Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 23
Popp Popp Popp DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. Það mun vera hálfopinber staðreynd að Bretland sé móður- land rokkheimsveldisins. Þar hafa helstu straumarnir dafnað og þaðan hafa margir merkileg- ustu fulltrúar dægurmúsíkurinn- ar lagt heiminn að fótum sér. Og svo er enn. Spuming: hvaða hljómsveit er þessa dagana í mestu uppáhaldi hjá breskri æsku? Samanber fyrraefndar fullyrðingar hlýtur svarið að vera áhugavert. Svo eitthvert vit sé í svarinu verður það að hafa við einhver rök að styðjast. „Einfaldast að líta yfir vinsældakosningar nýliðins árs,” segir þú. Ég er þér hjart- anlcga sammála. Tökum til að mynda tvennar kosningar; úr rokkblaðinu Record Mirror og hinum vafasama fulltrúa gulu pressunnar, The Sun. Sigurvegarar í Record Mirror eru án efa máluðu drengirnir fimm í Duran Duran. Þeir voru kosnir besta bandið, höfðu ann- an besta karlsöngvarann, aðra bestu smáskífuna, bestu stóru plötuna, bestu sviðsframkom- una og tvær bestu videospól- urnar. Og Sóldýrkendurair kusu Duran Duran besta bandið og RIO bestu breið; kífuna. Duran Duran er auðvitað í Helgar- poppi. Upphafið Stofnendur Duran Duran voru tveir Birminghambúar, John Taylor, bassisti, og Nick Rhodes, svuntu- þeysaramatari. Stofnárið var 1978, um haustið. i þann tíð einbeitti Duran Duran (nafnið er tekið úr kvikmyndinni Barbarella en þar mun majór nokkur hafa hlýtt þessari nafngift) sér að „avante garde” rokki og með þeim John og Nick voru annar bassi, klarinettuleikari og ryþmakassi. Brátt tók áhugi þeirra tveggja nafngreindu að beinast aö fönkinu og danstaktinum. Og einu sinni í partíi rákust þeir á trommar- ann Roger Taylor. Sá lék með pönk- hljómsveitinni The Sex Organs en innra með sér dreymdi hann um eilítiö danshæfari takt og ljúfari hljóm. Aukabassinn, karinettan og ryþmaboxið misstu stööur sínar en þremenningamir hófu leit aö gítar- ista og söngvara. Hér voru margir kallaöir en aðeins tveir útvaldir. Liðið fullskipað Er hér var komið sögu höfðu bræð- ur tveir, kenndir við Berrow og eig- endur eins helsta dansklúbbs Birm- ingham, tekið að sér að koma Duran Duran áfram. Fyrir þeirra tilstilli var auglýst eftir gítarísta í Melody Maker. Einn hinna mörgu sem svör- uðu var Andy Taylor frá Newcastle. Hann var ráöinn. Hófust brátt dag- legar æfingar og samtimis var svip- ast um eftir hæfileikaríkum radd- böndum. A dansklúbbi Berrowbræðra vann meðal annarra ung barstúlka. Einn daginn kom hún að máli við fjór- menningana og lét þá fá símanúmer hjá Simon Le Bon. Upphaflega Lund- únabúi og pönkari en dvaldi þá í Birmingham og las leikUst við há- skóla. Eftir eina æfingu fékk hann stöðuna. Stefnan tekin á f æturna Þegar hér var komið sögu var komið sumariö 1980. Duran Duran hafði gerbreyst. Hún hafði tekið beina stefnu á fætur fólks. „Við nefn- um tónlistina okkar næturmúsík,” segir Símon og á við að þar fari dans- músík næturinnar. „Það var frá upp- hafi stefnan aö taka hið besta út úr því sem til er með aöaláherslu á diskóið því það er takturinn sem blíf- ur. Við vildum fremja góða, bita- stæða dansmúsík.” Áhrifavaldamir helstu koma nokkuð á óvart, miöað við síðustu orð söngvarans. David Bowie, Talking Heads, Brian Eno, Roxy Music og Peter Gabriel. Og fönkið. Hvað sem því iíður er tónlist hljómsveitarinnar merkilegri en flest önnur er fyrst og fremst á að höfða til fótamenntar. Og