Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 22
22 DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. Helgarvísur Helgarvísur Helgarvísur Helgarvísur 44. þáttur Aö gefnu tilefni skal vakin athygli lesenda á því, aö 38. þáttur birtist í DV mánudaginn 20. desember, en ekki laugardaginn 18. eins og lesendur hafa búizt viö. Hinn kunni hæstaréttarlögmaður, P.S.P., sendir enn botna: Inn viö flóa frið og ró falleg lóa boðar. Svangur kjói klókur þó kvikan móinn skoðar. Ungar konur efla þrótt allra hraustra sveina. Þeir leggja dag vid langa nótt, láta á þrekid reyna. Helgarvísur hef ég séð og haft af mikið gaman. íþœr gjarnan orðum treð aftan bceði og framan. Um oss nepjan nœðir, náköld gerist sálin. Ein er und, sem blœðir: innanríkismálin. Glösum nettum klingjum kátt, kyrjum létta bragi. Ef ég Grettis cetti mátt, allt ég setti úr lagi. Drambi skulum draga úr og Drottin biðja oss leiða frá Jerúsalems Júðamúr til Jórdans blásnu heiða. Framagosar hefjast hátt hreykja sér að vanda. Ymsir hafa misst sinn mátt, mörgum hœtt að standa. (á sama.) „Skuggi” botnar: Fennir grimmt í gömul spor, gróa fornar slóðir. Alltaf kemur aftur vor, þótt allir tœmist sjóðir. Töfrar húmsins glceða geð, góða, komdu að sofa. Freisting þeim er fyrir séð, sem falli vilja lofa. Eg á garð með grœnum runnum, gróðurmold og blómaangan, eikina með eplum kunnum, engan læt því fara svangan. Og „Skuggi” sendir og frumortar vísur: Gatan sú er geigvcenleg, gerist hart á dalnum. Fer nú enginn fœran veg, fátceklegt í malnum. Þó að fjúki flest í skjól fanna og snjóa vetur, fer á himni að hcekka sól, hefur Ijósið betur. Þegar fáum brotið blað byrjað ár í ranni, Skúlasíðan, skilst mér, að skemmti ávallt manni. Hinn kunni kvæðamaður V.L. skrifar þættinum og kvartar yfir villum, sem slæözt V.L. sendir einnig botna: Fennir grimmt í gömul spor, gróa fornar slóðir. Þó er alltaf eitthvert vor inn ’ við hjartans glóðir. Alltaf þegar innra erkalt, óður snjallur hlýjar. Illt er að geta ei orðað snjallt allar vísur nýjar. Töfrar húmsins glœða geð, góða, komdu að sofa. Ferð til rúmsins mœli ég með, mun hún góðu lofa. Oft á tíðum veginn vísar vísa gerð af skáldi slyngu. Úti skálda-fákur frýsar, fjörgammur með hvelfda bringu. „Þjóstólfur”botnar: Fennir úti, finnst mér kalt, flestum hrollþað vekur, þó mun gleymastþetta allt, þegar vora tekur. Sérðu ekki að sólin hœkkar, syngja allir fuglar dátt innan skamms og skuggum fækkar, skynjum lífsins andardrátt. Leikur sér við litla tjörn lambahjörðin fríða, vermirþessi vorsins börn veðurlagsins bllða. Sólin hátt mun svífa brátt, syngjum kátt um bjarta nátt, fagran slátt um frið og sátt fylla láttu heiðið blátt. Framagosar hefjast hátt hreyhja sér að vanda Samkundan, er svallar hér, segir fátt af viti. Fuglabjargið orðið er atað fugladriti. Botnar frá Sigurgeiri Þorvaldssyni uröu aö bíöa þessa þáttar, þótt nokkuð langt sé, síðan mér bárust þeir í hendur. Sigurgeir botnar: Sérðu ekki, að sólin hækkar, syngja allir fuglar dátt. Götudrósin fötum fækkar færað launum góðan dr. . . . Bráðum jólaklukkur klingja, klýfur sólin myrkrahjúp. Sálarbólin sorgir þyngja, sultarólin gerist djúp. (Ekki vantar frumleikann hjá Sigurgeiri; hann talar hér um djúpa sultaról). Skyldi ekki Skúli Ben skelk í bringu hljóta, þegar gamli Sívertsen sér hann milli fóta ? Ég á garð með grænum runnum, gróðurmold og blómaangan; unaðsreitur ungum nunnum allan sumardaginn langan. Bezt er að hjala helzt sem minnst, en hugsaþeim mun meira, — gera það, sem fœstum finnst fengur í að heyra. hafa í vísur eftir hann. Ein ljóölinan átti aö vera: „Viltu ráö ég veiti hér”, en ekki: „Viltu ráö ég veiti þér” eins og ljóðlínan var i þættinum. Önnur ljóðlína átti aö vera: „Löngum kátt ég lék og dátt”. Þama var