Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1983, Síða 48
79090 SENDIBÍLASTÖÐ KÓPAVOGS *J^AAUGLÝSINGAR Z/vZa SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
Símsvari á kvöldin og um helgar Q# #"| 1 RITSTJÓRN OOO 1 1 SÍÐUMÚLA 12—14
Gæsluþyrla:
Sótti slasaðan
sjómann íÝmi
Þyrla landhelgisgæslunnar TF-RAN
sótti slasaöan sjómann um borö í tog-
arann Ými frá Hafnarfiröi laust fyrir
klukkan sjö í gærmorgun. Sjó-
maðurinn haföi slasast alvarlega á
hendi og þurfti aö komast fljótt í,
læknismeðferð.
Togarinn var staddur djúpt út af
Reykjanesi þegar óhappið varö og
sigldi strax í áttina til lands. Þyrlan
kom á móti togaranum og var hinn
slasaöi híföur um borö í þyrluna.
Þyrlan lenti rétt eftir klukkan átta
viö Borgarspítalann.
Feröin gekk í alla staöi vel.
Flugmenn voru þeir Páll Halldórsson
og Benóný Ásgrímsson. -JGH.
MIKIÐ UM
SINUBRUNA
Sinubrunar voru margir í Reykjavík
um helgina og þurfti slökkviliöiö í
Reykjavík aö fara í fimm útköll vegna
þeirra.
Sérstaklega mun hafa veriö mikið
kveikt í á laugardag, en þaö var síöasti
dagurinn sem leyfilegt var aö kveikja í
.sinu.
Kngin meiri háttar óhöpp munu hafa
orðið í þessum sinubrunum. -JGH.
Sumarbústaður
brann í morgun
Gamall sumarbústaöur viö Norð-
lingabraut, skammt frá Elliöavatni,
brann til kaldra kola í morgun.
Þegar slökkviliðið í Reykjavík kom
aö bústaðnum laust fyrir klukkan sjö í
morgun var skúrinn aö mestu
brunninn. Eldsupptök eru ókunn.
JGH.
Stal myndavél
Rúöa í verslun Mats Wibe Lund viö
Laugavegil78 var brotin aöfaranótt
laugardags og teygöi rúðubrjóturinn
sig inn eftir myndavél sem kostar um
40 þúsund krónur. Leigubílstjóri sá til
þjófsins og tilkynnti lögreglunni um
hann en hann mun ekki hafa náðst.
-JGH.
Frá og meö 1. maí hækkar áskriftar-
verö DV í kr. 210,00 á mánuði. Verö
blaðsins í lausasölu verður kr. 18,00
eintakið, nema Helgarblaös, sem
kostar kr. 22,00 eintakið. Grunnverö
auglýsinga verður kr. 126,00 hver
dálksentímetri.
LOKI
Það viðraði skikkaniega
1. maí, aldrei þessu vant
— enda voru hátíðahöld-
in innanhúss.
Fatlaðir settu mikinn svip á 7.
mai gönguna i gær en þar
gengu þeir undir fána Sjálfs-
hjargar og kröfuspjöldum um
jafnrétti. Með þátttöku sinni i
göngunni náðu fatlaðir einnig i
stig i Norrænu trimmlands-
keppninni. Sú keppni hófst i
gær og meðal keppnisgreina
þar er hjólastolaakstur og
ganga.
-klp/DV-mynd S.
/'■' samkoniunni i Launardalsh* '
' gær. DV-mynd <
St jómarmy ndunarviðræður:
Kratar og Fram-
sókn í sigtinu
Líkur benda til að Geir Hallgrims-
son, formaður Sjálfstæöisflokksins,
muni nú einbeita sér að viðræðum
viö Framsóknarflokk og Alþýðuflokk
um myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Geir ræddi viö Vilmund Gylfason á
laugardag og í gær ræddi hann,
ásamt Ragnhildi Helgadóttur og
Salome Þorkelsdóttur, við þingflokk
Kvennalistans. Þar meö hefur hann
lokiö fyrstu umferð tilraunar sinnar
til myndunar meirihlutastjómar,
meö viöræðum viö forystumenn allra
flokka.
Horfið var frá því ráöi aö kjósa
nefnd til samráös meö formann-
inum. Þess í stað mun þingflokk-
urinn koma saman á hverjum degi
meðan viðræöur standa yfir, eöa
oftaref þörfþykir.
