Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 39
DV. MANUDAGUR2. MAI1983.
39
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Eggert bárust gjafir góðar.
Gjöf frá flokki
Eggert Haukdal þingmað-
ur átti afmæli um daginn og
hélt mikla veislu þar sem
fjöldi manna kom og sam-
fagnaði honum. Honum voru
gefnar margar gjafir og
höfðinglegar. Athygli vakti
að félagar hans í Sjáifstæðis-
fiokknum gáfu honum Ferða-
bék Eggerts og Bjarna. Mcnn
bafa síðan velt því fyrir sér
hvort þar hafi einhver falin
skilaboð verið á fcrðinni'.
Sverrir gaf.
... og þjóðinni
líka!
Eggert fékk líka að gjöf
aðra bók og ekki síðri. Það
var hin eigulega litprentaða
útgáfa Skarðsbókar sem
Sverrir Hermannsson, fram-
kvæmdástjóri Framkvæmda-
stofnunar, færði stjórnarfor-
manninum fyrir hönd stofn-
unarinnar. Því er þessa getið
hér aö Framkvæmdastofnun
er í eigu þjóðarinnar og ekki
nema sjáifsagt að þjóðin viti
hverjar gjafir húu gefur.
Sögulegar sætt
ir!
Fyrir kosningarnar 1979
var í vissum blöðum mikið
rætt um „sögulegar sættir”.
Þar var átt við það að Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
bandaiagið gengju til stjórn-
arsamstarfs og var fyrir-
myudin að þessum sáttum
sótt alla leið til ítalíu. Af þeim
sögulegu sáttum varð ekki,
eins og kunnugt er, og var
Sjálfstæðisflokkurinn mest-
megnis í stjómarandstöðu
eftir kosningarnar.
En nú virðist samkvæmt
áreiðaniegum fréttum úr
dagblöðum, stefna í sam-
starfs Sjálfstæðisflokks,
Kvennaframboðs og cinhvers
þriðja aðiiá. Og það verða að
teljast hinar sögulegustu
sættir því ósamkomulag milli
karia og kvenna á sér mun
lengri sögu en ágreiningurinn
milli Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks!
Framhjáganga
Albert Guðmundsson sagði
í viötali við Timann í fyrri
viku að það yrði erfiöara að
. ganga framhjá honum en oft
áður við úthlutun ráðherra-
embætta. Saklaust ungmenni
scm las þessa frétt spurði:
„Hvcrs vegna? Hefur hann
fitnað svona?
Erfitt að krækja fyrir Albert.
Víst voru það
klókindi!
Það birtist undarleg frétt í
Tímanum núna fyrir helgi
þar sem ekki fóru saman
fyrirsögn og innihald. Þar
var fjallað um skipulag á
loðnurannsóknum Norð-
manna og íslendinga en Haf-
rannsóknastofnun hefur ráð-
stafað sinum skipum svo að
ckki verður unnt að mæla
loönu fyrr en seint á árinu. í
fyrirsögn segir: „Ekki um
klækjabrögð fiskifræðinga að
ræða,” og er það haft eftir
Jakobi Jónssyni. i fréttinni er
aftur á móti sagt: „Jakob
Jakobsson fiskifræðingur
sagði t samtali við Ttmann að
það væri rétt að hér væri um
klækjabrögð Ifafrann-
sóknastofnunar að ræða.”
Þeim ber ekki aiveg satnan
nöfnunum Jónssyni og
Jakobssyni.
Umsjón: ÖlafurB.
Guðnason
PRJÓNAGARN - ÚTSAUMUR - SMYRNA
HOF
ÚTSAUMSMYNDIRNAR
PARIÐ Á STRÚNDINNI
OG ELSKENDURNIR
Ennfremur: Á vængjum ást-
arinnar, Draumadísin og fi.
Ný sending af finnsku bómullar-
V og hörgarni.
—
Sjón er sögu ríkari.
Póstsendum dagtega.
- INGÓLFSSTRÆT11
(GEGNT GAMLA BÍÚI). SÍM116764.
Vapona og Shelltox:
Lyktarlausar flugnafælur
Lyktarlausu flugnafælurnar fást á
afgreiðslustöðum Shell. Þær eru til í tveimur stærðum og endast
í að minnsta kosti fjóra mánuði.
Skeljungur h.f.
Leikskólínn
Bæjarból
óskar eftir að ráða fóstru hálfan daginn frá og með 15. júní.
Upplýsingar gefur forstöðukona í síma 40970.
FÉLAGSMÁLARÁÐ
GARÐABÆJAR
K\S\^'
óskast í eftirtaldar bifreiðir og tæki sem verða til
sýnis þriðjudaginn 3. maí 1983, kl. 13—16, í porti
bak við skrifstofu vora, Borgartúni 7 Reykjavík,
og víðar.
Rover 3500 fólksbifr.
Mazda 929 fólksbifr.
Volvo 244 DL fólksbifr.
Volvo P144 fólksbifr.
Volvo P144 fólksbifr.
Ford Cortina fólksbifr.
Ford Cortina fólksbifr.
Mazda 323 fólksbifr.
Mazda 323 fólksbifr.
Ford Escort sendibifr.
Ford Escort sendibifr.
Ford Econoline sendibifr.
Chevrolet Suburban 4x4 sendibifr.
Ford Bronco
Ford Bronco
Simca XR fólksbifr.
Lada Sport torfærubifr.
Toyota Hi lux pickup
Land Rover dísil
UAZ 452 torfærubifr.
BMW bifhjól
BMW bifhjól
árg. 1979
árg.1979
árg.1976
árg.1971
árg.1971
árg. 1979
árg.1976
árg. 1980
árg.1980
árg.1977
árg.1977
árg.1974
árg.1980
árg.1974
árg. 1974
árg.1980
árg.1978
árg.1976
árg. 1975
árg.1979
árg.1972
árg.1973
Til sýnis á birgðastöð Pósts og síma við Vestur-
landsveg:
Int. Scout torfærubifr., skemmd eftir veltu árg. 1977
Til sýnis hjá véladeild Vegagerðar ríkisins, Borg-
artúnið:
Volvo F-85-42 vörubifr. árg. 1966
Volvo F-86-49 vörubifr. árg. 1973
Hiab-Foco 245 bílkrani árg. 1973
Til sýnis í vöruskemmu Ríkisskipa við Reykja-
víkurhöfn:
KVAB dráttarkerra árg. 1966
Clarktor 6 dráttarkerra árg. 1959
7 stk. tengivagnar. Burðarþol 3 tonn
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að
viðstöddum bjóðendum.
Réttur áskilinn að hafna tilboðum sem ekki telj-
ast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006