orðið lét í staö lék og þessi hluti vísunnar því merkingarleysa. Eg biö afsökunar á þessum villum. Sem betur fer, lætur V.L. þaö ekki á sig fá, þótt mér eöa prentsmiðjumönnum hafi orðiö á mistök, og sendir hann vísur ortar af ýmsu tilefni: Þegar bjátar eitthvað á eða lengist vaka, gaman er að geta þá gripið tilþín, staka. Grundin brosir blómum prýdd búin flosi vænu. Hœð og kvos er skógar skrýdd skarti mosagrœnu. Ægir hvítum ölduföldum úfnum skýtur vítt um svið, upp að þýtur kletti köldum kólgan brýtur ströndu við. Leiftur glampa á bylgjuboga, báran hampar lúnum knör. Mánans lampi mildum loga merlar kamp á Græðis vör. Undir þaki ei frið ég fæ, frjóar vaka grundir, fuglar kvaka um fold og sæ, fjöllin taka undir. Bráðum jólaklukkur klingja, klýfur sólin myrkradjúp, Heims-um bólþá börnin syngja, búa njólu Ijósahjúp. Skyldi ekki Skúli Ben skelk í bringu hljóta ? Verði yrking afar klén, allar birgðir þrjóta. Kristinn Erl. sendir Geira vini okkar kveðju: Mér finnst hálfgert „magarín ” margt, er Geiri kveður, alltaf klúrt og illskeytt grín úr hans kjafti veður. Ljóðasnillin létt er hér, leitt oss finnst að vonum, að Sigurgeir nú sendir þér sæg af kálhausonum. (Þess skal getið til skýringar, aö Sigur- geir Þorvaldsson hefur tekið sér skálda- nafniö Kálhús). Og Kristinn botnar: Viltu ráð ég veiti þér vits iír snjáðum kylli. Enginn fór í fótspor mér né fremri í kvennahylli. Margrét Olafsdóttir sendir nöfnu sinni Tómasdóttur kveðju: Ég þakka skeytið, Margrét mín, migþað stórum kœtti. Einmitt svona góðlegt grín glæðir visnaþœtti. Örlög hafa ólánsblett ei við nögl sér skorið, efþú hefur einkarétt á að vaða slorið. Sízt ég réði, systir, þér sœttir meður Geira. Efþað skeði, yrði hér ekki kveðið meira. Þó hann vildi stilla á stall stökufœrni minni, aldrei kemst hún upp á pall með orðsnilldinniþinni. Og þú verður, kona klár, ef kænsku sýnir slíka, fyrr en byrjar annað ár, orðin vængjuð líka. En ef gríni öllu er sleppt, áttu mína hylli. Vildi ég þína hafa hreppt hugans fínu snilli. Og Margrét Olafsdóttir botnar: Bezt er að hjala helzt sem minnst, en hugsa þeim mun meira, því á mannamótum finnst margoft hnýsið eyra. Einn er fjandi ofar moldu, sem eg vil granda helzt sem fyrst, allan landa á ísafoldu út’í blandi drekka þyrst. Fennir grimmt ígömul spor, gróa fornar slóðir. Æþó veita öldnum þor œvidagar góðir. Töfrar húmsins glæða geð, góða, komdu að sofa. Eg þér stund vil eiga með inni í fjallakofa. Alltaf þegar innra er kalt, óður snjallur hlýjar, og ergengið gerist valt, glæðir vonir nýjar. Af gleði syng við sortulyng einn sólskinsbrag um það, sem yngir íslending og eflir hag. Og Margrét lætur áramóta vísu fylgja: Blysin þjóta, burt við skjótum bylgjuróti fortíðar, og við njótum innst frá rótum áramótagleðinnar. „Kárus” sendir vísu „um Kristján Isfirð- ing, einn þekktasta og dyggasta vin Bakkusar í Rvk. á vorum dögum”: Sigldi á bárum Bakkusar, braut þar sálargrindur, staulast grár um göturnar gleðifár og blindur. Þá ætla ég aö birta aftur vísu eftir Hallgrím Jónasson, sem rangt var fariö meö Í42. þætti: Glasið margt af ýmsri art erþér vart í haginn. Nú er hart að sjá allt svart svona um bjartan daginn. Gott væri, ef einhver lesenda gæti frætt mig um, hver sé höf undur þessarar vísu: Húnvetningar hafa enn harðar tekið sennur. Björn og Skjónu muna menn, meðan Blanda rennur. Og aö lokum nýir fyrripartar: Sopið kálið ekki er, í ausuna þó komið sé. Björg Sumarliðadóttir sendir þennan: Líttu yfir liðna tíð og löngu gengin sporin. Enn skora ég á alla þá, sem vilja, aö þessi þáttur haldi lífi sem lengst, aö senda vísur og botna. Gamlar vísur, sem eru á fárra manna viti, eru ekki sízt vel þegnar. Skúli Ben Pósthólf 161 230 Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.