Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 28
28
DV. MANUDAGUR2. MAl 1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur veriö í Lögbirtiugablaðinu á fasteigninni Garöbraut
51 í Garði, þingl. eign Snorra Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri
aö kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Vilhjálms Þórhallssonar hrl.
fimmtudaginn 5. maí 1983 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýsiu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Gerðavegi
28 í Garði, þingi. eign Margrétar Sæbjörnsdóttur, fer fram á eigninni
sjáifri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjáimssonar hdl. fimmtudaginn 5. maí
1983 kl. 16.45.
Sýslumaðurinn ■ Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Oldugötu 19, Hafnarfirði, þingl. eign Ólafs
G. Vigfússonar, fer fram á eigninni sjáifri fimmtudaginn 5. maí 1983
kl. 14.30.
Bæjarf ógetinn í Hafnarfirði.
Greinilegt er aö vélarnar eru engin smásmíöi.
DV-myndirHafsteinn, Heiiissandi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Sléttahrauni 24, 2. h.t.v., Hafnarfiröi,
þingi. eign Ásmundar E. Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 5. mai 1983 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 73. og 76. tölublaði Lögbirtingablaösins 1981 á
eigninni Hraunbrún 37, Hafnarfirði, þingl. eign Þóris Arngrímssonar,
fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 5. maí 1983 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 52., 57. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Hraunkambi 4, n.h., Hafnarfirði, þingl. eign Ingólfs Arnar-
sonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 5. maí 1983 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Ennisvegur í
undirbúningi
Þessa dagana eru að hefjast fram- hefur tekið aö sér verkið. Undir-
kvæmdir viö nýjan veg undir Ölafs- búningur hefur veriö í fulium gangi aö
víkurenni. Þaö er Hagvirki hf. sem undanfömu og hefur flutningaskipið
Framkvæmdastjóri og tæknifræðingur Hagvirkis ásamt sveitarstjóra og
oddvita A Hellissandi.
Fullkomid öryggi
Syrir þá sem þú elskar
ftre$tone
hjólbardar hjálpa
þér að vernda þina
Firestone S-211 radial-hjólbarðar upp-
fylla ströngustu kröfur sem gerðar eru.
Þeireru sérstaklega hannaðirtil aksturs
á malarvegum. Þeir
grípa mjög vel við
erfiðaraðstæður
og auka stórlega
öryggi þitt og
þinna í
umferðinni.
Fullkomiö öryggi - alls staðar
ÚTSÖLUSTAÐIR ( REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
T'ircstone
REYKJAVÍK:
KÓPAVOGUR:
GARÐABÆR: MOSFELLSSVEIT:
Hjólbarðahöllin
Fellsmúla 24,
sími 81093
Nýbarði sf. Hjólbarðaviðgerð Kópavogs Nýbarði sf.
Borgartúni 24, Skemmuvegi 6, sími 75135 Lyngási 8, sími 50606
sími 16240
Holtadekk
Bensínafgr. ESSO,
sími 66401
rti
Drangur m.a. farið tvær feröir tU
Rifshafnar meö þungavinnutæki til
framkvæmdanna.
Vegagerö ríkisins haföi gert
kostnaðaráætlun um lagningu veg-
arins og nam hún 69 miUjónum króna.
Tilboö Hagvirks var hins vegar upp á
kr. 36.779.600. „Þaö er góöur mögu-
leiki á aö vinna þetta verk meö
þeim kostnaði sem okkar tUboö felur í
sér,” sagöi Jóhann Bergþórsson, fram-
kvæmdastjóri Hagvirkis, í samtali viö
fréttaritara DV á HeUissandi. „Við
höfum stærstu og afkastamestu tæki,
sem fyrirfinnast á landinu, og mjög
reynda og góöastarfsmenn.”
Jóhann sagði ennfremur aö sam-
kvæmt áætlun yröi unnið viö verkiö
allan sólarhringinn, aUa daga fram til
14. júní. Þá yröu tækin flutt upp á Sult-
artanga, en aðeins unniö aö veginum
viö frágang á grjóti. Ef þörf krefði
færu Hagvirkis-menn aftur í verkið af
fuUum krafti í haust.
„Þetta eru 300—400 þúsund rúm-
metrar af efni sem viö þurfum aö losa
og flytja svo aö um aUverulegt magn
er að ræöa,” sagöi Jóhann. „En við
höfum oft verið meö meira, tU dæmis
rúmlega 200 miUjónir rúmmetra uppi
viö Sultartanga. Þar fluttum viö einu
sinni yfir 400 þúsund rúmmetra á ein-
um mánuði.
Jóhann kvaöst aö lokum aðeins vUja
óska HeUissandsbúum til hamingju
meö veginn og vonast til aö hann kæmi
þeim aö sem mestum og bestum
notum.
-JSS/HJ Hellissandi.
Kirkjusögulegur
atburöur:
Kirkjuþing
um f rið og
af vopnun í
Uppsölum
Undanfariö hefur staöiö yfir í
Uppsölum í Svíþjóö kirkjuþingið um líf
og friö sem höfuðbiskupar Noröur-
landa buöu til, m.a. biskup íslands, hr.
Pétur Sigurgeirsson, sem sat þingiö á-
samt frú sinni. Þinginu lauk í gær.
Þingiö var sögulegt þar sem fulltrúar
allra meiriháttar kirkjudeilda sóttu
þaö og hefur slíkt ekki gerst í kirkju-
sögunni síöustu aldirnar. Samtals
sækja um 600 manns þetta sögulega
þing.
Fjallað var um friðar- og af-
vopnunarmál meö fyrirlestrum og
umræöum. Samþykkt var ályktun sem
allar kirkjudeildir geta skrifað undir
og veröur send valdhöfum um að þeir
taki þegar aö draga úr vígbúnaöi.
Ennfremur er þess vænst aö þingiö
skapi sameiginlegan grundvöll fyrir
kirkjur heimsins í friöarbaráttu
þeirra.
Pétur biskup Sigurgeirsson er
væntanlegur í vikunni heim til Islands.
-KA.