Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1983, Blaðsíða 1
Fermlngar- gjafahandbók Frjálst, óháð dagblað DAGBLAÐIЗ VÍSIR FIMMTUDAGUR 17. MARS 1983. AUGLYSING Þá er hún komin í hendur þér, lesandi góður, fermingargjafahandbók Dag- blaðsins og Vísis sem létta mun þér spor- in í leitinni að réttu ferminggrgjöfinni. Með þessari handbók reynir DV að gefa upplýsingar um hvað það er sem verslan- irnar bjóða til fermingargjafa og hvað þeir hlutir kosta. Við leitiimst við að hafa fjölbreytt val og misjafnt verð. Hins vegar er sá fyrirvari œtíö hafður á, þar sem um verð hér á landi rœðir, að breytingar geta orðið á stuttum tíma. Þess vegna, lesandi góður, gœti verð hafa hœkkað á þeim tíma sem handbókin er unnin og þar til hún birtist þér. En við vonum að handbókin komi þér engu að síður til góða og vonum að allir finni eitt- hvað við sitt hœfi. Reiðhjól Nú nálgast vorið og þá eru reiðhjólin tekin upp. Heilsusamleg fermingargjöf eru einmitt þessi ítölsku úrvalshjól, 10 gíra, sem fást í Vöru- markaönum, Ármúla. Margar gerðir eru fyrir- liggjandi. Komið og skoöiö. Verðiö er aðeins kr. 3.800. Skrifborð f yrir alla Þetta fallega og skemmtilega skrifborð, sem fæst í Vörumark- aönum, Ármúla, er með Ijósi, hillum og korktöflu. Stærðin er 120X50 cm og hæðin 188 cm. Afborgunarverð kr. 3.596, stgrv. 3.416. Stóllinn er seld- ur sér ogkostar 1375. I Skrifborð úr furufilmu Skrifborð eru í tonnatali í Vörumarkaðnum í Ármúla. Hægt er að fá ódýr skrifborð úr furufilmu með Ijósakappa og hillum í stærðum 150X55 og 120X55. Einnig er mikið til af skrifborðum sem eru furuspónlögð. Þau eru til í stærö 150X60 án hillna á kr. 3790 og í stærð 120X 60 án hillna á kr. 2.550. Bambusstólar Vörumarkaöurinn, Ármúla, er alltaf aö taka upp nýja bambusstóla. Mikið úrval af fallegum bambusstólum til fermingargjafa. Þá er Vörumarkaðurinn einnig með mikið úrval af bambushúsgögnum, hillum, sófum, borðum, speglum, stólum. Og veröiö, það er viö allra hæfi. Bambusstólarnir kosta kr. 1.915 (staðgr.verö kr. 1.820). Skrifborð úr furulíki m/hillum, minni gerð kr. 2.175 (staðgr.verð 2.067), stærri gerð 2.942 (staðgr.verð 2.795). Club 8 Unglingahúsgögnin Club 8 gefa þér möguleika á að vera þinn eigin arkitekt. Club 8 hafa ótrúlega uppröðunarmöguleika. Þú getur haft eina upprööun í dag og aðra á morgun. í Club 8 hús- gögnunum getur þú fengið svefnbekki, skrifborð, hillur, skápa, Ijóskastara, möppur, skrifborðs- mottur, gardínur og fl. og fleira. Vörumarkaður- inn, Ármúla,veitir þér allar upplýsingar um hin skemmtilegu Club 8 unglingahúsgögn og sendir myndalista af þeim um allt land. Mjög hagstætt verð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.