eins og , Fré vinstri til hægri: Roger T eruekkertskyldir. John Taylor„meikaður, skeindur og næs". þeir sjálfir segja: „Við höfum betri laglínur heldur en vaninn er meðal diskóflytjenda.” Upp á við á sviði Seint á árinu 1980 hóf Duran Duran að slá um sig. Hún fór í konserttúr Umsjón: Témas Tómasson með Hazel O’Connor og vakti mikla athygli. Sviðsframkoma hljómsveit- armanna þótti hressileg og framúr- skarandi á allan máta. Æ síðan hafa drengirnir lagt mikla áherslu á lif- andi framkomu. Þeir hafa verið ólat- ir við að þeytast heimshoma á milli en öllu má nú ofgera. Það kom best í ljós þegar Andy trommari Taylor hné niður í miðjum Ástraliutúr á síð- asta ári. Orsökin var einfaldlega of- þreyta. ___og á plötum Hljómplötufyrirtækin tóku við sér og það var boðiö og prúttað. Að lok- um hreppti EMI hnossið. I febrúar 1981 kom loks fyrsta smáskífan frá Duran Duran og hét Planet Earth. Komst í 12. sæti á Record Mirror list- anum. Á eftir fylgdu lögin Careless Memories (30. sæti) og Girls On Film, sem í raun braut ísinn. Lagið komst í 8. sæti á lista og Melody Maker valdi það sem eitt af tíu dans- lögumársinsl981. Voriö 1981 kom fyrsta breiðskífan sem hét bara Duran Duran. Viðtök- uraar lofuðu góöu; platan var 16 vik- ur á lista, komst hæst í 2. sætið og Record Mirror valdi plötuna hina þriö ju bestu ársins 1981. Á faraldsf æti EMI hafði tröllatrú á fyrirtækinu. Vídeótæknin var lítt spömð og hljóm- leikar voru tíðir. Og vörana skyldi flytja út. Til dæmis þegar haldiö var upp á endalok Evrópureisu í septem- ber 1981 í París ákvað EMI að borga undir 100 æstustu aðdáendur bands- ins frá Birmingham til aö koma á réttri stemmningu í gleðinnL Og allt árið 1981 var Duran Duran á þeytingi þvers og krass um hnöttinn. Um jólaleytið var haldið um heimalandið og var uppselt á aUa hljómleikana. Þar kynntudrengirnir fyrst efni af væntanlegri breiðskífu. RIO. Lagið My Own Way kom á smá- skífu um áramótin, boöaði harðari danstakt en áður og nýtt „sánd” sömuleiðis. Fór í 13. sætið. Og stuttu síðar kom Hungry Like A Wolf er boðaði aðra breiðskifuna, RIO. Efnið á þeirri plötu hafði orðið tU í heims- reisunum árið áður en hún kom út í maí á síðasta ári. Á uppleið í Ameríku Það hefur löngum þótt erfitt fyrir breskar hljómsveitir að troða sér inn á ameríska markaöinn enda Amerí- kanar ekki ginnkeyptir fyrir hrær- lingum hinum megin Atlantsála. Hægt og bítandi opnuðust augu manna vestra þó fyrir verðleikum Duran Duran og hið allt að því ómögulega en ekki einstæða gerðist; þeir tóku að fikra sig upp Usta. I árs- lok 1982 voru þeir komnir í efstu sæti vinsældaUsta í Bandarík junum. „Viljum vera mestir og bestir" Nú um nokkurt skeið hefur veriö fremur hljótt um Duran Duran. En biðin er brátt á enda því að nú í lok mánaðarins er von á smáskífunni Is There Something I Should Know. Síöustu orðin á Nick Rhodes en þau voru svör hans viö þeirri spurningu hvert væri takmark Duran Duran: „Svona í grandvaUaratriðum vUjum við gera bestu plötur sem geröar hafa verið, bestu kvikmyndir, bestu vídeóprógrömm, hafa bestu sviðs- framkomuna, dreifa bestu ljósmynd- unum, bestu aðdáendaklúbbahlutun- um, setja upp bestu söngleikina, rita bestu bækumar, framleiða besta súkkulaðiísinn, sultutauiö, kampa- vínið, ljósaskiltin. . .eigum við að láta þetta nægja í bih? ” Duran Duran er rétt að byrja. Og með því lýkur Helgarpoppi. -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.