Þingflokkurinn kom saman í gær
eftir viðræöurnar við Kvennalistann.
Þar mun ofangreindur möguleiki
hafa þótt líklegastur til árangurs.
Ekki eru þó allir þingmenn Sjálf-
stæöisflokksins bjartsýnir á aö
þessi tilraun takist. Sjálfstæðis-
mönnum mun þó þykja vænlegra aö
hafa Alþýöuflokkinn meö í stjórn
ásamt Framsóknarflokki, bæöi til aö
endurtaka ekki stjómarmynstrið frá
1974 og til aö tryggja áhrif
innan verkalýöshreyfingarinnar.
Mörgum krötum mun hins vegar
ekki litast á aö vera í stjórn þar sem
seta þeirra skiptir ekki máli fyrir
þingmeirihluta stjómarinnar. „Viö
yrðum þá eins og dula sem hægt væri
að kasta burt,” sagöi einn þing-
manna Alþýöuflokksins.
-ÓEF.
Þingfíokkur Sjálfstæðisflokksins hittist daglega nú meðan á stjórnarmyndunarviðræðunum stendur.
Myndin var tekin áþingflokksfundiigær. DV-mynd GVA
Sigurvegarinn Sigríður Gröndal og
söngkennarinn hennar, Sieglinde
Kahman, ánægðar með úrslitin.
DV-myndBj. Bj.
Jöfn söngkeppni
ísjónvarpi:
SigríðurGröndal
fertil Cardiff
Sigríöur Gröndal bar situr úr býtum
í söngkeppni sjónvarpsins sem haldin
var á laugardagskvöldið. Keppt var í
beinni útsendingu í sjónvarpssal.
Sigríöur hlaut sem vinning þátttöku-
rétt í söngvakeppni sem haldin veröur
í Cardiff í Wales í j úlí .
Elín Osk Oskarsdóttir varö í öðru
sæti. Aöeins eitt stig skildi þær Sigríði
aö. Um þriðja sætiö varö hörö keppni
því eftir að atkvæöi höfðu verið greidd
í hinni 5 manna dómnefnd voru þau
Júlíus Vífill Ingvarsson og Sigrún Val-
geröur Gestsdóttir nákvæmlega jöfn.
Þegar greidd höföu veriö atkvæöi aftur
um þau varö þaö hins vegar Júlíus sem
hreppti þriðja sætiö. Önnur verðlaun
vora 5 þúsund krónur og þau þriöju 3
þúsund krónur. Kristín Sædal
Sigtryggsdóttir hreppti fimmta sætiö í
keppninni og Eiríkur Hreinn Helgason
þaösjötta.
Alls höföu 13 söngvarar tekið þátt í
undankeppni, þessir 6 unnu þar til
þátttöku í úrslitunum sem voru á
laugardaginn. _os.
LeifurBreiðfjörð
íúrslit
Listaverk eftir glerlistainanninn
Leif Breiöfjörð hefur veriö valið í
úrslitakeppni Fragile Art 1983, sem er
stærsta samkeppni glerlistamanna
sem haldin er.
Alls tóku 366 listamenn hvaöanæva
úr heiminum þátt í þessari keppni en
aðeinsl9komustíúrslit. -EA.
1. maí:
Vel heppnuð
hátíðahöld
1. maí hátíöahöldin fóra vel fram
um allt land í gær enda veður gott
alls staöar. I Reykjavík hófust
hátíöahöldin meö því aö gengin var
kröfuganga frá húsi Alþýðusam-
bands Islands við Grensásveg að
Laugardalshöll, þar sem dagskrá
dagsins fór fram.
Ræður fluttu þeir Snorri Konráðs-
son, varaformaður Félags Bifvéla-
virkja, Albert Kristinsson, fyrsti
varaforseti BSRB, og Gunnar
Tryggvason, formaður Iönnema-
sambands Islands. Að auki komu
fram þau Kristín Olafsdóttir, Guö-
mundur Hallvarðsson, Kolbeinn
Bjarnason, Ársæll Másson, Sigrún
Valgerður Gestsdóttir, Jón Júlt'us-
son, Jón Hjartarson, Þursaflokk-
urinn o.fl. Taliö er aö um þrjú
þúsund manns hafi sótt samkomuna
í Laugardalshöllinni en eitthvaö
færra hafi tekiö þátt í göngunni. Aö
sögn lögreglunnar fór þetta allt mjög
vel fram. -sþs