Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. 17 Bílar Bflar Bflar Bflar Bflar FORD Ranger 4x4: Nýr fJórhjóladrif shíll f rá FORD Samkeppnin á f jórhjóladrifsmarkaö- inum hefur veriö mjög hörð undanfar- in ár og ekki síst vegna litlu japönsku pallbílanna meö fjórhjóladrifi sem fariö hafa sigurför um allan heim. Nú hafa Ford-verksmiðjurnar komið meö sitt svar við litlu japönsku bílun- um, en þaö er fjórhjóladrifinn Ranger 4x4. Bensíneyðslan ætti aö vera í hófi því bíllinn er meö 2,3 lítra vél sem gef- ur 79 hestöfl. Þótt vélin sé ekki stór í hestöflum er hún sögð gefa góðan tog- kraft. Gírkassi er fjögurra gíra í „stand- ard” útgáfu með 3,45:1 drifhlutfalli. Hægt er aö fá fimm gíra kassa og lægra drifhlutfall. Fimmti gírinn er þá yfirgír og drifhlutfallið 3,73:1, sem gefur góöa raun vilji menn stækka dekkin. Millikassinn er nýr, Warner 1350, og er skipting milii drifa sögö sérlega létt. Viövörunarljós í mælaborði gefur tU kynna þegar f jórhjóladrifiö er á. Bensíneyðslan ein sér ætti aö vera næg ástæða tU aö gera Ranger áhuga- verðan. Því eyðslan er ekki nema um 9 lítrar á hundraðið, sem er ekki nema brot af því sem stærri bræður hans eyða á hundraðið. Fjöðrun að framan er sjálfstæð sem gefur aukið gUdi í slæmri færð. Stýrið er vökvastýri en gefur þó góða tilfinn- ingu fyrir veginum. Hemlar eru diskar að framan en skálar að aftan. Með þessum nýja Ford Ranger 4X4 hafa Ford-verksmiðjurnar svarað kröfum kaupenda um minni f jórhjóla- drifsbU, sem margir söknuðu eftir að Broncoinn stækkaði fyrir nokkrum árum. Ekki er að efa að þegar íslenskir bílasmiðir hafa fariö höndum um þennan nýja Ford og byggt yfir pallinn þá verður kominn bíU sem veitir þeim japönsku harða samkeppni. Við það að minnka er orðið léttara yfir þessum fjórhjóladrifna Ford en Broncon- um sem þótti of stór. Mælaborðið er aðgengUegt og með þeim mælum sem nauðsynlegir mega teljast. HeUl bekkur er „standard” en hægt að fá stóla. 15 tommu hljólbarðarnir gefa bilnum góða aksturseiginleika. Framdrifslokur eru á framhjólum. Girstöng er í gólfi og tU hliðar við hana er skiptistöng f yrir mUlikassa. Nokkrar tölur: Snúningsradíus: 11 metrar. Lengd: 4460 mm. Fjöðrun: Sjálfstæð gormafjöðrun að Breidd: 1699 mm. framan. Hæð: 1694 mm. Heill öxuU á f jöðrum að aftan. Vél: 4strokka. Hjólbarðar: P205-75RX15SL. 79 hestöfl við 3800 sn. á mín. Hæðfrá jörðu: 175 mm. Gírkassi: 4 gíra beinskiptur. Þyngd: 1285 kg. Ekki vitum við hvort þaö telst meiri háttar bjartsýni hjá ökumanninum á myndinni að reyna að ná bílnum upp aftur með spilvírnum, en myndin er úr auglýsingu fyrir dráttarspil á bíla og sýnir vel hvað menn leggja á sig til að ná góðum myndum. Hér á landi hafa margir bílar fengið slæma útreið í ótryggum ám og þá hafa spilin komið ígóðar þarfir.Eftir slíka útreið hafa bílarnir oft verið stórskemmdir, í það minnsta þurft ærlegt þrifabað, og svo mun einnig um bílinn á þessari mynd. \ OLVO 760: Nii með dísil-turbo Nú er Volvo 760 kominn með dísU- turbo. Fyrir nokkru fengu blaöa- menn að reynsluaka nýrri dísU-turbo útgáfu af þessum nýja Volvo í Norður-Svíþjóð. I reynsluakstrinum var skipt á mUli bensínbíls og dísU- bUs tU aö finna mismuninn ef ein- hverværi. Þegar setið var á bak við stýrið var ekki gott að greina á miUi bíl- anna þegar ekið var eftir ísilögöum vegunum, hvorki hvað varðaði hávaöa né hraða, að sögn þeirra er þátt tóku í reynsluakstrinum. DísUvélin er sérlega hljóðlát. Vélin er sex strokka, 2,4 lítrar og aflið er 109 hestöfl við 4800 sn. á mín. BUUnn, sem var reynsluekið, var með fjög- urra gíra kassa með yfirgír, sem stýrt var f rá hnappi á gírstönginni. Volvo 760 hefur fengið gagnrýni fyrir aksturseiginleika á hálum vegi, meðal annars í sænska bílablaðinu „Vi BUagere”, sem er stærsta bUablað á Norðurlöndum. Þar stóð meðal annars: „Volvo 760 — lúxus- bUUnn sem á erfitt með að ráða við hinn norræna vetur.” Blaöamaður PoUtiken, sem var einn þeirra sem reynsluóku Volvonum í 4—5 klukku- tíma í hálku við Kiruna í Norður- Svíþjóð, segir í umsögn sinni að ekki hafi borið á þessum gaUa í hálku- akstri. BíUinn hafi verið búinn góðum nagladekkjum og engin vand- kvæði verið á að rétta hann af eftir harkalegar hliðarbeygjur. Á Norðurlöndum er Volvo 760 dísil talinn standa jafnfætis Mercedes Benz 300D að nokkru leyti, þótt Volvoinn sé nokkru dýrari, en bjóði jafnframt upp á nokkurn aukabúnað, sem réttlæti verömuninn. Renault 9: Einnig með clísil Renault bUaverksmiðjurnar hafa nú kynnt dísilútgáfu af verö- launabílnum Renault 9. Hér er um að ræða alveg nýja gerð af dísilvél, þar sem ventlamir Uggja beint að yfirUggjandi knastásnum. VéUn er 1,6 lítra og afUð er 55DIN hestöfl. Nú verður hægt að fá Renault 9 með fimm vélarstærðum, því fyrir voru fjórar gerðir bensínvéla, 1,1 Utri sem gaf 48 hestöfl og þrjár út- gáfur af 1,4 lítra véUnni, 60 hest- öfl,68og72hestöfl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.