Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1983, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 8. JANUAR1983.
Ný 3-lína frá BMW
Nú þegar ný gerö af 3-línunni frá
BMW lítur dagsins ljós má segja aö
hér sé um aö ræöa þriðja ættlið. Þessi
grein BMW-fjölskyldunnar byrjaöi
með BMW 1602 áriö 1966 og síðan 3-lín-
unni árið 1975. Sú lína er oröin sú
vinsælasta hjá BMW frá upphafi,
heildarframleiöslan 1,3 milljónir eöa
800 á dag síðustu ár. Þaö að hefja
teikningu á nýjum bíl á miöju fram-
leiðslutímabili skilar sér greinilega
vel.
Á sex ára þróunartíma 3-línunnar
var aöaláherslan lögð á aö styrkja ein-
kenni BMW og auka akstureiginleika.
Mikil vinna var lögö í aö auka pláss
aö innan en jafnframt aö ytri mál
myndu ekki aukast aö sama skapi. I
raun er nýi 3 bíllinn styttri en fyrir-
rennarinn, en plássmeiri aö innan.
Bíllinn var einnig geröur léttari án
þess aö skeröa öryggiskröfur.
Nú fjögurra
dyra útgáfa
í fyrsta sinn munu BMW-
verksmiðjumar bjóöa upp á fjögurra
dyra útgáfu af þessari línu, frá og með
haustinu 1983. Ennfremur veröur hægt
aö fá blæjubíl af þessari gerö frá bíla-
smiöjum Baur í Stuttgart.
Nokkrar nýjungar
Aðaláherslan í frekari þróun vélar-
innar var lögð á minni eyðslu, hávaöa
og mengun, jafnframt þjónustu og
viðhaldi. Báðar sex strokka vélarnar
voru búnar elektrónískri innspýtingu í
Hin nýja sex strokka vél í 3-línunni er nú búin svokallaðri L-Jetronic innspýtíngu
sem gjörnýtir afl og eldsneyti.
Að framan er nokkur breyting frá fyrri gerð, línan orðin rúnnaðri og griliið
minna. Þokuljós á 3231 eru innbyggð í svuntuna að framan.
Að aftan er 3231 með spoiler fram yfir hinar gerðimar.
þessu skyni, þjöppuhlutfall aukiö og
öllum loftgangi í vélinni var breytt
meö þetta í huga, meðal annars meö
því aö breyta kambásnum. Meö þessu
var togkraftur vélarinnar aukin veru-
lega.
Minna ummál geröi þaö aö verkum
að vi > sex strokka vélamar var hægt
aösetjaléttanfimmgírakassa semer
meö mjög stutt bil milli gíra og létta
skiptingu. Endurhönnun á kassanum
gerði þaö að verkum að olíuhiti lækkar
og hærra girhlutfaU er mögulegt.
Fjöörun hefur veriö breytt vemlega,
stýristöng fyrir fjöörunina veriö sett
aö framan og afturöxull er meira í átt-
ina aö því sem verið hefur á stærri
bílunum. Gormarnir og höggdeyfamir
á afturöxli, sem áöur vom ein heild,
eru nú aðskildir. Aukiö rými fékkst í
farangursgeymslu viö þessa
breytingu.
AUar geröirnar eru nú búnar 14
tommu felgum í staö 13 tommu áöur.
Þetta leyfir meðal annars aö stærri
diskar eru nú í bremsum aö framan.
Betri diskabremsur era nú í staö
þeirraeráöur voru.
Breytingar
að innan
StiUanleg framsæti em í öUum bUun-
um. Þegar sætisbaki er hallaö fram á
viö rennur sætiö sjálfkrafa fram tU aö
aftursætisfarþegi fái aukiö rými tU aö
komast inn eða út. Rými fyrir hné aö
aftan var aukiö um 40 mm. Öryggis-
belti í aftursæti eru felld inn í sætisbak-
iö.
Handfang fyrir handbremsu var sett
til hUðar á drifskaftshrygginn og í
staöinn kemur geymsluhólf. Mælaborö
var endurhannaö og feUt aö því sem
betur hefur þótt fara í nýrri gerðum. I
búnaöi er aukning á mælum.
Þægindi fyrir farþega og ökumann
eru aukin með nýrri gerö af miöstöö og
ferskloftshitastUU Ukt og í 7-Ununni.
Hitagildi er nú aö öllu leyti óháö veg-
hraöa eöa snúningi vélar.
Munur miili gerða
Fjórar aðalgerðir eru í nýju 3-lín-
unni, 316, 318i, 320i og 323i. Þess utan
verður 315 bíUinn úr eldri línunni látinn
halda sér áfram meö sömu vél og
búnaðiogáöur.
316 og 318i eru meö 4 strokka vél,
1766 rúmsm. 316 er meö blöndungi og
er afUö 90 hestöfl (66 kW) viö 5500
snúninga. 318i er hms vegar meö K-
Jetronic innspýtingu og þá er afUð 105
hestöfl. Gírkassi í þessum báöum
geröum er f jögurra gíra.
320i gerðin er meö sex strokka í línu,
1990 rúmsm. L-Jetronic innspýtingu og
gefur þá 125 hestöfl við 5800 snúninga á
mín. 323i er meö enn stærri sex strokka
vél, 2316 rúmsentimetra og er hún 139
hestöfl viö5300sn.
Fyrir utan mismunandi vélarstæröir
og gírkassa er nokkur munur milU
gerða, þannig aö glæsUeiki í innrétt-
ingu er meúi og tæknibúnaður meiri, í
samræmi viö vélarstærð. -JR
Sætin hafa verið endurhönnuð með þægindi og pláss í huga. Þegar framsæti er
hallað fram rennur það fram og gefur aukið rými við inn- og útstig. Hægt er bæði
að stilla hæð jafnt og halla á sætunum.
Mælaborðið hefur verið lagfært litillega frá eldri gerð og nýtt stýrishjól sett,
svipað því sem nú er í 5-linunni.
Læsingar á öryggisbeltum í aftursæti
eru fellanlegar inn í sætisbakið.
Bílar
Bflar
Bflar
Nokkrar tö/ur: Lengd: 4325 mm 316 Vél: 4 strokka 1766 rúmsm. 90 hestöfl 318/ 320/ 323/
Breidd: 1645 mm VÍÖ5500 sn. Vél: 4 strokka 1766 rúmsm. 105 Vél: 6 strokka 1990 rúmsm. 125 Vél: 6 strokka 2316 rúmsm. 139
Hæö: 1380 mm Blöndungur. Gírkassi: Fjögurra hestöfl viö 5800 sn. K-Jetronic inn- hestöfl viö 5800 sn. L-Jetronic inn- hestöfl viö 5300 sn. L-Jetronic
Snúningsradíus: 10,5 m gíra.Hjól: 175/70 HR14. spýting. Gírkassi f jögurra gíra. spýting. Gírkassi fimm gíra. innspýting. Gírkassi fimm gíra.
Farangursrými: 4251ítrar Þyngd: 990 kg. Eyösla íbæjarakstri: Hjól: 175/70 HR 14. Eyðsla í bæjar- Hjól: 195/60 HR 14. Eyðsla í Hjól: 195/60 VR 14. Eyðsla í bæjar-
Bensíntankur: 55 lítrar 10,9 lítrar. akstri: 10,41. bæjarakstri: 11,91. akstri: 12,11.