Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 29
DV. MÁNUDAGUR2. MAI1983. 29 Gary Burton. Tónlist kvartetts hans er Ijúf og leikandi, lagræn og full sveiflu. Tilhlökkunaref ni fyrir jassunnendur: Gary Burton leikur í Gamla bíói 10. maí Hinn heimskunni víbrafónleikari Gary Burton er væntanlegur til Islands eftir næstu helgi og mun hann halda tónleika í Gamla bíói hinn 10. maí á- samt hljómsveit sinni. I henni eru Jim Odgren, er leikur á altsaxófón, Steve Swallow, er leikur á rafbassa, og Mike Hyman, trymbill. Sá síðasttaldi hefur raunar komið hingað tvisvar áður, með kvartett trompetleikarans John McNeil í september 1979 og kvintett Stan Getz á Listahátíð 1980. Jazzvakn- ing og Menningarstofnun Banda- ríkjanna á Islandi standa að tónleikun- um. Gary Burton er 37 ára gamall og hefur síðustu 15 árin veriö kosinn víbrafónleikari ársins hjá jasstímaritinu Down Beat. Frá 1967 hefur hann haft sína eigin hljómsveit og hefur margur jazzjöfurinn leikið með henni. Burton er upprunalega píanisti og leikur því mikið hljóma og notar jafnan fjóra kjuða. Meðleikarar Burtons eru allt færir menn, Jim Odgren er ungur og efnilegur altisti sem þorir að blása kröftuglega í hljóðfæri sitt, Mike Hyman er einnig ungur og lipur og Steve Swallow hefur lengi verið í hópi virtustu bassaleikara jassins, jafnt á kontrabassa sem rafbassa. Forsala aðgöngumiða aö þessum jassviðburöi verður í Fálkanum á Laugavegi 24 og hefst í dag, 2. maí. -pA. HLUSTENDAKÖNNUN RÍKISÚTVARPSINS — fer fram 2.-8. maí Ríkisútvarpið stendur fyrir hlust- á, hversu vel, hvar staddir og endakönnun 2.-8. maí. Spuminga- hvernig þeim hafi líkað. Auk þess listar um dagskrá ríkisfjölmiðlanna eru spumingar um almenn viðhorf þessa viku hafa veriö sendir til 1500 til efnis í útvarpi og sjónvarpi og til manns af öllu landinu ó aldrinum landshlutaútvarps. 15—70 ára. Niöurstöður könnunarinnar verða Með könnuninni fylgir dagbók þar hafðar til hliðsjónar við gerö dag- sem þátttakendur eiga að merkja við skrár Ríkisútvarpsins. það sem þeir hafa hlustað eða horft -ás. Mígrensamtökin 5 ára Um þetta leyti em fimm ár síðan Mígrensamtökin voru stofnuð. I sam- tökunum em ekki einungis þeir sem þjást af mígren heldur einnig fyrrver- andi mígrensjúklingar og aðstand- endur núverandi sjúklinga. Markmið samtakanna era að auka samkennd og samstöðu mígren- sjúklinga, að veita fræðslu með fræðslufundum, útgáfu fréttabréfs og annars fræðsluefnis, að berjast fyrir bættum rannsóknum og meðferð, t.d. meðgöngudeildarþjónustuo. fl. Unnið hefur verið að þessum málum og félagið hefur fengið aðstöðu fyrir mígrensjúklinga á göngudeild Tauga- deildar Landspítalans. -KA. „Kætumst meöan kostur er. . ." Það var glatt á hjalla í Ármúlaskóla i gær þegar stúdentsefni skólans hóldu „ dimission ". D V-m ynd: Bjarnleifur. Drauma-reiðhjólið fro Frakklandi komið aftur • Tourist ferðahjól, 10 gíra, með breiðum dekkjum, 24” og 26”. • Ljós, bögglaberi að framan og aftan, stand- ari, pumpa, og bjalla. • Aldur frá 8 ára. Auk þess mikið úrval af reiðhjólum fyrir alla, krakka, konur og kalla. Racer-keppnishjól, 10 gíra, dekk 26” og 28”. Racer keppnishjól fyrir börn, 3 gíra, dekk 18”—24”. 3 gíra kven- og karlmannshjól, breið dekk 26”. Fótbremsuhjól, dekk 20”—26”. Reiðhjólavarahlutir í miklu úrvali; töskur, körfur, lásar, hraðamæl- ar, bílafælur o.fl. l/erslunin <§> MA RKIð Suðurlandsbraut 30— Sími 35320 Varahluta- og viðgerðar- þjónusta Árs ábyrgð TONLEIKAR The FALL AUSTURBÆJARBÍÓ, föstudaginn 6 maí, kl. 21. forsala: Gramm, Fálkinn, Stuðbúðin ÞEYR ISS! MÓRALL v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.