Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Page 1
DAGBLAÐIЗVISIR 98. TBL. — 73. og 9. ARG. — MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1983. Dalaostur ersérgrein — heimsókn íMjóikursamlagið, Búöardal — sjáblaðsíðu4 í t i í i Skipbrotsmenn vifl komuna til landsins i nótt. Frá vinstri: Asgeir Jónsson stýrimaður, Bjami Einarsson 1. vélstjóri, Guðmundur Einarsson 2. vélstjóri. Jón Steinar Árnason skipstjóri og Hallgrímur Einarsson háseti og kokkur. Þeir Guðmundur og Hallgrimur eru bræflur. DV-mynd GVA. Mannbjörg er flutningaskipið Isberg sökk eftir árekstur. ff SKIPIÐ FOR ALLA LEIÐINN ÍLEST’ —sagði skipstjórinn við komuna til fslands í nótt Eiginkonur skipbrotsmanna fögnuflu þeim innilega. Mannbjörg varð er nýjasta skip ís- lenska kaupskipaflotans, Isberg IS, sökk eftir árekstur um 70 sjómílur austur af Grimsby síðdegis á laugar- dag. Atburðurinn átti sér stað um klukkan 4 að íslenskum tíma. Þýskt flutningaskip, Tilla, keyrði inn í Isberg á miöju skipi bakborðsmegin. Isberg fór á hliöina á nokkrum mínútum og var sokkið eftir taepa klukkustund. Skipverjamir fimm komust í björgun- arbát og var bjargað upp í þýska skipið, sem var tiltölulega lítið laskað. Skipverjar voru fluttir til Grimsby og komu síðan til landsin*; í nótt. Skipstjóri á Isberg var Jón Steinar Árnason. Að hans sögn var mikil þoka yfir þegar atburðurinn átti sér stað og skyggni aðeins um 300 metrar. Árekst- urinn gerðist mjög snöggt, en skip- stjóri Isbergs hafði þó séð hvað verða vildi. „Við vorum byrjaðir að beygja og reyna að forða okkur og síðan stoppuðum viö og gáfum þokumerki. Ég prófaði aö kalla til þeirra á ör- bylg justöð en það gekk ekkert og næsta skref var bara að foröa sér því skipið var oltiö. Þaö lagöist á hliöina á 3 til 5 mínútum enda fór þýska skipið alla leið inn í lest,” sagði skipstjórinn, er DV ræddi við hann við heimkomuna í nótt. Isberg er 360 tonna frystiskip sem var keypt frá Noregi og kom fyrst til landsins fyrir tíu dögum. Það var byggt árið 1972 og því 11 ára gamalt. Eigandi þess var OK h/f á Isafirði. Þetta var fyrsta ferð þess frá Islandi. Skipið var á leiðinni frá Grimsby til Cuxhaven með um 200 tonn af frystum fiski er áreksturinn varð. Tilla, sem er um 1000 tonna skip, var hins vegar á leiðinni f rá Þýskalandi til Bretlands. ÓEF Víkingar þrefaldir meistarar sjá íþróttasíður m Kafbátargera frændumokkar lífiöleitt — sjá erl. f réttir bls.8-9 EggertHaukdal áttiafmæli — hvað f ékk hann íafmælisgjöf? — sjá Sandkom, blaðsíðu 39 Þessi mynd af ísberginu var tekin í Noregi áflur en þafl kom hingað til lands. Þafl var keypt til landsins 8. april síðastliðinn. Kynsjúkdómar— vaxandi böl Kynsjúkdómar eru mikið og vax- andi böl víða um heim. Eins og fram kom í DV á laugardaginn hafa þeir herjað talsvert á Islendinga og kost- að þjóöarbúið miklar fjárhæðir ár hvert, svo ekki sé talað um þjáningu þolendanna. Þó ýmiss konar fræðslustarfsemi hafi verið í gangi um kynsjúkdóma er ljóst að vanþekking almennings á þeim er mikil. Enn verður að herða baráttuna gegn kynsjúkdómum, með auknum skilningi hverfa fordómar og þá má búast við góðum árangri. JBH Fjallað er um tegundir kynsjúkdóma á blaðsíðum 20 og 21.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.