Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 21
DV. MÁNUDAGUR 2. MAl 1983. 21 AIDS (acquired immunede- ficiency syndrome) Þessi sjúkdómur er nýr af nálinni hann greindist fyrst 1981 hjá homosex- ual körlum í Bandaríkjunum. Er enn algengastur meðal þeirra en hefur síö- an líka fundist hjá konum, bömum, heterosex-körlum, blóðþegum, Haiti- búum og í innflytjendum þaöan til Bandaríkjanna, einnig eiturlyfjaneyt- endum sem sprauta sig. AIDS fannst þannig að tíðni fágætra sjúkdóma fór skyndilega aö aukast. Má þar nefna sjaldgæft krabbamein (Kaposis Sarcoma) og fáséðar lungna- bólgur (Pneumocystitis Carinii). I þessum sjúkdómi er hluti ónæmiskerf- is líkamans slegið út. Þá geta gosiö upp ýmsar sýkingar, einkum þó veiru- og sveppasýkingar, einkennin em því á ýmsa vegu. Sameiginlegt einkenni er: Utbreiddareitlastækkanir. AIDS var í fyrstu kynsjúkdómur homosex-karla en hefur fundist í ööru fólki í auknum mæli. Sýkillinn eða það sem þessu veldur er ófundið enn. Talið er þó að valdurinn hafi komist með blóögjöfum inn í blóöbanka í Banda- ríkjunum og þaðan til blóðþega. Smitleiðir: — Kynmök — Blóögjafir — Eiturlyf í æð eöa við notkun óhreinna nála (sama nálin er oft notuð lengi). Fjöldi sjúkiinga í Bandaríkjunum 15. maí 1982 var 593 en um 1200—1300 í apríl 1983.1 desember 1982 höfðu fund- ist 11 tilfelli í Bretlandi og þá hafði AIDS einnig greinst í Kaupmannahöfn. I mars 1983 haföi 1 tilfelli greinst á Islandi. Meöferð við AIDS er engin ennþá og dánartíðni er talin á bilinu 80—100%. Mikil vinna er nú lögð í að rannsaka AIDS, einkum í Bandaríkjunum og mikið um sjúkdóminn ritað í vísinda- ritum sem tengjast læknisfræöi. Flatlús (pediculosis pubis — náskyld höfuðlús) Berst á milb við nána snertingu, til dæmis kynmök. Getur líka borist á milli foreldra og bama. Einkenni: Lúsin kemur einkum í skapahár en getur líka komið í hár hvar sem er á líkamanum. Þá veröur vart við kláða og stundum útbrot. Sjá má lúsina sem dökka díla við hársræt- urnar, sem og nit á hárum. Meðferð: Quellada-sjampó eða Quellada-lausn. Bæöi innihalda skor- dýraeitrið Lindan en það sama eitur mun eitthvað notað hérlendis til að úöa á garðagróöur á vorin en er þá auðvit- að í miklu sterkari lausnum. Quellada er hægt að fá í apótekum og þarf ekki lyfseöil til kaupa á því. Lika skyldi gæta þess aö þvo vel fatnað og sængur- föt tilaölosna viðlúsina. Kláðamaur (sarcoptes scapiei) Kláðamaurinn berst á milli fólks við nána snertingu, líkt og flatlúsin. Kláðamaur hefur annað lífsmunstur en flatlús og kýs að grafa sér göng inn í húðina. Þar er einkum kvendýrið á ferð og verpir það eggjum í enda gang- anna. Einkenni: — Mikill kláöi. — Sjá má um 1 sm langar rauðar rákir og 1—2 mm breiðar en þar undir erugöngin. Meðferö: Quellada lausn. HERPES SIMPLEX-SÝK- INGAR (VEIRUSÝKINGAR) Herpes Simplex, týpa 1, veldur áblæstri á vörum. Herpes Simplex, týpa II, veldur líkum útbrotum á og/eöa við kynfæri. Hvor um sig getur valdið útbrotum á stað hins. Smitleiðir beggja: Snerting og fyrir týpu II, eink- um kynmök. Meðgöngutími: 2—5 dagar. Einkenni: Vessafylltar smáblöörur myndast á og/eöa við kynfæri. Blöðr- urnar springa svo að grunn sár mynd- ast. Sárin gróa yfirleitt innan 10 daga. Vessinn úr blöðrunum og sárunum inniheldur veirumar og er smitandi. Snerting viö blöðrurnar og sárin er sársaukafull. Af öðmm einkennum sem stundum koma fram má nef na: — Væg einkenni um heilahimnu- bólguofttilstaöar — Þvagteppu sem verður vegna óþæginda viö þvaglát. — Þunglyndi en það er sammerkt við sjúkdóma á þessum hluta líkamans að sjúklingar eru títt býsna áhyggju- fullir og líta framtíðina fremur döpr- umaugum. Veira þessi tekur sér bólfestu í lík- ama sjúklingsins og er talin halda til í taugahnoöa aftur viö hrygg í hæð við mjaðmargrind. Venjulegast er henni haldiö niðri þar af ónæmiskerfi líkam- ans en hún á það til, líkt og gerist með áblástursveiru, að valda útbrotum á ný. Venjulega líður æ lengra á milli einkenna og einnig standa þau skemur yfir og þá oftast vægari. Engin lyf eni ennþá til sem vinna á sýklinum. Nota má mýkjandi smyrsl á útbrotin sem og verkjalyf. Eins skyldi fresta samförum uns útbrot eru að fullu gróin til aö foröast aö smita frá sér. Þótt þessi sjúkdómur sé „ólækn- andi” er hann ekki svo hræðilegur í sjálfu sér. Hann er að flestu leyti mjög svo sambærilegur við áblástur á vör- um. Hins vegar ber bamshafandi konum, sem fengið hafa slík útbrot, að láta kvensjúkdómalækninn eöa þann lækni sem um þær sér, vita af því. Þaö er gert vegna þess að böm geta smitast viö fæöingu ef móöirin er þá með slík útbrot. Fundaborð, 3 stærðir, Fundastólar með örm- um og án arma Raðstólar, hornborö, blómakassar, 3 stærðir. Notkun smokksins hefur aukist mjög mikið síðustu árin um leið og pillan verður óvinsælli vegna ýmissa auka- verkana sem hún getur haft. Sumir telja líka að smokkurinn sé besta vörn- in gegn kynsjúkdómum og telja að með því að gera fólki auðveldara að nota þá sé hægt að draga verulega úr tíðni kynsjúkdóma. Skrifstofuhúsgögn Hjá okkur fáið þið allar gerðir af vönduðum og sterkum SKRIF- STOFUHÚSGÖGNUM Skrifborð, 3 stærðir. Vélritunarborð, fri- standandi og föst. Tölvuborð. Hillueiningar, ýmsar útfærslur. Léttir skermveggir, 4 stærðir. Skrifborðsstólar Sendum um land allt. Hagstætt verð ö taögreiösluatsla ttur eða góðir greiðsluski/má/ar. HUSGOGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.