vallarbraut 7, jarðhæð, Seltjarnaraesi, þingl. eign Olafs J. Einarssonar, fer fram á eigninni sjáifri föstudag- inn 19. nóvember 1982, kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Seltjarnaraesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 15., 17. og 19. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í Ármúla 28, þingl. eign Trésm. Heiömörk hf., fer fram eftir kröfu Sigurðar H. Guðjónssonar, hdl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, og Hafsteins Sigurðssonar hrl. v/Verzlunarbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudag 18. nóvember 1982, kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Keldulandi 15, tal. eign Friðriks Stefánsson- ar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 18. nóvember 1982, kl. 15.15. Borgarfógetaembættið í Reykja vík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Rauðagerði 68, þingl. eign Hilmars Ölafssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Ævars Guðmundss., hdl., Þorvaröar Sæmundss., hdl., Vilhj.. H. Vilhjálmss., hdl., Skúla J. Pálmasonar hrl., Tómasar Gunnarss., hdl., GUðjóns Á. Jónss., hdl., Einars Viðar hrl., Einars S. Ingólfss., hdl., Lífeyrissj. verslunarm., Gísla B. Garðarss., hdl., tollstj., Gunnl. Þórðars., hrl., Sig. Sigurjónsss. hdl., Björas Ól. Hallgrímss., hdl., Jóns Haildórss. hdl., Ásg. Thoroddsen hdl., Jóns Ingólfss. hdl., Tómasar Þorvaldsss., hdl., Brynjólfs Kjartanss., hrl. og Guðmundar Ingva Siguröss. hrl. á eigninni sjálfri fimmtudag 18. nóvember 1982, kl. 16.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Til sölu líkamsræktartæki og einnig tveir sólarbekkir, selst á góðu verði. Upplýsingar í síma 9624707 og 96-22316. Vikan 15. nóv.—20. nóv. Útdregnar tölur í dag 51, 54 Upplýsingasími (91)28010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.