Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Blaðsíða 45
DV. MÁNUDAGUR2. MAl 1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
45
Sviðsljósið
„NÚ EIGUM VIÐ LEIK”
—- sögðu hressir krakkar í tilraunaleikhúsi Stúdentaleikhússins
á sumardaginn fyrsta
Með stórar og faltegar freknur er maður tilbúinn i hvað sem er. Hér sjást
tvær upprennandi með góð tilþrif og njóta tH þess dyggrar aðstoðar
Bangsimons.
Eitilhressir krakkar bregða á leik i Tjarnarbiói á sumardaginn fyrsta. Og
þeir voru ekki i vandræðum með að semja leikritin á staðnum. Heilu stykk-
in drifin afstað án nokkurra vandræða. Sannarlega vel heppnuð skemmt-
un hjá Stúdentaleikhúsinu.
Stúdentaleikhúsið var meö
tilraunaleikhús á svokölluðu opnu
húsi á sumardaginn fyrsta í
Tjarnarbíói. Heppnaðist tilraunin
vel og tóku margir krakkar sig til
og gerðust fyrirtaks leikarar.
Skemmtunin hófst klukkan þrjú,
þegar sýndar voru stuttar bíó-
myndir fyrir krakkana. Síðan tóku
þeir til við leikinn og byrjuðu að
skemmta hver öörum.
Krakkamir klæddu sig sjálfir í
búninga og drifu af stað leikrit,
sem vom samin af þeim á staðn-
um. Koma þá í ljós að gamla mál-
tækið: „Margur er knár þótt hann
sé smár,” er enn í fullu gildi.
Foreldrar, sem komu á þetta
opna hús, voru mjög ánægðir með
skemmtunina alveg eins og börnin
sjálf sem kunnu sér ekki læti.
Fyrirhugað er að hafa framhald
á þessu tilraunaleikhúsi í Tjarnar-
bíóiefbíóiðfæsttilafnota. -JGH
„Einn hinn mesti öðlingsmaöur,
sem ég hef kynnst á langri ævi,
Guðgeir Jónsson, varð níræöur í gær,
þann 25. apríl. Öll mín kynni af hon-
um eru slík, að ég finn mig knúinn til
að minnast hans nokkrum orðum og
áma honum heilla á níræðisafmæli
hans.”
Þannig byrjar Hannibal Valdi-
marsson afmælisgrein um Guðgeir
Jónsson, fyrrverandi forseta
Alþýðusambands íslands, í Morgun-
blaðinuþann 26. apríl síðastliðinn.
Við skulum grípa á nokkrum stöð-
umígreinHannibals: „Svo gjörðist
það 1942, að Guðgeir Jónsson er kjör-
inn forseti Alþýöusambands Islands.
Á þessum árum var kreppa í landi,
atvinnuleysi herjaöi og mögnuð
sundrung geisaði í röðum verka-
manna. Þetta var tími harðra
átaka.”
„Hann er vissulega maöur hóf-
semdar og jafnframt sanngimi og
réttlætis.”
„Þó að þetta greinarkom sé lítið
annaö en upptalning staöreynda í lífi
merks sainferðarmanns — enda mér
nú, eins og skóldið frá Bólu sagði;
„oröið stirt um stef og stílvopn laust í
höndum” — þá átti þaö þó einnig að
vera þakkarvottur fyrir ágæt kynni
og eftirminnilegt samstarf á því
sviði sem okkar leiðir mættust. ’ ’
Guðgeir hélt upp á niræöisafmæli
sitt í veislusalnum í Domus Medica
og þangaö komu margar kunnar
kempur til aö hylla hann. Hann
Bjamleifur Bjarnleifsson, ljósmynd-
arinn okkar kunni, var einn þeirra og
hyllti Guðgeir meö myndavélinni
sinni.
Eigum viö ekki aö líta á árangur-
inn?
-JGH
Guðgeir ásamt konu sinni, Guðrúnu Sigurðardóttur. Svo skemmtilega vill tíl að Guðrún er á sama aldursári og
eiginmaður hennar. Hún er fædd 25. september, eða á sama mánaðardegi og Guðgeir og verður þvi niræð i
haust. Þeim hjónum hefur orðið sjö barna auðið. D V sendir Guðgeiri hinar bestu afmæliskveðjur.
DV-myndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson.
Lennon samdi lagið Revolution
með Bitlunum. Hver veit nema
ýmsir spæjarar hafi spilað þá
plötu aftur og aftur til að kom-
ast að hinu sanna um Lennon.
Rúbblurokk
John Lennon, fyrrverandi Bítill,
sem var myrtur 1980, var míkill
fjandmaöur Richards Noxons, fyrr-
um Bandarikjaforseta i byrjun 8.
áratugarins. Sagt cr að Nixon hafi
verið svo hræddur við friðarboð-
skap Lennons að hann hafi sent
FBI til að njósna um hvort Lennon
tæki við fé frá kommúnistum. En
við rannsókn benti ckkcrt til þess.
Það var nú það.
-KA/starfskynning.
„Dady, dady cool," mun hún
Jóhanna Cook hafa sungið þeg-
ar hún var með kaftein Cook,
Richard Harris, nýlega. Harris
sagði að hann liti á Jóhönnu
sem stjúpdóttur sina.
Veragóð
viðpabba
Hinn 52 ára gamli Kichard
Harris sem leikur um þessar
mundir í „Camelot” í Lundúnuin
var klæddur aö hætti unglinga þeg-
ar Ijósmyndarar rákust á hann
ásamt 16 ára ljósmyndafyrirsætu,
Joanne Cook að nafni.
„Það er alls ekkert á milli
okkar,” staðhæfði Harris. „Ég er
of gamall fyrir hana og cg um-
gengst hana sem stjúpdóttur.” Jó-
hanna litla tjáði sig ekki um málið
— en leit út fyrir að vera hæst-
ánægð mcð „stjúppabba” sinn.
-KA/starfskynning